DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Lavender Grove

Prjónað poncho í perluprjóni með lausum kraga, prjónað ofan frá og niður úr 2 þráðum DROPS Cloud eða 4 þráðum DROPS Air. Stærð S- XXXL.

DROPS 172-25
DROPS Design: Mynstur nr co-035
Garnflokkur E + E eða F
----------------------------------------------------------

PONCHO:
Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL
Mál á lausum kraga. Mál: Ummál: 70 cm. Hæð: 30 cm.

Efni:
DROPS CLOUD frá Garnstudio
800-900-950-1050 g litur nr 08, fjólublá þoka

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio
850-950-1050-1150 g litur nr 16, blár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 15 – eða þá stærð sem þarf til að 7 l x 10 umf með perluprjóni með 2 þráðum Cloud eða 4 þráðum Air verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cloud
DROPS Cloud
72% Alpakka, 21% Polyamide, 7% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

PERLUPRJÓN:
UMFEÐR 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl.
UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl.
Endurtakið umf 2.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 8 l í umf. Þegar útaukningar hafa verið gerðar á hvorri öxl/hlið til loka er aukið út um 4 l í umf.
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt eða snúinn brugðið eftir hvar nýjar l passa í perluprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

PONCHO:
Fitjið upp 32-40-40-48 l með 2 þráðum Cloud eða 4 þráðum Air á hringprjóna nr 15. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, *, endurtakið frá *-* út umf. Í næstu umf eru allar l og uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið og prjónið mynstur þannig: 1 l sl, setjið 1. prjónamerki í þessa l (= hægri öxl/hlið), prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 7-9-9-11 l, 1 l sl, setjið 2. prjónamerki í þessa l (= miðja að framan), perluprjón yfir næstu 7-9-9-11 l, 1 l sl, setjið 3. prjónamerki í þessa l (= vinstri öxl/hlið), perluprjón yfir næstu 7-9-9-11 l, 1 l sl, setjið 4. prjónamerki í þessa l (= miðja að aftan), prjónið perluprjón yfir þær 7-9-9-11 l sem eftir eru. Haldið svona áfram hringinn. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við hverja sl l með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umf alls 6 sinnum = 80-88-88-96 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með útaukningu við miðju að framan og við miðju að aftan í annarri hverri umf 16-16-17-16 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út á hvorri öxl/hlið í 4. hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 152-160-164-168 l. Stykkið mælist nú ca 44-44-45-44 cm mælt meðfram sl við miðju að framan.
Haldið nú áfram með útaukningu hvoru megin við sl við miðju að framan og við miðju að aftan og stykkið skiptis í framstykki, bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 10-11-11-12 l og setjið á þráð (= hálf ermi), prjónið næstu 57-59-61-61 l og setjið þessar l á þráð (= framstykki), prjónið síðan næstu 19-21-21-23 l áður en þær eru settar á þráðinn (= ermi), prjónið næstu 57-59-61-61 l (= bakstykki) og haldið þeim eftir á prjóni, prjónið þær 9-10-10-11 l sem eftir eru (= hálf ermi) og setjið þær á sama þráð og fyrstu 10-11-11-12 l í umf (= ermi). Klippið frá.

BAKSTYKKI:
= 59-61-63-63 l. Haldið áfram fram og til baka yfir l á bakstykki þannig:
Byrjið frá röngu og prjónið perluprjón fram og til baka, útaukning hvoru megin við sl með prjónamerki í heldur áfram í hverri umf frá réttu 3 sinnum til viðbótar = 65-67-69-69 l. Prjónið 1 umf br til baka frá röngu og fellið af með sl frá réttu.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka 59-61-63-63 l af þræði á hringprjóna nr 15. Byrjið frá röngu og prjónið eins og bakstykki.

STROFF:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er nú mælt héðan!
Fitjið upp 8 l með 2 þráðum Cloud eða 4 þráðum Air á hringprjóna nr 15. Prjónið inn 19-21-21-23 l perluprjón af öðrum þræðinum fyrir ermi á prjóninn, fitjið upp 8 nýjar l í lok umf = 35-37-37-39 l.
Prjónið næstu umf frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, 1 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff með sl yfir sl og br yfir br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 18 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hitt stroffið á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman stroffið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, saumið síðan nýjar l sem fitjaðar voru upp undir ermi niður í hvorri hlið á fram/bakstykki á poncho. Endurtakið í hinni hliðinni.

TVINNUÐ SNÚRA MEÐ SKÚFUM:
Klippið 2 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið við miðju framan á poncho og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina.
Klippið 10 þræði ca 30 cm. Þræðið þeim í gegnum endann á tvinnuðu snúrunni og skiptið þráðunum þannig að þeir skiptist jafnt upp. Vefjið einum þræði í kringum skúfinn, herðið að og hnýtið hnút. Endurtakið á hinum endanum á snúrunni.

LAUS KRAGI:
Kraginn er prjónaður í hring á hringprjóna.
Fitjið upp 49 l með 2 þráðum Cloud eða 4 þráðum Air á hringprjóna nr 15. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 30 cm, prjónið 1 umf slétt. Fellið af með sl.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Lilian wrote:

Los valores que estan puestos en el diadrama son cm o cantidad de puntos? el ancho de la diagonal desde la mitad del frente para un talle XXL seria 65cm?

24.02.2024 - 14:31

DROPS Design answered:

Hola Lilian, las medidas en el esquema de medidas son en cm. La línea diagonal desde la punta inferior en el centro del delantero hasta el lado del poncho serían 65cm, es decir, el ancho del delantero, pero en diagonal.

26.02.2024 - 22:39

country flag Angela Borneman wrote:

I am confused. Isn’t the poncho knit in its entirety I’m the round? Specifying “Front” and “Back” has thrown me a bit! 🥰

22.05.2022 - 21:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Borneman, this poncho is worked top down in the round until you divide piece for sleeves, then you will continue each part: back piece/front piece and sleeves separately. Happy knitting!

23.05.2022 - 08:59

country flag Angela F Borneman wrote:

Do you have any suggestions for how to make the hem longer, more like a poncho mini sweater dress?

10.05.2022 - 23:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Borneman, we are unfortunately unable to adapt every pattern to every single request, but you will find all our patterns for poncho-sweater (swonchos) here, it might help or inspire you . Happy knitting!

11.05.2022 - 08:34

country flag Andrine wrote:

Hei! Ved øking fra halsen (etter man har satt fire merker). Skal disse fire merkene strikkes rett konsekvent, mens det rundt tilpasses perlestrikk? Altså der man øker fra 32 til 80 masker. Skal disse merkene strikkes rett hele veien ned/ut?

30.11.2020 - 11:23

DROPS Design answered:

Hei Andrine. Det strikkes perlestrikk hele veien. Økningene/kastene strikkes vridd rett eller vridd vrang slik at den nye maskene passer inn i perlestrikk. God Fornøyelse!

30.11.2020 - 13:38

country flag Mabel wrote:

Hi, I'm in this part of the pattern: ... divide piece in front piece, back piece and sleeve as follows... My K sts are not in the middle of the work when I divide them Am I doing it right, or am I making a mistake? Thanks for your help

01.07.2020 - 04:28

DROPS Design answered:

Dear Mabel, check that the increases have been worked as explained, you should have 59-63-65-67 sts for front and back piece with the K stitch in the middle (= 29-31-32-33 sts, Knit 1, 29-31-32-33 sts) and 9 sts in all sizes for each shoulder. Happy knitting!

01.07.2020 - 08:42

country flag Lisard Yolene wrote:

Bonjour j'aimerais m'abonner a votre blog est ce gratuit comment faire merci

01.05.2020 - 18:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lisard, merci pour votre message; vous pouvez vous abonner à notre newsletter en cliquant ici - vous pouvez nous suivre également sur les différents réseaux sociaux - cf liens sur chacune de nos pages. Bon tricot!

04.05.2020 - 11:02

country flag Louise wrote:

Jag blir inte klok på er beskrivning! Den är rörig som bara den. Jag har satt markörer på 4 ställen men det blir ca 25cm över när de är satta. Är det fel i beskrivningen eller är detta tänkt till något annat? Är det själva halsen det beskrivs så är de helt fel på var 9e maska. Sedan undrar jag även över ökningen. Jag har ökat 8st med en på var sida omslag, men ska jag nu fortsätta göra det vartannat varv eller 4st på 6 varv? Så förvirrande!

05.04.2020 - 15:09

DROPS Design answered:

Hej Louise, ... forstår ikke hvad du mener med at det bliver 25 cm över.... Vi skal prøve at forklare men skal vide hvilken størrelse du vil strikke

21.04.2020 - 12:09

country flag Chelo wrote:

Hola, sus patrónes son muy buenos pero muchos modelos vienen sin diagrama, pueden decirme como descagarlos?. Muchas gracias

17.11.2019 - 16:52

DROPS Design answered:

Hola Chelo. Bajo los materiales tienes un botón IMPRIMIR para descargar e imprimir gratis.

17.11.2019 - 18:46

country flag Eva wrote:

I am sorry to bother you again regarding this pattern please help me. I am at the stage of having knitted 160 sts and piece measures 44cm. Instruction stating to divide pieces back, front, and sleeves, which I did and cut the yarn as instructions. Now I need to work the back piece inc. every RS row 3 times = only 6 rows. If I do that the whole thing will not be long enough as an extra 6 rows will give appx 2" so it will be a neck warmer not a poncho, as I cut the yarn when it reached 44cm.

15.09.2018 - 20:57

DROPS Design answered:

Dear Eva, make sure your tension is right you should have 10 rows in seed stitch = 4" in height - and check your measurements with the measurement chart at the bottom of the pattern. Happy knitting!

17.09.2018 - 08:49

country flag Eva wrote:

I am still very confused, please help me I have started the poncho 4 times now Ie. On the first increase row when increasing 1 stitch on either side of the marker I keep getting the moss stitch muddled up and each time I am getting either 2 Knit or 2 Purl stitch together. (Somehow the numbers don't add up. Ie. start Knit one, p,k,p,k =...9 stitches put a marker on the 10th Knitt stitch, then p,k,p,k ..9, and put marker On next knitt stitch as instruction, )

13.09.2018 - 18:20

DROPS Design answered:

Dear Eva, the marker should be in one stitch, you will then increase in moss stitch before this stitch with marker (= P or K this stitch depending on your last st worked), knit the stitch with marker and increase in moss stitch after the stitch with marker (K or P this stitch depending on how you have to work the next stitch). This way, you may have K2 at the marker (including the st with marker) but on next round, the st with marker will be K and the other K will be worked P in moss st. Happy knitting!

14.09.2018 - 08:13