Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Happy Days |
|
|
|
Prjónaður galli fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 21-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og stykkið er prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-54-60 (66-72) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 4-4-4 (5-5) cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-48-54 (60-66) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið, prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (7-7) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3-4-5 (5-7) cm millibili alls 4 sinnum = 50-56-62 (68-74) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið að innanverðu á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að það verði auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið = 52-58-64 (70-76) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. GALLI: Setjið skálmarnar á sama hringprjón 4,5 = 100-112-124 (136-148) lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan þannig (umferð 1 = rétta): Fellið af 4 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af 4 lykkjur og prjónið brugðnar lykkjur út umferðina = 92-104-116 (128-140) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-35-43 (43-50) cm prjónið nú til loka í garðaprjóni – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 37-45-53 (58-65) cm prjónið næstu umferð (frá réttu) þannig: 17-20-23 (26-29) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 42-48-54 (60-66) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handvegi, prjónið 17-20-23 (26-29) lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-42-42 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) lykkjur jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi, endurtakið útaukningu með 5-5-6(6-6) umferða millibili alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi (4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 34-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 144-160-180 (200-220) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í 3. umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (= hver umferð frá réttu) alls 10-11-12 (13-15) sinnum. JAFNFRAMT þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir laskalínu 7-6-6 (6-7) sinnum er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 3-3-4 (5-5) sinnum og síðan 1 lykkja 0-2-2 (2-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu og hálsmáli eru 52-56-64 (72-74) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 45-53-62 (68-77) cm upp að öxl. Fellið af allar lykkjur. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 63-75-91 (95-103) lykkjur meðfram hægra framstykki neðan frá og upp að hálsmáli á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff (frá röngu) þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagati meðfram næstu umferð frá réttu þannig: Stroff yfir fyrstu 10-10-2 (6-2) lykkjur, * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 lykkjur stroff *, endurtakið frá *-* alls 4-5-7 (7-8) sinnum, endið með 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í vinstra framstykki á sama hátt, ekki fellt af fyrir hnappagötum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 80 til 120 lykkjur (deilanlegt með 4 lykkjum) í kringum hálsmál á sokkaprjón 3,5. Prjónið þannig: 1 lykkja garðaprjón, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman þar til 1 lykkja er eftir á prjóni – prjónið 1 lykkju garðaprjón. Endurtakið í 3 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og saumið saum innan á skálmum innan við 1 kantlykkju. Saumið niður vinstri kant að framan þar sem felldar voru af 8 lykkju við miðju að framan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6922 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (30)
Patrizia wrote:
Hallo, ich habe Probleme seit ich beide Beine auf die rundstricknadel gelegt habe. Es scheint, meine Stricknadeln sind zu lange um ordentlich Stricken zu können. Vor allem die Rundungen an den Außenseiten der Beine spannen so sehr, dass ein stricken nicht möglich ist. Brauche ich spezielle Nadeln dafür? Meine sind 8.5cm lang. Oder gibt es einen Trick? Lg
08.01.2021 - 23:59DROPS Design answered:
Liebe Patrizia, wenn Sie die beide Beine auf die gleiche Nadel zusammenstricken, stricken Sie nicht mehr in Runde sondern in Reihen, die ersten Reihen können etwas trickig sein, deshalb benutz man eine Rundnadel, vielleicht können Sie diese ersten Reihen mit dem Nadelset noch stricken, und nach einigen Reihen mit der Rundnadel weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!
11.01.2021 - 07:45Jay wrote:
When picking up the front band, do we also pick up the 4 stitches we cast off at the beginning of the "Suit"?
01.10.2019 - 12:32DROPS Design answered:
Dear Jay, no you don't pick up stitches along these 4 stitches cast off at the beginning of the suit, but then you will sew the front band along these stitches (the side of the front band stitches) to close the bottom of the suit. Happy knitting!
01.10.2019 - 13:28Anette Jensen wrote:
Har lige strikket denne i den mindste str. Jeg brugte "kun" 250 gr (oplysning til dem der køber garn til denne) Derud over er der fejl i opskriften til sidst når du skal lukke af. Der står jeg har 144 m på pinden (rigtigt) men når jeg har taget ind til raglan (40 m ialt) og til hals (12 m ialt). Det giver 92 m tilsidst og ikke 52 som der står i opskriften. Vær venligst opmærksom på denne fejl !!
21.08.2019 - 23:19Trisha wrote:
Ok so I am at the divide at inside of leg and finish piece back and forth on needle, what exactly does that mean? Am I continuing on 2 double pointed needles? If so, wont that make 2 flaps on the leg rather than one circular leg? I am not very experienced with knitting so it may be a very easy answer and I am not smart enough to get it Haha. Please help!
23.05.2019 - 13:26DROPS Design answered:
Hi Trisha. Not at all, this isn't obvious to a beginner. You can continue with whatever needle you're using, but when you get to the end of round, cast on 1 new stitch (= edge stitch), turn and work back from the wrong side. Once you're back at the beginning, cast on a new stitch (= edge stitch), turn and work from the right side again. Continue working back and forth like this (without casting on at the end, as you only do this the first time) until piece measures 17-18-21 (24-28) cm. You will now have a small vent/split at the top of the leg. Remember to purl all stitches when working from the wrong side, so that you are still working stocking stitch. Happy knitting
23.05.2019 - 14:16Trisha wrote:
Trying to ask a question but it says I'm using forbidden words, I dont know what words I can and cant use
22.05.2019 - 02:26DROPS Design answered:
Dear Trisha, Try please to reword your question - could you please tell us in Facebook which words you were trying to use? Thank you!
22.05.2019 - 09:22Birthe Nielsen wrote:
Dejlig nem og hurtig at lave..
11.12.2018 - 19:02Duge wrote:
Merci pour ce joli modèle que j'ai réalisé 2fois
17.11.2018 - 15:03Steffi wrote:
Ich komme bei der Blende nicht weiter. Wo genau an der rechten Seite muss ich die Maschen aufnehmen?
15.11.2018 - 20:07DROPS Design answered:
Liebe Steffi, die Maschen werden am Vorderteil aufgeffast, sofort nach den 4 abgeketteten Maschen am Anfang Strampfler bis zur halsausschnitt - beim linken Vorderteil fangen Sie am Halsausschnitt bis zu den 4 abgeketteten Maschen beim Strampfler. Viel Spaß beim stricken!
16.11.2018 - 09:21Gina G wrote:
When I divide the inside leg do I cast on 1, knit the row, turn, cast on 1, purl the row, then stocking stitch until it is 25cm (3rd size)? What method of cast on 1 do you recommend?
09.02.2018 - 11:17DROPS Design answered:
Dear Gina G, you can inc 1 st at the end of each row with kfb (see video or increase 1 st by casting on 1 st at the end of next both rows using this technique. Happy knitting!
09.02.2018 - 13:34Claudia wrote:
Habe für mein erstes Enkelkind den Strampler im Herbst fertiggestellt, die Anleitung ist mega einfach und doch ist mir bei der Abnahme der Rundpasse ein Fehler passiert. Das Ausbügeln ging dann aber doch schnell und der Strampler sieht supersüss aus. Da es derzeit in meiner Familie Babys regnet bin ich nun mit dem dritten Strampler angefangen, die Mütter freuen sich. Vielen Dank für diese tolle Anleitung!
19.01.2018 - 11:42