Kiin Knowles wrote:
Hi. I love, LOVE this, but unfortunately, I can not knit, Is this by any chance have a crochet pattern? Kindly
23.09.2023 - 15:32DROPS Design answered:
Dear Kiin, we don't make custom patterns, but you can see here all of our crochet bags: https://www.garnstudio.com/search.php?action=search&unsorted=bag&mt=2&lang=en. You could try working this bag with double/ single crochets or working relief pattern and changing colours as shown. Happy crocheting!
24.09.2023 - 23:16Lily wrote:
This looks beautiful
19.06.2022 - 07:46Marianne Juhler wrote:
Hej. I skriver naturhvid både som nr. 17 og 18, men den ene er hvid i farveskalaen, så hvad mener I hvor? De 200 g er det naturhvid eller hvid?
23.04.2022 - 11:37DROPS Design answered:
Hei Marianne, Til denne vesken brukes det 2 kvaliteter, både DROPS Paris og DROPS Safran. Det brukes 200 gram DROPS PAris naturhvit farge nr 17 og det brukes 50 gram DROPS Safran naturhvit farge nr. 18 (denne fargen er litt lysere enn Paris nr. 17, men betegnes som naturhvit). Om du ser på fargekartet til både DROPS Paris og DROPS Safran vil du se at vi også har fargen hvit i begge kvalitetene (Safran farge nr. 17 hvit og Paris farge nr. 16 hvit, men disse brukes ikke i denne oppskriften). mvh DROPS Design
25.04.2022 - 11:01Anita wrote:
Her er det oppgitt for lite garn. Flere kunder og jeg har strikket denne og må supplere med 50 g Paris natur
28.03.2022 - 18:47Anna wrote:
Jakiego koloru powinna być jasna włóczka Muskat ? 18 biały czy 08 ecru? We wzorze jest pomylony numer z nazwą koloru.
05.03.2022 - 12:50DROPS Design answered:
Witaj Aniu, używamy tutaj włóczki Paris kolor 17 ecru i Safran, kolor 18 ecru, nie używamy włóczki Muskat. Pozdrawiamy!
07.03.2022 - 08:48Christina wrote:
A piece of the rainbow
17.01.2022 - 14:15AD Knits wrote:
Ribs and Tassels
14.01.2022 - 20:15Kirsty wrote:
Happy Day
14.01.2022 - 15:47Pia wrote:
Spring Bag, would be a good name
13.01.2022 - 16:35
College Campus Tote |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð taska úr DROPS Paris og DROPS Safran. Stykkið er prjónað í hring með röndum, hekluðum köntum, skúfum og axlaról.
DROPS 229-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. RENDUR: Allt stykkið er prjónað með 1 þræði DROPS Paris og 1 þræði DROPS Safran. Liturinn natur í Paris er notaður allan tíma, einungis litir í Safran er skipt út í stykkinu. RÖND 1: notið litinn eyðimerkurrós og prjónið ca 5 cm. RÖND 2: notið litinn ferskja og prjónið ca 4 cm. RÖND 3: notið litinn vanillukrem og prjónið ca 4 cm. RÖND 4: notið litinn salvíugrænn og prjónið ca 4 cm. RÖND 5: notið litinn mynta og prjónið ca 4 cm. RÖND 6: notið litinn eplagrænn og prjónið ca 4 cm. RÖND 7: notið litinn natur og prjónið ca 4 cm. MYNSTUR: UMFERÐ 1-3: Prjónið slétt UMFERÐ 4: Prjónið brugðið Endurtakið umferð 1-4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Síðan er kantur heklaður í kringum opið á töskunni, botninn er heklaður saman og heklað er í loki axlaról efst á töskuna. TASKA: Fitjið upp 102 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Paris og 1 þræði DROPS Safran, bæði í litnum natur. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan hringinn í RENDUR og MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið rendur og mynstur þar til allar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka. Prjónið 4 umferðir garðaprjón með 1 þræði í hvorri tegund í litnum natur. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Notið heklunál 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund í litnum natur. Heklið 1 umferð meðfram affellingarkantinum þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð, heklið 2 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið þræðina og festið. Leggið töskuna flata, þannig að byrjun á umferð liggur í hlið á töskunni. Heklið að lokum saman botninn á töskunni þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð, heklið síðan í gegnum ystu lykkjubogana á lykkjum þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju frá báðum hliðum samtímis = 51 fastalykkjur. Heklið síðan fram og til baka yfir 51 fastalykkjur eftir mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 þannig: Heklið A.1, heklið A.2 þar til 9 lykkjur eru eftir og heklið A.3. Klippið þræðin og festið. SKÚFUR: Festið skúfa í loftlykkjubogana neðst á töskunni þannig: Klippið 8 þræði Paris og 8 þræði Safran í litnum natur ca 20 cm. Leggið þræðina saman, þræðið þá hálfa leið í gegnum loftlykkjubogann. Vefjið þræði utan um toppinn á skúfnum og hnýtið fastan hnút. Gerið einn skúf í hvern loftlykkjuboga. AXLARÓL: Notið heklunál 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund í litnum natur. Leggið töskuna flata, byrjið þannig að axlarólin komi í hlið á töskunni og heklið þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkju, * heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* 3 sinnum og heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju = 7 fastalykkjur. Snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju (þessi kemur til viðbótar við lykkju í umferð), heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 7 fastalykkjum. Heklið svona fram og til baka þar til axlarólin mælist ca 64 cm – ATH! Axlarólin kemur til með að teygjast við notkun, þannig að betra er að gera hana aðeins of stutta en of langa. Klippið þræðina og látið þræðina vera ca 15 cm. Saumið axlarólina vel niður í gagnstæða hlið á opi. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Karen wrote:
Just finished the bag and it looks great. I love the fact that it uses both knit and crochet. I have to say that I found the instructions difficult to follow, particularly for the bottom of the bag. I’m not used to following charts and the crochet instructions were not clear without using the chart. I did sort it out buy by looking at the photo and figuring it out from there. Perhaps you could include written crochet instruction in future patterns rather than, or in addition to the chart.
20.03.2024 - 16:03