Engelien Vinken skrifaði:
Ha ha ha in feite heb ik de trui bijna af. En hij is niet lelijk. Er stonden geen nummers bij, vandaar. Volgende keer beter. Groetjes
22.10.2024 - 13:44
Engelien Vinken skrifaði:
Ohoh, ik ben toch begonnen met de verkeerde kant van het werk te breien zoals ze zich voordoen. Maar dat is dan fout.
22.10.2024 - 13:38
Engelien Vinken skrifaði:
Wordt in het telpatroon alleen de rechter naalden weergegeven?
08.10.2024 - 23:01DROPS Design svaraði:
Dag Engelien,
Nee, in de telpatronen worden alle naalden weergegeven.
10.10.2024 - 18:45
Renée Fijlstra skrifaði:
Beste meneer/mevrouw, In het patroon staat dat ik een aantal steken recht boven recht en averecht boven averecht moet breien. Wat wordt daarmee bedoeld? Is dat de ribbelsteek? Groetjes, Renée Fijlstra
13.03.2024 - 06:03DROPS Design svaraði:
Dag Renée,
Hiermee wordt bedoeld dat je rechte steken breit boven de steken die op de vorige naald ook recht waren gebreid en averecht over de steken die op de vorige naald ook averecht waren gebreid. (Dus je breit eigenlijk zoals de steken zich voordoen.)
14.03.2024 - 22:10
Renée Fijlstra skrifaði:
Beste meneer/mevrouw, Ik heb een vraag over het patroon: DROPS Design: Patroon nr. ai-283, Seafarers heart. Het gaat om deze zin: Zet 99 steken op (inclusief 4 kantsteken aan elke kant) Wordt er bedoeld dat er 2 steken aan het begin van de naald afgehaald moeten worden en aan het einde van de naald 2 recht breien? Of moet ik een kantsteek extra maken en gelijk beginnen met het patroon? In mijn geval de boordsteek. Groetjes, Renée
28.02.2024 - 15:16DROPS Design svaraði:
Dag Renée,
Nee, je zet 99 steken op in totaal en daar zitten de kantststeken bij in. Je hoeft dus geen extra steken te maken of steken eraf te halen.
28.02.2024 - 20:18
Margaretaqn skrifaði:
Novost
17.11.2023 - 09:40
Evarda skrifaði:
Med
15.11.2023 - 08:54
Robebl skrifaði:
Novost
14.11.2023 - 19:28
Eldardom skrifaði:
Coin
12.11.2023 - 09:35
Karen Hayden skrifaði:
Can this be knitted with 4ply yarn ? How many skeins would it require?
30.10.2023 - 17:25DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hayden, DROPS Air is a worsted yarn - ,read more here; you can use a 4ply yarn (= yarn group A) but you should then use 2 strands of yarn; use the yarn converter to see the alternatives and the new amount of yarn. Happy knitting!
30.10.2023 - 18:20
Seafarers Heart#seafarersheartsweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-10 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 10 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 2,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 1. og aðra hverja lykkju og aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman þar sem prjónað er brugðið, eða 2 lykkjur slétt saman þar sem prjónað er slétt. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að ermakúpu. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka frá miðju ofan á öxl. BAKSTYKKI: Fitjið upp 99-107-115-123-139-147 lykkjur (meðtaldar 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið nú stroff þannig: 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-16-20-24-32-36 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 16 lykkjur, A.2 yfir næstu 31 lykkjur, A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12-16-20-24-32-36 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram svona fram og til baka og endurtakið fyrstu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 5 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið nú næstu 2 umferðir í A.1, A.2 og A.3 og prjónið eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar umferð með stjörnu hefur verið prjónuð til loka, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 10-14-18-18-26-30 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-5-5-5-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (= 6-9-13-13-18-22 lykkjur sléttprjón), brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur yfir næstu 4-4-4-8-8-8 lykkjur, prjónið síðan mynstur A.1, A.2 og A.3, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 4-4-4-8-8-8 lykkjur, sléttprjón yfir næstu 10-14-18-18-26-30 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-5-5-5-8-8 lykkjur jafnt yfir (= 6-9-13-13-18-22 lykkjur sléttprjón), 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, eru 95-101-109-117-127-135 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.4 yfir A.1, A.5 yfir A.2 og A.6 yfir A.3. Lykkjur sem eru eftir, eru prjónaðar eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, endurtakið mynstur á hæðina. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-4-5-6-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-2-3-4 sinnum = 83-87-89-93-97-101 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 26-28-29-30-32-34 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 31-31-31-33-33-33 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá 31-31-31-33-33-33 lykkjur til 23-23-23-25-25-25 lykkjur – sjá ÚRTAKA-2 (= 8 lykkjur færri), prjónið eins og áður yfir næstu 26-28-29-30-32-34 lykkjur = 75-79-81-85-89-93 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 23-23-23-25-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 25-27-28-29-31-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm (handvegur mælist 21-22-23-24-25-26 cm). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 21-23-24-25-27-29 lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið mynstur á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 31-33-34-35-37-39 lykkjur, prjónið eins og áður yfir næstu 21-21-21-23-23-23 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá 21-21-21-23-23-23 lykkjur til 13-13-13-15-15-15 lykkjur – munið eftir ÚRTAKA-2 (= 8 lykkjur færri), setjið 13-13-13-15-15-15 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðustu 31-33-34-35-37-39 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan axlir til loka hvora fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið síðan lykkjur af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 25-27-28-29-31-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm (handvegur mælist ca 21-22-23-24-25-26 cm). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 21-23-24-25-27-29 lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama átt. ERMI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-72 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-9-11-10-12-14 lykkjur jafnt yfir = 50-51-53-54-56-58 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 9-9-9-9-8-8 cm, aukið út um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 5-4½-3½-3-3-2½ cm millibili alls 7-8-9-10-10-11 sinnum = 64-67-71-74-76-80 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-43-42-40-38-36 cm. Prjónið nú áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: Fækkið um 4-4-5-6-6-7 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-2-1-1 sinni, 1 lykkju 0-0-3-4-7-9 sinnum, 2 lykkjur 3-3-2-2-2-2 sinnum og 4-4-4-3-3-2 lykkjur 1 sinni = 28-31-31-32-32-32 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 50-50-51-50-50-50 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermum. Saumið hliðarsaum í ystu lykkjuna þannig að saumurinn verður flatur – byrjið undir ermi og saumið niður þar til ca 17 cm eru eftir (= klauf). Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt ofan á öxl með Air og stuttum hringprjón 4,5 og prjónið upp 72-80 lykkjur frá réttu í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið uppá stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seafarersheartsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.