Nina Wiggen Skaret skrifaði:
Leser i kommentarene her at vi er flere som sliter med å få vrangborden til å stemme, så noen må sjekke hva som er feil. oppskriften har helt klart flere masker enn det som man legger opp til
20.11.2020 - 22:36
Nina Wiggen Skaret skrifaði:
Hei, jeg har lagt opp vrangborden i størrelse XXL med 152 masker og har statet å følge mønsteret, men når mønsteret skal gjentas står jeg igjen med 16 masker når jeg har kommet rundt. Har fulgt oppskriften nøye et par ganger og får det ikke til å stemme.
20.11.2020 - 22:22
Gerd Fjesme Iversen skrifaði:
Jeg har lagt opp til denne genseren i small, men oppskriften har flere masker enn masker hva jeg har lagt opp. Hva gjørs jeg feil, eller er oppskriften feil? Takknemlig for et raskt svar.
14.11.2020 - 14:14DROPS Design svaraði:
Hei Gerd, Vrangborden i denne oppskriften er lang og litt komplisert. Det er nok lurt å tikke av hver gang du er ferdig med rett og vrang på første omgangen (og kanskje noen omganger til) slik at det blir riktig. Det er korrekt antall masker (120) lagt opp i forhold til oppskriften. God fornøyelse!
18.11.2020 - 10:37
Diana skrifaði:
Habe diesen Pullover mit 8er Nadeln und dicker Alpaka-Wolle gestrickt und soeben den letzten Faden vernäht - jetzt kann der WINTER kommen :-). Ein echtes Kuschelteil :-). Tolles Zopfmuster, wenig Näharbeiten, ruckzuck fertig.
06.11.2020 - 14:48
Anki Edström skrifaði:
Fin tröja..men hur jag än gör blir maskantalet fel i resåren . Vart i resåren är mitt fram och mitt bak.. \r\nFörsöker göra en M. Har man mitten inskrivet i resåranvisningen är det enklare att tyda resåren som är ganska rörigt skriven. \r\n\r\ntack för alla fina mönster
22.10.2020 - 19:58
Rose Drouin-Cyr skrifaði:
C'est exactement le projet que je cherchais pour cet automne! J'ai hâte :D
25.08.2020 - 18:49
Nathalie skrifaði:
Magnifique !!!!
05.08.2020 - 16:53
Birch Grove#birchgrovesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með köðlum og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-34 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. LEIÐBEININGAR: Þegar fellt er af fyrir handvegi á fram- og bakstykki, er mikilvægt að fella ekki af í oddatölu í mynsturteikningu. Þetta er gert til að þurfa ekki að snúa kaðli frá röngu þegar stykkið er prjónað áfram fram og til baka. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Lykkjur eru felldar af fyrir handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram handvegi fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður til loka. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120-120-136-136-152-168 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið *-* yfir næstu 4-4-8-8-12-16 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið *-* yfir næstu 8-8-16-16-24-32 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið *-* yfir næstu 4-4-8-8-12-16 lykkjur, 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 6 cm, prjónið áfram þannig (skiptið yfir á hringprjón 8): Sléttprjón yfir fyrstu 5-5-9-9-13-17 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 3-5-7-10-13-16 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.1 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 18 lykkjur) yfir næstu 10 lykkjur, JANFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 10-10-18-18-26-34 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 6-10-14-20-26-32 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, A.1 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, prjónið A.2 (= 18 lykkjur) yfir næstu 10 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, A.3 (= 8 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 5-5-9-9-13-17 lykkjur, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 3-5-7-10-13-16 lykkjur = 128-136-144-156-168-180 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið núna af fyrir handvegi, stillið af að næsta umferð sé umferð í oddatölu í A.1, A.2 og A.3 – sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur fyrir handvegi, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 60-64-68-74-80-86 lykkjur, fellið af 4 lykkjur fyrir handvegi, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 60-64-68-74-80-86 lykkjur og fellið af þær 2 lykkjur sem eftir eru fyrir handvegi. Klippið frá. Bakstykki og framstykki er nú prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka. BAKSTYKKI: = 60-64-68-74-80-86 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir 18 lykkjur í A.2 = 52-56-60-66-72-78 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru felldar af miðju 16-18-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 17-18-20-23-25-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 60-64-68-74-80-86 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir 18 lykkjur í A.2 = 52-56-60-66-72-78 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru miðju 10-12-12-12-14-14 lykkjurnar settar á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 17-18-20-23-25-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaum innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handvegi á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í handvegi í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 40-42-44-46-48-50 lykkjur innan við 1 lykkju á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-6-5½-6-5-5 cm millibili alls 6-7-8-7-8-7 sinnum = 28-28-28-32-32-36 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 46-45-44-42-41-39 cm, (nú er ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 7 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 50-49-48-46-45-43 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina alveg eins. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu, ca 40 til 52 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í ca 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsi innan á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn verði teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #birchgrovesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.