Lene Surel Ehlers skrifaði:
Jeg er ved at "kæmpe" mig gennem Columns of Valhalla Jacket. Er kommet til ærmerne. Her står bl.a., at: Når ærmet måler 11-10-10-7-11-8 cm, tages der 1 maske ud på hver side af mærketråden . Dette lyder helt forkert for mig. Det er det første ærme jeg er i gang med. Hvordan skal jeg forstå disse tal?? Hvorfra er ærmet målt? Jeg strikke i en XL, dvs at jeg skal strikke ærmet og når det måler 7 cm, skal der tages ind. ???
11.03.2021 - 13:06DROPS Design svaraði:
Hej Lene, jo men det stemmer, når ærmet måler 7 cm (fra du slog op) tager du ud midt under ærmet på hver side af mærket og det gør du på hver 2. cm 17 gange. God fornøjelse!
12.03.2021 - 09:03
Jeanett skrifaði:
Es ist leichter, wenn man mit dem li Vorderteil beginnt, die Seite ohne Knopflöcher. Man kann beim re Vorderteil genau gucken, wo man die Knopflöcher in gleichmäßigen Abständen setzt. Bei den Vorderteilen in Größe L hat sich ein Fehler eingeschlichen: Die Zopfmuster A4 u. A5 werden im Text mit 13 Maschen statt mit 12 Maschen angegeben und 9 statt 10 als Rest??: \"...und dabei gleichzeitig 3 Maschen gleichmäßig verteilt über dem Zopf abnehmen (d.h. über A.4, die 12-12-13
19.02.2021 - 18:33
Jeanett skrifaði:
Bei so viel Strickmuster wäre es sehr angenehm, wenn man auch ein Foto der Rückenseite dieser schönen Strickjacke sehen könnte. Liebe Strickgrüße!
13.02.2021 - 20:05
Marion skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas le départ des côtes du dos. On a 141m, on doit faire 21m d'une façon, 90 d'une autre et encore 21, ça me donne 132! J'aurai besoin d'aide s'il vous plaît. Cordialement Marion
17.01.2021 - 17:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Marion, tricotez les 141 m ainsi: 3 m point mousse, 21 m en côtes (= 3 mailles endroit, 4 mailles envers), 90 m du diagramme A.1 (= 3 x 30 mailles), 21 m en côtes (= 3 mailles endroit / 4 mailles envers) , 3 m endroit et 3 m point mousse = 3+21+90+21+3+3=141 m. Bon tricot!
18.01.2021 - 10:05
Lene Surel Ehlers skrifaði:
Havde ønsket, at knaphullerne var sat ind der, hvor man strikker højre side af trøjen og ikke for sig selv, på siden "Forklaring til opskriften". På modellen ses kun en ganske lille prik, som indikerer et knaphul. Det er ikke tydeligt nok. Knaphullerne er en del af højre side, altså skal det også indgå der.
17.01.2021 - 09:12
Lene Surel Ehlers skrifaði:
Hej. Hvor finder jeg målskema til ovennævnte opskrift? Jeg vil strikke den i XXXL. Hvor meget garn i Drops Alaska, på rundpinde 6.0 samt 5.5 mm, skal jeg bruge? Jeg strikker meget fast. Har lagt en ordre ind, den ligger i venteposition, da jeg mangler oplysninger om mål og mængder af DROPS ALASKA. Hører gerne hurtigt fra jer. På forhånd mange tak. Hej fra Lene
28.12.2020 - 12:27DROPS Design svaraði:
Hej Lene, Du finder både garnforbrug og mål i opskriften her på nettet. Til XXXL skal du bruge 1200 g og aller nederst i opskriften (under diagrammerne) finder du målene på trøjen. God fornøjelse!
07.01.2021 - 13:18
Benedicta skrifaði:
Me encantan los ochos, la cenefa vertical en punto bobo que recoge muy bien los delanteros, e incluso el color.
06.06.2020 - 10:29
Carine skrifaði:
Très joli gilet
06.06.2020 - 02:42
Nicola Vaughan skrifaði:
Mables cables
04.06.2020 - 18:31
Columns of Valhalla Jacket#columnsofvalhallajacket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með axlarsæti, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-16 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3, A.4 og A.5). A.1 á við um stærð XL, XXL og XXXL. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 4,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki komi gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist ca: S: 7, 16, 26, 35 og 45 cm. M: 7, 17, 27, 37 og 47 cm. L: 6, 14, 23, 31, 40 og 48 cm. XL: 5, 14, 23, 32, 41 og 50 cm. XXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 51 cm. XXXL: 6, 15, 25, 34, 44 og 53 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 107-121-135-141-141-155 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir (= 7-11-14 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 87-87-87 lykkjur og fækkið jafnframt um allar 4 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni einingu (= 12-12-12 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur garðaprjón = 95-103-109 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Stærð XL, XXL og XXXL: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 21-21-28 lykkjur, A.1 yfir næstu 90 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 30 lykkjum), stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 21-21-28 lykkjur, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir (= 15-19-24 lykkjur), 3 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 87-87-87 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (þ.e.a.s. allar 4 lykkjur brugðið er fækkað til 3 lykkjur brugðið og allar 5 lykkjur brugðið er fækkað til 4 lykkjur brugðið = 12-12-12 lykkjur færri), 3 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir (= 15-19-24 lykkjur), 3 lykkjur garðaprjón = 117-125-135 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Allar stærðir: Nú er mynstrið prjónað þannig: 3 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, * A.2, A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) *, prjónið frá *-* 3 sinnum, A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-3-3-3 sinnum (= 7-10-12-15-18-21 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið) = 81-83-85-87-89-93 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir miðju 75-75-75-81-81-81 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið og þær lykkjur sem eftir eru í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2-3-4-2-3-5 lykkjur sléttprjón á milli mynstra fyrir miðju og kantlykkja í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (handvegur á nú að mælast 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem affelling fyrir hálsmáli byrjar), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir slétta lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð og fækkið jafnframt um 22 lykkjur jafnt yfir einingar með sléttum lykkjum í stóru köðlunum, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 59-61-63-65-67-71 lykkjur. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-67-74-77-77-84 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 45-45-45 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju brugðið í hverri brugðinni einingu (= 6 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur garðaprjón = 54-58-61 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Stærð XL, XXL og XXXL: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 14 lykkjurnar, 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, (4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) yfir næstu 21-21-28 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Halið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 48-48-48 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju brugðið í hverri brugðinni einingu (= 6 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur garðaprjón = 65-69-74 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Allar stærðir: Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.4 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjurnar, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 21-21-21-23-23-23 lykkjur, A.2 yfir næstu 3 lykkjurnar, sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu fyrir handveg þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-3-3-3 sinnum = 47-48-49-50-51-53 lykkjur. Haldið áfram með mynstur frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, mynstur eins og áður yfir næstu 39-39-39-42-42-42 lykkjur, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir (= 2-3-4-2-3-5 lykkjur sléttprjón á milli mynsturs fyrir miðju og kantlykkju í garðaprjóni), 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 12-12-13-13-14-14 lykkjur og fækkið jafnframt um 3 lykkjur jafnt yfir kaðal (þ.e.a.s. A.4 og 12-12-13-13-14-14 lykkjur hafa nú fækkað til 9-9-10-10-11-11 lykkjur), setjið þessar 14-14-15-15-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, prjónið síðustu 30-31-31-32-32-34 lykkjurnar í umferð eins og áður. Haldið áfram fram og til baka með mynstur og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni = 25-26-26-27-27-29 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (handvegur á nú að mælast 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem affelling fyrir handveg byrjar). Prjónið 1 umferð með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir einingu með sléttum lykkjum = 17-18-18-19-19-21 lykkjur. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-67-74-77-77-84 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón (3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 45-45-45 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 1 lykkju brugðið í hverri brugðinni einingu (= 6 lykkjur færri), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 54-58-61 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Stærð XL, XXL og XXXL: Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, (3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 21-21-28 lykkjurnar, 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 14 lykkjurnar, 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Halið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 5 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 48-48-48 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju brugðið í hverri brugðinni einingu (= 6 lykkjur færri), 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 65-69-74 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Allar stærðir: Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, A.3 yfir næstu 21-21-21-23-23-23 lykkjur, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu fyrir handveg þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkju 1-1-2-3-3-3 sinnum = 47-48-49-50-51-53 lykkjur. Haldið áfram með mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir næstu 2-3-4-2-3-5 lykkjurnar, mynstur eins og áður yfir næstu 39-39-39-42-42-42 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið þar til eftir eru 17-17-18-18-19-19 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 12-12-13-13-14-14 lykkjur og fækkið jafnframt um 3 lykkjur jafnt yfir lykkjur í kaðli (þ.e.a.s. A.5 og 12-12-13-13-14-14 lykkjur hafa nú fækkað til 9-9-10-10-11-11 lykkjur), prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Snúið og prjónið fyrstu 14-14-15-15-16-16 lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina eins og áður. Haldið áfram fram og til baka með mynstur og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni = 25-26-26-27-27-29 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (handvegur á nú að mælast 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem affelling fyrir handveg byrjar). Prjónið 1 umferð með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir einingu með sléttum lykkjum = 17-18-18-19-19-21 lykkjur. Fellið af. HÆGRI ERMI: Fitjið upp 46-52-52-58-58-58 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið síðan stroff þannig: (3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) yfir næstu 12-18-18-24-24-24 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 28 lykkjur, 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 15-21-21-27-27-27 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 1-5-1-7-7-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 31 lykkjur og fækkið lykkjum mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Fækkið um 1 lykkju brugðið í hverri og einni af 4 brugðnu einingum (= 4 lykkjur færri). Stærð XL, XXL og XXXL: Fækkið um 1 lykkju brugðið í 2 miðju brugðnu einingum (= 2 lykkjur færri). Nú eru 41-43-47-49-49-51 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt. Setjið eitt prjónamerki hér (= mitt undir ermi og þetta er núna byrjun á umferð). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið nú mynstur þannig: 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 21-21-21-23-23-23 lykkjur, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn. Þegar ermin mælist 11-10-10-7-11-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 16-16-16-17-19-21 sinnum = 73-75-79-83-87-93 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 46-45-45-43-43-41 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi fyrir handveg (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 65-67-69-73-75-81 lykkjur. Prjónið síðan ermina fram og til baka. Prjónið mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í byrjun á hverri umferð er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið. Fellið af 3 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 7-6-5-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-4-4-7-8-9 sinnum (= alls 18-19-20-21-22-25 lykkjur felldar af í hvorri hlið) = 29-29-29-31-31-31 lykkjur. Ermin mælist ca 9-11-11-13-14-16 cm frá þar sem felldar voru af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 10-11-11-12-12-13 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 23-23-23-25-25-25 lykkjur og prjónið jafnframt 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir fyrstu 14 lykkjur slétt í A.3 (= 7 lykkjur færri), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 4 lykkjur = 21-21-21-23-23-23 lykkjur. Snúið og prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Snúið og fellið af fyrstu 16-16-16-18-18-18 lykkjur og setið eitt prjónamerki í lok umferðar (prjónamerkið merkir hvora hlið á ermi á síðar að setja saman við bakstykkið í lokin). Prjónið síðan fram og til baka með A.2 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið yfir 5 lykkjur í umferð þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 73-75-76-77-78-79 cm. VINSTRI ERMI: Prjónið vinstri ermi alveg eins, nema þegar ermakúpan hefur verið gerð til loka og ermin mælist 19-22-22-25-26-29 cm frá þar sem felldar voru af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir síðustu 23-23-23-25-25-25 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir síðustu 14 lykkjur í A.3 (= 7 lykkjur færri) = 21-21-21-23-23-23 lykkjur. Snúið og fellið af fyrstu 16-16-16-18-18-18 lykkjurnar og setjið eitt prjónamerki í lok umferðar (prjónamerkið merkir hvora hlið á ermi á síðar að setja saman við bakstykkið í lokin) = 5 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með A.2 og 1 kantlykkju í hvorri hlið yfir 5 lykkjur þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 73-75-76-77-78-79 cm. FRÁGANGUR: Saumið ermar í við framstykkin og bakstykkið innan við 1 kantlykkju garðaprjón / affellingarkantinn þannig: Saumið niður aðra ermina í bakstykkið með því að sauma sauminn frá handveg og upp meðfram öxl að miðju aftan á bakstykki. Endurtakið á hinni erminni og endið með að sauma saman affellingarkantana á ermum (= síðustu 5 lykkjurnar sem felldar voru af á ermum) mitt að aftan. Saumið niður vinstri ermina við vinstra framstykki frá handveg og upp meðfram öxl við hálsmál. Endurtakið á hægri ermi og hægra framstykki. Saumið í ystu lykkjubogana niður meðfram hliðarsaumi þar til eftir eru ca 17 cm (= klauf). TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 83 til 95 lykkjur frá réttu með Alaska og hringprjón 4,5 í kringum hálsmál – meðtaldar lykkjur af þræðum á framstykkjum og bakstykki. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 6 + 5. Prjónið stroff með fyrstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, 3 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist 10-11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrr að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #columnsofvalhallajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.