DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bending Willows

Prjónuð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 217-32
DROPS Design: Mynstur pu-048
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-500-600-650-700 g litur 07, ljós grár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1a og A.1b). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 19 lykkjur), mínus 1 kantlykkja í hvorri hlið (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 4,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrstu af 3 merkiþráðum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði mitt undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að næsta merkiþræði, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 4 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og prjónað er ofan frá og niður. Stykkin eru saumuð saman í lokin. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er ermin prjónuð í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Að lokum er kantur í hálsmáli prjónaður í hring á stuttan hringprjón.

FRAMSTYKKI:
Hægri öxl:
Fitjið upp 19-22-24-26-28-31 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Puna og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 23-26-28-30-32-35 lykkjur. Í næstu umferð (frá réttu) er mynstrið prjónað þannig:
1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2-3-4-6-8-10 lykkjur sléttprjón, 3-5-6-7-7-8 lykkjur brugðið, A.1a (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 17-17-17-16-16-16 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Í 7.-7.-7.-9.-9.-9. umferð í mynsturteikningu byrjar útaukning fyrir hálsmáli. Fitjið upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig (útauknar lykkjur eru teiknaðar inn í mynsturteikningu): Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-1-1-1 sinni og 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 6-6-6-7-7-7 lykkjur fleiri fyrir hálsmáli + 3 lykkjur fleiri í mynsturteikningu). Þegar síðustu 2 lykkjurnar hafa verið fitjaðar upp, er eftir 1 umferð í mynsturteikningu. Klippið frá og geymið stykkið (síðasta umferðin í mynsturteikningu er prjónuð síðar þegar hægri og vinstri öxl eru settar saman). Nú eru 32-35-37-40-42-45 lykkjur fyrir hægri öxl.
Vinstri öxl:
Fitjið upp 19-22-24-26-28-31 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Puna og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar er út 4 lykkjur jafnt yfir = 23-26-28-30-32-35 lykkjur. Í næstu umferð (frá réttu) er mynstrið prjónað þannig: A.1b (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 17-17-17-16-16-16 lykkjur, 3-5-6-7-7-8 lykkjur brugðið, 2-3-4-6-8-10 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón. Í lok 6.-6.-6.-8.-8.-8. umferð í mynsturteikningu byrjar útaukning fyrir hálsmáli. Fitjið upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu þannig (útauknar lykkjur eru teiknaðar inn í mynsturteikningu): Fitjið upp 1 lykkju 2-2-2-1-1-1 sinni og 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 6-6-6-7-7-7 lykkjur fleiri fyrir hálsmáli + 3 lykkjur fleiri í mynsturteikningu). Þegar síðasta umferð í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka (nú eru 32-35-37-40-42-45 lykkjur á prjóni fyrir vinstri öxl), fitjið upp 16-16-16-16-16-16 lykkjur á prjóninn fyrir hálsmáli, síðan er prjónuð síðasta umferð í A.1a (frá röngu) yfir fyrstu 26-26-26-26-26-26 lykkjur á hægri öxl, síðan er prjónað eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru = 80-86-90-96-100-106 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 5-8-10-13-15-18 lykkjur, A.2a yfir næstu 34 lykkjur, A.2b yfir næstu 34 lykkjur, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 5-8-10-13-15-18 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka (aukið út um 2 lykkjur í A.2a og 2 lykkjur í A.2b) = 84-90-94-100-104-110 lykkjur.
Þegar handvegur mælist 17-18-18-19-19-19 cm, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 1 lykkju 1-1-2-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni og 3-4-4-5-6-6 lykkjur 1 sinni = 92-100-106-114-124-132 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. Héðan er nú mælt.
Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.2a og A.2b hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynstrið prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 9-13-16-20-25-29 lykkjur, A.3a yfir næstu 11 lykkjur, A.3b yfir næstu 50 lykkjur, A.3c yfir næstu 11 lykkjur, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 9-13-16-20-25-29 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá prjónamerki. Ef stykkið mælist styttra en þetta áður en A.3a til A.3c hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið áfram með A.4 yfir miðju 50 lykkjur í umferð og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru að réttu máli.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-18-20-20-22 lykkjur jafnt yfir = 104-114-124-134-144-154 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff frá réttu þannig:
1 kantlykkja garðaprjón, stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka með stroffi. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl:
Fitjið upp 19-22-24-26-28-31 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Puna og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir = 23-26-28-30-32-35 lykkjur. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 2-3-4-6-8-10 lykkjur sléttprjón, 3-5-6-7-7-8 lykkjur brugðið, A.1a (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 17-17-17-16-16-16 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 7. Umferð hefur verið prjónuð til loka. Í lok þessarar umferðar er fitjuð upp 1 ný lykkja (= við háls) = 24-27-29-31-33-36 lykkjur. Klippið frá og geymið stykkið.
Hægri öxl:
Fitjið upp 19-22-24-26-28-31 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði Puna og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir = 23-26-28-30-32-35 lykkjur. Í næstu umferð (frá réttu) er mynstrið prjónað þannig: A.1b (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir fyrstu 17-17-17-16-16-16 lykkjurnar, 3-5-6-7-7-8 lykkjur brugðið, 2-3-4-6-8-10 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar 6. umferð hefur verið prjónuð til loka, fitjið upp 1 lykkju í lok þessarar umferðar (= við háls) = 24-27-29-31-33-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið eins og áður yfir lykkjur á hægri öxl, prjónið nýju lykkjuna slétt (séð frá röngu), fitjið upp 26-26-26-28-28-28 lykkjur fyrir hálsmái, prjónið inn lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn frá röngu þannig:
Prjónið fyrstu lykkjuna slétt (séð frá röngu), prjónið næstu umferð í A.1a og áfram eins og áður út umferðina. Nú eru 74-80-84-90-94-100 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður og prjónið brugðið (séð frá réttu) yfir lykkjurnar sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli. Kaðall hvoru megin við hálsmál færast inn að miðju að aftan eins og útskýrt er í A.1a og A.1b (útaukning sem er teiknuð í mynsturteikningu við háls á ekki við um bakstykki). Þegar A.1a og A.1b hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 3 lykkjur í hverri mynsturteikningu og það eru 80-86-90-96-100-106 lykkjur í umferð. Prjónið síðan afgang af bakstykki á sama hátt og á framstykki. Þ.e.a.s. mynstur er prjónað alveg eins (auknar er út 2 lykkjur í A.2a og 2 lykkjur í A.2b) = 84-90-94-100-104-110 lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-18-19-19-19 cm, fitjið upp lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 92-100-106-114-124-132 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og stroff á sama hátt og á framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 24-26-26-28-28-30 lykkjur með 1 þræði Puna og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir) á hringprjón 5,5. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka og fitjaðar eru upp lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 5-5-6-6-4-4 sinnum, 1 lykkja 0-0-0-0-3-4 sinnum, 2 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni og 3-4-4-5-6-6 lykkjur 1 sinni = 50-54-58-62-66-70 lykkjur. Prjónið síðan ermi hringinn á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Setjið einn merkiþráð mitt undir ermi (= mitt á milli 6-4-4-10-12-12 lykkja undir ermi = 3-4-4-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 44-48-52-56-60-64 lykkjur.
Þegar ermin mælist 21-21-21-20-18-16 cm, setjið 1 nýjan merkiþráð eftir 12 lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn mitt undir ermi (= 3 merkiþræðir undir ermi). Í næstu umferð byrjar útaukning undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-4-4-5-5-5 cm millibili, alls 5-4-4-3-3-3 sinnum = 64-64-68-68-72-76 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist 48-47-46-44-43-41 cm. Prjónið 1-1-2-2-0-1 lykkjur slétt, prjónið * 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 43-43-46-46-48-51 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-8-11-11-8-11 lykkjur jafnt yfir = 30-35-35-35-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 57-56-56-55-55-54 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við uppfitjunarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við uppfitjunarkantinn / 1 kantlykkja garðaprjón. Saumið síðan hliðarsauminn frá handveg og niður innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Endurtakið í hinni hliðinni.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 80-88 lykkjur með stuttum hringprjóni 4,5 og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir), innan við 1 kantlykkju í kringum háls. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.05.2022
Nýtt efnismagn: DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A) 100-100-125-125-150-150 g litur 01, natur

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 5 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 5 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 5 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = þessi lykkja er ekki til þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður í stykkinu, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu.

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjóninn framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 5 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Pam wrote:

If I want to use just one strand of yarn, what yarn would you recommend and how many yards would be required to knit the XL size?

05.09.2023 - 18:04

DROPS Design answered:

Dear Pam, you can use 1 strand yarn group C - remember (as always) to e check and keep your tension. Calculate the total amount of yarn required for the shortest yarn (Puna and Kid-Silk here) and divide it by the meterage of yarn choosen. Your DROPS store can help you, even per mail or telephone if you need more individual assistance. Happy knitting!

06.09.2023 - 08:51

country flag Nicoletta Zonca wrote:

Salve, non capisco, nel dietro, negli schemi A1 a e b nel 5 e 7 ferro sembrerebbe ci siano degli aumenti che non vengono conteggiati nella descrizione...\r\nPotreste aiutarmi?\r\nVi ringrazio anticipatamente e buona giornata

28.03.2023 - 11:35

DROPS Design answered:

Buonasera Nicoletta, i quadratini neri non sono maglie, ma quando lavora i gettati c'è un quadratino nero in meno sul ferro successivo. Buon lavoro!

28.03.2023 - 22:10

country flag Josephine wrote:

I was knitting this in a size M, and experienced that I was missing just a bit of the Kid-Silk (for end of one sleeve and neck line). Please, note that others have also experienced this in the smaller sizes as far as I can read from the other comments. Also, the metres do not seem to correspond 500 g Puna = ~1100 m , while 100 g Kid-Silk = ~800 m (However, I have Puna in excess)

28.05.2022 - 16:10

country flag Josephine wrote:

Hej, Jeg er lidt begynder og har svært ved starten. Jeg strikker 1 p vr (28m). Dernæst mønster: retp: 1 r kant, 4m r, 6m v, a1.a, hvordan strikkes næste p (vr p)? Tak på forhånd!

03.05.2022 - 21:52

DROPS Design answered:

Hej Josephine, den næste pind strikkes således fra vrangen: 17 m A.1a (modsat vej i diagrammet), 6 ret, 4 vrang, 1kantmaske ret. God fornøjelse!

04.05.2022 - 10:29

country flag Ulla-Karin Löjdquist wrote:

Hej! Jag stickar bensin willows och kommit till ärmen. Jag förstår inte instruktionen från 21 cm (xs) varför skall jag sätta markörer efter 12 maskor på vardera sida? Hur gör jag ökningarna? Öka med 3 cm (xs) mellanrum, är det på höjden så när alla ökningarna är gjorda så möter arbetet 36 cm (xs)? Men hur många maskor skall jag öka med?

29.04.2022 - 12:41

DROPS Design answered:

Hej Ulla-Karin. Det står under ÖKNINGSTIPS hur du ska öka: Sticka tills det återstår 1 maska före den första av de 3 markeringstrådarna, gör 1 omslag om stickan, sticka tills det återstår 1 maska före markeringtråden mitt under ärmen, gör 1 omslag om stickan, sticka 2 rätmaskor (markeringstråden sitter mitt emellan dessa 2 maskorna), gör 1 omslag om stickan, sticka rätmaskor fram till nästa markeringstråd, 1 rätmaska, gör 1 omslag om stickan = 4 maskor ökade. På nästa varv stickas omslagen vridet räta så att det inte blir hål. Sedan stickas de nya maskorna i slätstickning. Du ökar så med 3 cm mellan rum totalt 5 gånger. Mvh DROPS Design

29.04.2022 - 13:48

country flag Susan wrote:

Hi, when knitting sleeves for xs, once you cast on 24 stitches, do you start increases right away (so essentially cast on 26 stitches to start, the extra 2 being the first increase)? Or are there rows before increases? Also, when it says increase 1 stitch 0 times, do you knit a row without increases or skip the row entirely? Thanks! Susan

18.03.2022 - 00:24

DROPS Design answered:

Hi Susan, It is a good idea to work one row (purl from the wrong side) before starting to increase. The cast-on stitches are not part of the increase. If it says increase 1 stitch 0 times this means you work the row(s) without increases, don't skip the row(s). Happy knitting!

18.03.2022 - 07:04

country flag Jan wrote:

I am now working on the back left shoulder of 217-32(size S) and have 2 queries.The pattern says to increase 1st at the end of the 7th row giving 27 sts in total but what about the 3 st increases in the diagramA1a at rows 5 and 7? Also the pattern states that the cast on stitch is at the neck edge but it seems to me the opposite is true.Please tell me where I am going wrong

16.02.2022 - 15:02

DROPS Design answered:

Dear Jan, neckline on back piece is less deep, reason why you work less rows in A.1a/b - just work as explained and then you will join shoulders together and work A.1a and A.1b to the end (without casting on new stitches in diagram that will have already cast on). Happy knitting!

16.02.2022 - 16:33

country flag Jan wrote:

Re 217-32 - left shoulder instructions - I feel sure I am correct in saying that 3 stocking stitch stitches have been omitted from the end of the rows before the garter stitch.

12.02.2022 - 10:54

DROPS Design answered:

Dear Jan, which size are you working? Can you tell us more so that our designer can check? Thanks for your help!

14.02.2022 - 09:34

country flag Jan wrote:

I am attempting to knit 217-32 and trying to understand the instructions for the rt shoulder where it says to cast on at the end of every rt side row from row 7 of the diagram.Yet the diagram A1b seems to show the cast on stitches at the beginning of the rt side rows . What am I getting wrong?

07.02.2022 - 11:42

DROPS Design answered:

Dear Jan, on the right shoulder front piece you will work A.1a, not A.1b - starting with 1st row = RS, you will cast on new stitches at the end of 7th row (= from RS too). On left shoulder, you will work A.1b and cast off at the end of row from WS. Can this help?

07.02.2022 - 15:38

country flag Jan wrote:

I intend to knit this in beige but am uncertain as to the shade of kid silk to use and would appreciate your advice

05.01.2022 - 12:17

DROPS Design answered:

Dear Jan, please contact your DROPS store for any individual assistance choosing the best matching colour - they will help you even per mail or telephone. Happy knitting!

05.01.2022 - 16:48