DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Columns of Valhalla

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með axlarsæti, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-15
DROPS Design: Mynstur x-454
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
750-800-900-1000-1100-1200 g litur 63, perlugrár

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). A.1 á við um stærð XL, XXL og XXXL.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 4,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki komi gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 107-121-135-141-141-155 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, M og L:
Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir (= 7-11-14 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 87-87-87 lykkjur og fækkið jafnframt um allar 4 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni einingu (= 12-12-12 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur garðaprjón = 95-103-109 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.

Stærð XL, XXL og XXXL:
Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 21-21-28 lykkjur, A.1 yfir næstu 90 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 30 lykkjum), stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 21-21-28 lykkjur, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir (= 15-19-24 lykkjur), 3 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 87-87-87 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (þ.e.a.s. allar 4 lykkjur brugðið er fækkað til 3 lykkjur brugðið og allar 5 lykkjur brugðið er fækkað til 4 lykkjur brugðið = 12-12-12 lykkjur færri), 3 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir (= 15-19-24 lykkjur), 3 lykkjur garðaprjón = 117-125-135 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið.

Allar stærðir:
Nú er mynstrið prjónað þannig: 3 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, * A.2, A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) *, prjónið frá *-* 3 sinnum, A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-3-3-3 sinnum (= 7-10-12-15-18-21 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið) = 81-83-85-87-89-93 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir miðju 75-75-75-81-81-81 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið og þær lykkjur sem eftir eru í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2-3-4-2-3-5 lykkjur sléttprjón á milli mynstra fyrir miðju og kantlykkja í garðaprjóni).
Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (handvegur á nú að mælast 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem affelling fyrir hálsmáli byrjar), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir slétta lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð og fækkið jafnframt um 22 lykkjur jafnt yfir einingar með sléttum lykkjum í stóru köðlunum, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 59-61-63-65-67-71 lykkjur. Fellið af.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 107-121-135-141-141-155 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff og mynstur alveg eins og á bakstykki. Þegar ermin mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki = 81-83-85-87-89-93 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður yfir miðju 75-75-75-81-81-81 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið og þær lykkjur sem eftir eru í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2-3-4-2-3-5 lykkjur sléttprjón á milli mynsturs fyrir miðju og kantlykkja í garðaprjóni).
Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-31-31-32-32-34 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 21-21-23-23-25-25 lykkjur og fækkið jafnframt um 6 lykkjur jafnt yfir sléttar lykkjur í stóra kaðlinum (= 21-21-23-23-25-25 lykkjur hafa fækkað til 15-15-17-17-19-19 lykkjur), setjið þessar 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð (= hálsmál), prjónið síðustu 30-31-31-32-32-34 lykkjur.
Prjónið nú axlir til loka hvora fyrir sig. Prjónið fram og til baka með mynstri eins og áður, jafnframt í hverri umferð frá hálsi eru felldar af lykkjur fyrir hálsmáli þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni = 25-26-26-27-27-29 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (handvegur á nú að mælast 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem affelling fyrir handveg byrjar). Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 17-18-18-19-19-21 lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRI ERMI:
Fitjið upp 46-52-52-58-58-58 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið síðan stroff þannig: (3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) yfir næstu 12-18-18-24-24-24 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 28 lykkjur, 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 15-21-21-27-27-27 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 1-5-1-7-7-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 31 lykkjurnar og fækkið lykkjum mismunandi eftir stærðum þannig:
Stærð S, M og L: Fækkið um 1 lykkju brugðið í hverri og einni af 4 brugðnu einingum (= 4 lykkjur færri).
Stærð XL, XXL og XXXL: Fækkið um 1 lykkju brugðið í 2 miðju brugðnu einingum (= 2 lykkjur færri).
Nú eru 41-43-47-49-49-51 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5.
Prjónið 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt. Setjið eitt prjónamerki hér (= mitt undir ermi og þetta er núna byrjun á umferð). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið nú mynstur þannig: 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 21-21-21-23-23-23 lykkjur, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn.
Þegar ermin mælist 11-10-10-7-11-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 16-16-16-17-19-21 sinnum = 73-75-79-83-87-93 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 46-45-45-43-43-41 cm frá uppfitjunarkanti.
Fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjurnar undir ermi fyrir handveg (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 65-67-69-73-75-81 lykkjur. Prjónið síðan ermina fram og til baka. Prjónið mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í byrjun á hverri umferð er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið. Fellið af 3 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 7-6-5-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-4-4-7-8-9 sinnum (= alls 18-19-20-21-22-25 lykkjur felldar af í hvorri hlið) = 29-29-29-31-31-31 lykkjur. Ermin mælist ca 9-11-11-13-14-16 cm frá þar sem felldar voru af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram fram og til baka með mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 10-11-11-12-12-13 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 23-23-23-25-25-25 lykkjur og prjónið jafnframt 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir fyrstu 14 lykkjur slétt í A.3 (= 7 lykkjur færri), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 4 lykkjurnar = 21-21-21-23-23-23 lykkjur. Snúið og prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjurnar, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Snúið og fellið af fyrstu 16-16-16-18-18-18 lykkjur og setið eitt prjónamerki í lok umferðar (prjónamerkið merkir hvora hlið á ermi á síðar að setja saman við bakstykkið í lokin). Prjónið síðan fram og til baka með A.2 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið yfir 5 lykkjur í umferð þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 73-75-76-77-78-79 cm.

VINSTRI ERMI:
Prjónið vinstri ermi á sama hátt og hægri ermin, nema þegar ermakúpan hefur verið gerð til loka og ermin mælist 19-22-22-25-26-29 cm frá þar sem felldar voru af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 4 lykkjurnar eins og áður, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir síðustu 23-23-23-25-25-25 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir síðustu 14 lykkjurnar í A.3 (= 7 lykkjur færri) = 21-21-21-23-23-23 lykkjur. Snúið og fellið af fyrstu 16-16-16-18-18-18 lykkjurnar og setjið eitt prjónamerki í lok umferðar (prjónamerkið merkir hvora hlið á ermi á síðar að setja saman við bakstykkið í lokin) = 5 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með A.2 og 1 kantlykkju í hvorri hlið yfir 5 lykkjurnar þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 73-75-76-77-78-79 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón / affellingarkantinn þannig: Saumið niður aðra ermina í bakstykkið með því að sauma sauminn frá handveg og upp meðfram öxl að miðju aftan á bakstykki. Endurtakið á hinni erminni og endið með að sauma saman affellingarkantana á ermum (= síðustu 5 lykkjurnar sem felldar voru af á ermum) mitt að aftan. Saumið niður aðra ermina við framstykkið frá handveg og upp meðfram öxl við hálsmál. Endurtakið á hinni erminni.
Saumið í ystu lykkjubogana niður meðfram hliðarsaumi þar til eftir eru ca 17 cm (= klauf).

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLMÁLI:
Prjónið upp 66 til 84 lykkjur innan við 1 kantlykkju (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan) frá réttu með Alaska og hringprjón 4,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 6. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 10-11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrr að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.04.2023
VINSTRI ERMI: Prjónið vinstri ermi alveg eins, nema þegar ermakúpan hefur verið gerð til loka og ermin mælist 19-22-22-25-26-29 cm frá þar sem felldar voru af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi,

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar 2, þannig að lykkjan liggi utan um tvær síðustu lykkjurnar sem voru prjónaðar (= 1 lykkja færri)
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Louet wrote:

Bonjour je pense que les explications entre la manche gauche et la droite sont différentes, vous nous faites rabattre des mailles à 11 cm des emmanchures sur la droites alors que sur la gauche c’est à partir de 19 cm suivant la taille. Je me suis basée sur l’explication de la manche gauche qui me paraissait plus cohérente. Mais je pense que vous devriez revoir vos explications. Cordialement. Danilou6.

17.03.2024 - 23:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Louet, les hauteurs sont les mêmes pour les 2 manches, pour la manche droite, vous avez (en taille S), 10 cm à partir des mailles rabattues + 9 cm supplémentaires à partir du marqueur = 19 cm. Bon tricot!

18.03.2024 - 10:21

country flag Hanne Boghøj Bendtsen wrote:

I starten af venstre ærme: Kan det tænkes ved str. XL og XXL er skrevet 15 og 16 cm istedet for 25 og 26 cm?

01.04.2023 - 09:40

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Ja, her har det vært en tastefeil. Rikitg som du skriver, skal være 25-26 cm i str. XL og XXL. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Vi vil rette dette asap. mvh DROPS Design

17.04.2023 - 08:21

country flag Nicoletta wrote:

Salve,purtroppo ho un’altra domanda riguardo alle maniche. Dalle foto sembrerebbe che il motivo treccia + diagramma A2 debba proseguire fino al collo,dalle spiegazioni sembra che gli ultimi 8 cm debba lavorare solo le 5 maglie del diagramma A2… Ringrazio anticipatamente per la vostra preziosa disponibilità! Cordiali saluti Nicoletta

26.02.2023 - 23:26

DROPS Design answered:

Buonasera Nicoletta, le spiegazioni sono corrette, questa parte verrà poi cucita alle maglie intrecciate sul dietro. Buon lavoro!

08.03.2023 - 20:04

country flag Nicoletta wrote:

Salve,purtroppo ho un’altra domanda riguardo alle maniche. Dalle foto sembrerebbe che il motivo treccia + diagramma A2 debba proseguire fino al collo,dalle spiegazioni sembra che gli ultimi 8 cm debba lavorare solo le 5 maglie del diagramma A2… Ringrazio anticipatamente per la vostra preziosa disponibilità! Cordiali saluti Nicoletta

11.02.2023 - 11:42

DROPS Design answered:

Buonasera Nicoletta, le spiegazioni sono corrette, questa parte verrà poi cucita alle maglie intrecciate sul dietro. Buon lavoro!

08.03.2023 - 20:04

country flag Nicoletta Zonca wrote:

Buongiorno ,ho finito gli scalfi dietro del modello 217-5, le 22 maglie da diminuire, sono tutte sullo stesso ferro?in questo modo finisco le diminuzioni in un'unica volta...non riesco a capire questa parte...ringrazio anticipatamente per la vostra disponibilità. Buona serata

22.01.2023 - 21:30

DROPS Design answered:

Buonasera Nicoletta, si, le 22 maglie si diminuiscono su un ferro solo. Buon lavoro!

23.01.2023 - 21:57

country flag Gabriele Bauer wrote:

Leider ist kein Foto des Rückteils zu sehen. Das macht es schwierig zu verstehen, warum man an jedem Ärmel 9 cm mit 5 Maschen höher strickt und diese wohl dann am Rückteil oben annäht. Warum macht man das? Dann sind Rückansicht und Vorderansicht ja verschieden???

30.11.2022 - 15:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bauer, die Ärmel werden unterschiedlich abgekettet damit sie gegen Rückenteil länger werden so ist der Hals höher am Rückenteil als am Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!

30.11.2022 - 17:04

country flag Gabriele Bauer wrote:

Hallo, auf dem Foto sind die Ärmel umgeschlagen, also sind sie wohl extra lang in der Anleitung. Ich möchte das so nicht, sondern normal lange Ärmel. Wo und wieviel soll ich kürzen bei XXL? Danke sehr.

17.11.2022 - 11:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bauer, je nach gewünschte Armlänger können Sie mit der Hilfe der Maßskizze die Ärmellänge anpassen - hier lesen Sie mehr über die Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

17.11.2022 - 16:07

country flag Olympe wrote:

Bonjour, modèle 217-15. Je ne comprends pas : diagramme A2, 2ème rang : carré noir « ce carré n’est pas une maille, passer directement au symbole suivant ». Que dois-je faire avec le carré noir ??? Merci

26.06.2022 - 17:47

DROPS Design answered:

Bonjour Olympe, lorsque vous avez tricoté le 1er rang de A.2, il vous reste 2 mailles dans A.2, vous tricotez ces 2 mailles comme dans le diagramme (il n'y a que 2 mailes, pas 3, d'où le carré noir), au rang suivant, faites 1 jeté entre ces 2 mailles (= vous avez de nouveau 3 mailles). Bon tricot!

27.06.2022 - 08:50

country flag Yo wrote:

Hi, dank voor de mooie patronen. Zouden jullie willen overwegen om foto's van de achterkant van truien toe te voegen? Ik kijk zowel naar de beschrijving als de foto, om het patroon te begrijpen. Het zou mij dus erg helpen. Groet.

04.05.2022 - 18:35

DROPS Design answered:

Dag Yo,

Bedankt voor je tip, dit is inderdaad een goed idee. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling.

09.05.2022 - 17:22

country flag Sylvie GOUEY wrote:

Bonjour, Auriez vous une vidéo qui permettrait de voir les différentes coutures pour réaliser l'assemblage ainsi qu'un schéma qui permettrait de voir l'arrière du pull. Je vous remercie. Cordialement

03.02.2021 - 15:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gouey, nous n'avons rien de spécifique à ce modèle, toutefois, le schéma montre l'assemblage = les pointillés correspondent aux coutures des manches le long du devant, dans le dos, les coutures sont similaires: vous les assemblez le long des emmanchures dos et le long des mailles rabattues, tout comme pour le devant, mais dans le dos vous allez assembler les mailles rabattues des mailles ensemble. Bon assemblage!

04.02.2021 - 08:54