Maggie skrifaði:
Hello, Can the front and back be knit in the round ? Thank you
14.08.2024 - 13:34DROPS Design svaraði:
Hi Maggie, of course you can. Happy knitting!
14.08.2024 - 13:57
Maggie skrifaði:
Hello Can the back and front be worked together in the round? Thank you
13.08.2024 - 15:28
Louet skrifaði:
Bonjour je pense que les explications entre la manche gauche et la droite sont différentes, vous nous faites rabattre des mailles à 11 cm des emmanchures sur la droites alors que sur la gauche c’est à partir de 19 cm suivant la taille. Je me suis basée sur l’explication de la manche gauche qui me paraissait plus cohérente. Mais je pense que vous devriez revoir vos explications. Cordialement. Danilou6.
17.03.2024 - 23:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Louet, les hauteurs sont les mêmes pour les 2 manches, pour la manche droite, vous avez (en taille S), 10 cm à partir des mailles rabattues + 9 cm supplémentaires à partir du marqueur = 19 cm. Bon tricot!
18.03.2024 - 10:21
Hanne Boghøj Bendtsen skrifaði:
I starten af venstre ærme: Kan det tænkes ved str. XL og XXL er skrevet 15 og 16 cm istedet for 25 og 26 cm?
01.04.2023 - 09:40DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Ja, her har det vært en tastefeil. Rikitg som du skriver, skal være 25-26 cm i str. XL og XXL. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Vi vil rette dette asap. mvh DROPS Design
17.04.2023 - 08:21
Nicoletta skrifaði:
Salve,purtroppo ho un’altra domanda riguardo alle maniche. Dalle foto sembrerebbe che il motivo treccia + diagramma A2 debba proseguire fino al collo,dalle spiegazioni sembra che gli ultimi 8 cm debba lavorare solo le 5 maglie del diagramma A2… Ringrazio anticipatamente per la vostra preziosa disponibilità! Cordiali saluti Nicoletta
26.02.2023 - 23:26DROPS Design svaraði:
Buonasera Nicoletta, le spiegazioni sono corrette, questa parte verrà poi cucita alle maglie intrecciate sul dietro. Buon lavoro!
08.03.2023 - 20:04
Nicoletta skrifaði:
Salve,purtroppo ho un’altra domanda riguardo alle maniche. Dalle foto sembrerebbe che il motivo treccia + diagramma A2 debba proseguire fino al collo,dalle spiegazioni sembra che gli ultimi 8 cm debba lavorare solo le 5 maglie del diagramma A2… Ringrazio anticipatamente per la vostra preziosa disponibilità! Cordiali saluti Nicoletta
11.02.2023 - 11:42DROPS Design svaraði:
Buonasera Nicoletta, le spiegazioni sono corrette, questa parte verrà poi cucita alle maglie intrecciate sul dietro. Buon lavoro!
08.03.2023 - 20:04
Nicoletta Zonca skrifaði:
Buongiorno ,ho finito gli scalfi dietro del modello 217-5, le 22 maglie da diminuire, sono tutte sullo stesso ferro?in questo modo finisco le diminuzioni in un'unica volta...non riesco a capire questa parte...ringrazio anticipatamente per la vostra disponibilità. Buona serata
22.01.2023 - 21:30DROPS Design svaraði:
Buonasera Nicoletta, si, le 22 maglie si diminuiscono su un ferro solo. Buon lavoro!
23.01.2023 - 21:57
Gabriele Bauer skrifaði:
Leider ist kein Foto des Rückteils zu sehen. Das macht es schwierig zu verstehen, warum man an jedem Ärmel 9 cm mit 5 Maschen höher strickt und diese wohl dann am Rückteil oben annäht. Warum macht man das? Dann sind Rückansicht und Vorderansicht ja verschieden???
30.11.2022 - 15:27DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bauer, die Ärmel werden unterschiedlich abgekettet damit sie gegen Rückenteil länger werden so ist der Hals höher am Rückenteil als am Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!
30.11.2022 - 17:04
Gabriele Bauer skrifaði:
Hallo, auf dem Foto sind die Ärmel umgeschlagen, also sind sie wohl extra lang in der Anleitung. Ich möchte das so nicht, sondern normal lange Ärmel. Wo und wieviel soll ich kürzen bei XXL? Danke sehr.
17.11.2022 - 11:26DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bauer, je nach gewünschte Armlänger können Sie mit der Hilfe der Maßskizze die Ärmellänge anpassen - hier lesen Sie mehr über die Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!
17.11.2022 - 16:07
Olympe skrifaði:
Bonjour, modèle 217-15. Je ne comprends pas : diagramme A2, 2ème rang : carré noir « ce carré n’est pas une maille, passer directement au symbole suivant ». Que dois-je faire avec le carré noir ??? Merci
26.06.2022 - 17:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Olympe, lorsque vous avez tricoté le 1er rang de A.2, il vous reste 2 mailles dans A.2, vous tricotez ces 2 mailles comme dans le diagramme (il n'y a que 2 mailes, pas 3, d'où le carré noir), au rang suivant, faites 1 jeté entre ces 2 mailles (= vous avez de nouveau 3 mailles). Bon tricot!
27.06.2022 - 08:50
Columns of Valhalla#columnsofvalhallasweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með axlarsæti, köðlum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-15 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). A.1 á við um stærð XL, XXL og XXXL. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 14 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 4,6. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki komi gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 107-121-135-141-141-155 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir (= 7-11-14 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 87-87-87 lykkjur og fækkið jafnframt um allar 4 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í hverri brugðinni einingu (= 12-12-12 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 7-14-21 lykkjur og fækkið jafnframt um 0-3-7 lykkjur jafnt yfir, 3 lykkjur garðaprjón = 95-103-109 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Stærð XL, XXL og XXXL: Prjónið 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 21-21-28 lykkjur, A.1 yfir næstu 90 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 30 lykkjum), stroff (= 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 21-21-28 lykkjur, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir (= 15-19-24 lykkjur), 3 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 87-87-87 lykkjur og fækkið jafnframt um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (þ.e.a.s. allar 4 lykkjur brugðið er fækkað til 3 lykkjur brugðið og allar 5 lykkjur brugðið er fækkað til 4 lykkjur brugðið = 12-12-12 lykkjur færri), 3 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 21-21-28 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-2-4 lykkjur jafnt yfir (= 15-19-24 lykkjur), 3 lykkjur garðaprjón = 117-125-135 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Allar stærðir: Nú er mynstrið prjónað þannig: 3 lykkjur garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, * A.2, A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) *, prjónið frá *-* 3 sinnum, A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 7-11-14-15-19-24 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-4-5-5-6-6 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-3-3-3 sinnum (= 7-10-12-15-18-21 lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið) = 81-83-85-87-89-93 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir miðju 75-75-75-81-81-81 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið og þær lykkjur sem eftir eru í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2-3-4-2-3-5 lykkjur sléttprjón á milli mynstra fyrir miðju og kantlykkja í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (handvegur á nú að mælast 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem affelling fyrir hálsmáli byrjar), prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir slétta lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð og fækkið jafnframt um 22 lykkjur jafnt yfir einingar með sléttum lykkjum í stóru köðlunum, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 59-61-63-65-67-71 lykkjur. Fellið af. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 107-121-135-141-141-155 lykkjur á hringprjón 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff og mynstur alveg eins og á bakstykki. Þegar ermin mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki = 81-83-85-87-89-93 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður yfir miðju 75-75-75-81-81-81 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið og þær lykkjur sem eftir eru í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= 2-3-4-2-3-5 lykkjur sléttprjón á milli mynsturs fyrir miðju og kantlykkja í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-31-31-32-32-34 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 21-21-23-23-25-25 lykkjur og fækkið jafnframt um 6 lykkjur jafnt yfir sléttar lykkjur í stóra kaðlinum (= 21-21-23-23-25-25 lykkjur hafa fækkað til 15-15-17-17-19-19 lykkjur), setjið þessar 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð (= hálsmál), prjónið síðustu 30-31-31-32-32-34 lykkjur. Prjónið nú axlir til loka hvora fyrir sig. Prjónið fram og til baka með mynstri eins og áður, jafnframt í hverri umferð frá hálsi eru felldar af lykkjur fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni = 25-26-26-27-27-29 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu (handvegur á nú að mælast 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem affelling fyrir handveg byrjar). Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og fækkið jafnframt um 8 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 17-18-18-19-19-21 lykkjur. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRI ERMI: Fitjið upp 46-52-52-58-58-58 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið síðan stroff þannig: (3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) yfir næstu 12-18-18-24-24-24 lykkjur, 3 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) yfir næstu 28 lykkjur, 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 6 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 15-21-21-27-27-27 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 1-5-1-7-7-5 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 31 lykkjurnar og fækkið lykkjum mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M og L: Fækkið um 1 lykkju brugðið í hverri og einni af 4 brugðnu einingum (= 4 lykkjur færri). Stærð XL, XXL og XXXL: Fækkið um 1 lykkju brugðið í 2 miðju brugðnu einingum (= 2 lykkjur færri). Nú eru 41-43-47-49-49-51 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt. Setjið eitt prjónamerki hér (= mitt undir ermi og þetta er núna byrjun á umferð). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu og er notað síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið nú mynstur þannig: 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 21-21-21-23-23-23 lykkjur, A.2 yfir næstu 3 lykkjur, 7-8-10-10-10-11 lykkjur slétt. Haldið svona áfram hringinn. Þegar ermin mælist 11-10-10-7-11-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 16-16-16-17-19-21 sinnum = 73-75-79-83-87-93 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 46-45-45-43-43-41 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 lykkjurnar undir ermi fyrir handveg (= 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 65-67-69-73-75-81 lykkjur. Prjónið síðan ermina fram og til baka. Prjónið mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í byrjun á hverri umferð er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið. Fellið af 3 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum, 2 lykkjur 7-6-5-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-4-4-7-8-9 sinnum (= alls 18-19-20-21-22-25 lykkjur felldar af í hvorri hlið) = 29-29-29-31-31-31 lykkjur. Ermin mælist ca 9-11-11-13-14-16 cm frá þar sem felldar voru af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka með mynstri og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 10-11-11-12-12-13 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 23-23-23-25-25-25 lykkjur og prjónið jafnframt 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir fyrstu 14 lykkjur slétt í A.3 (= 7 lykkjur færri), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 4 lykkjurnar = 21-21-21-23-23-23 lykkjur. Snúið og prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjurnar, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Snúið og fellið af fyrstu 16-16-16-18-18-18 lykkjur og setið eitt prjónamerki í lok umferðar (prjónamerkið merkir hvora hlið á ermi á síðar að setja saman við bakstykkið í lokin). Prjónið síðan fram og til baka með A.2 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið yfir 5 lykkjur í umferð þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 73-75-76-77-78-79 cm. VINSTRI ERMI: Prjónið vinstri ermi á sama hátt og hægri ermin, nema þegar ermakúpan hefur verið gerð til loka og ermin mælist 19-22-22-25-26-29 cm frá þar sem felldar voru af 8-8-10-10-12-12 lykkjur mitt undir ermi, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 4 lykkjurnar eins og áður, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir síðustu 23-23-23-25-25-25 lykkjurnar og fækkið jafnframt um 2 og 2 lykkjur slétt saman yfir síðustu 14 lykkjurnar í A.3 (= 7 lykkjur færri) = 21-21-21-23-23-23 lykkjur. Snúið og fellið af fyrstu 16-16-16-18-18-18 lykkjurnar og setjið eitt prjónamerki í lok umferðar (prjónamerkið merkir hvora hlið á ermi á síðar að setja saman við bakstykkið í lokin) = 5 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með A.2 og 1 kantlykkju í hvorri hlið yfir 5 lykkjurnar þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 73-75-76-77-78-79 cm. FRÁGANGUR: Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón / affellingarkantinn þannig: Saumið niður aðra ermina í bakstykkið með því að sauma sauminn frá handveg og upp meðfram öxl að miðju aftan á bakstykki. Endurtakið á hinni erminni og endið með að sauma saman affellingarkantana á ermum (= síðustu 5 lykkjurnar sem felldar voru af á ermum) mitt að aftan. Saumið niður aðra ermina við framstykkið frá handveg og upp meðfram öxl við hálsmál. Endurtakið á hinni erminni. Saumið í ystu lykkjubogana niður meðfram hliðarsaumi þar til eftir eru ca 17 cm (= klauf). TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLMÁLI: Prjónið upp 66 til 84 lykkjur innan við 1 kantlykkju (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan) frá réttu með Alaska og hringprjón 4,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 6. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn í 10-11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsi. Til að koma í veg fyrr að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #columnsofvalhallasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.