DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide |
1364.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Melody uni colour 71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide 1364.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Salt Sea Air |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð XS - XXL.
DROPS 217-31 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 22) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 4. og 5. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju í lykkjuna undir næstu lykkju (þ.e.a.s. í lykkjuna undir lykkju með prjónamerki), en bíðið með að lyfta lykkjum af vinstri prjóni * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju á vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, lyftið síðan lykkjum af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri). Setjið 1 prjónamerki í miðju af þessum 5 lykkjum (að næstu útaukningu). AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju (þ.e.a.s. í lykkjuna undir lykkju með prjónamerki), en bíðið með að lyfta lykkjum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju á vinstri prjóni, lyftið síðan lykkjum af vinstri prjóni = 3 lykkjur (þ.e.a.s. 2 lykkjur fleiri). ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Á UNDAN MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Á EFTIR MERKIÞRÆÐI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræði þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 58-62-66-66-70-72 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-2-2-2-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 60-64-68-68-72-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í umferð (= miðja að framan). Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 11-12-13-13-14-16 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-24-26-26-28-32 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 11-12-13-13-14-16 lykkjur eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Byrjið mitt að aftan og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð með prjónamerki í (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 6-6-7-8-9-10 sinnum á hæðina = 156-160-180-196-216-240 lykkjur. Í XS, S og M haldið áfram með útaukningu í 4. hverri umferð einu sinni til viðbótar, en nú er aukið út einungis um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í eins og útskýrt er undir LASKALÍNA (= alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Á eftir síðustu útaukningu eru 164-168-188-196-216-240 lykkjur í umferð. Haldið áfram með sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 20-20-22-23-25-27 cm frá merkiþræði við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 25-26-29-30-33-37 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 32-32-36-38-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-52-58-60-66-74 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 32-32-36-38-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 25-26-29-30-33-37 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 112-120-132-140-152-168 lykkjur. Prjónið yfir lykkjur á bakstykki fram að miðju undir annarri ermi. Umferðin byrjar nú hér (þ.e.a.s. mitt í 6-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 26-28-28-29-29-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-26-28-30-34 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 134-144-158-168-182-202 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 32-32-36-38-42-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-10 lykkjum undir ermi = 38-40-44-48-52-56 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-8-8-10-10-10 lykkjur undir ermi og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Hann er notaður síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan merkiþræði – sjá ÚRTAKA = 37-39-43-47-51-55 lykkjur. Þegar ermin mælist 8 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir merkiþræði = 36-38-42-46-50-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 14 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING = 38-40-44-48-52-56 lykkjur. Endurtakið útaukningu þegar ermin mælist 18 cm frá skiptingu = 40-42-46-50-54-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-38-37-37-35-33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10-12-14-16-18 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-36-38-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 44-44-43-43-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (17)
Tanja skrifaði:
Hallo, bei der Passe heißt es in der 1. Runde schon die erste Raglan-Zunahme vornehmen. Dann 6x (Gr. S) jeweils in der 4. Runde zunehmen? Zählt die 1. Runde dann schon mit oder fängt man bei der 2. Runde mit Runde 1 zu zählen an? D.h. es sind immer 3 Runden ohne Zunahmen, oder? Vielen Dank für die Antwort.
08.12.2021 - 21:48DROPS Design svaraði:
Liebe Tanja, genau es sind immer 3 Runden ohne Zunahmen, die Raglanzunahmen beginnen Sie bei der 1. Runde der Passe, dann 3 Runden ohne Zunahmen stricken, diese 4 Runden isngesamt 5 Mal wiederholen, dann stricken Sie noch eine Runde mit Zunahmen (= 6 Mal insgesamt),. Stricken Sie nun 3 Runden ohne Zunahmen und bei der nächsten Runde nehmen Sie jetzt nur 8 Maschen (anstatt 16 M) = es sind dann 168 Maschen. Viel spaß beim stricken!
09.12.2021 - 07:32Louise skrifaði:
Hej, Jag får inte summeringen av stl. S att stämma av markeringarna vid övergång från hals till att börja med raglan. Det är 64 maskor inkl. 2 maskor ökade på 1a varvet slätstickat. 12 + 6 + 24 + 6 + 12 = 60 inte 64 som är antalet jag har på stickan i stl. S. Tack på förhand!
29.03.2021 - 21:03DROPS Design svaraði:
Hej Louise. Om du räknar med de maskorna man ska sätta markörerna i så blir det 64 maskor. Du räknar 12 m sätter en markör i nästa maska (=13 maskor inkl. maskan med markör) osv. Mvh DROPS Design
13.04.2021 - 08:17Beraud skrifaði:
Vous ne dites pas le nombre de pelotes qu’il faut.
23.01.2021 - 17:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Beraud, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque taille, au poids, sous l'en-tête, autrement dit: en XS il faut 200 g DROPS Melody/50 g la pelote = 4 pelotes. Bon tricot!
25.01.2021 - 12:59Lena Bindocci skrifaði:
Grazie mille per la sollecita risposta. Purtroppo le mie punte sono fisse! ....essendo alle prime armi non ne conoscevo l'esistenza ...e ora come faccio? Non posso neppure acquistarli siamo in lockdown. Esiste un altro modo? Grazie mille
11.11.2020 - 00:33DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lena, nessun problema: tiene a sinistra il lavoro già avviato e lavora le maglie sul nuovo ferro circolare, alla fine del giro tutte le maglie saranno sul nuovo ferro. Buon lavoro!
13.11.2020 - 13:40Lena Bindocci skrifaði:
Grazie mille per la sollecita risposta. Purtroppo le mie punte sono fisse! ....essendo alle prime armi non ne conoscevo l'esistenza ...e ora come faccio? Non posso neppure acquistarli siamo in lockdown. Esiste un altro modo? Grazie mille
11.11.2020 - 00:32DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lena, nessun problema: tiene a sinistra il lavoro già avviato e lavora le maglie sul nuovo ferro circolare, alla fine del giro tutte le maglie saranno sul nuovo ferro. Buon lavoro!
13.11.2020 - 13:38Lena Bindocci skrifaði:
Ho iniziato come descritto e sono arrivata dove si dice di passare il lavoro da ferri circolari 4 a ferri circolari 8 come faccio? le maglie sono strette avete un tutorial? e poi ferri 8 che devo usare lunghi o corti? scusate ma sono alle prime armi. Grazie infinite
10.11.2020 - 19:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Lena, quando cambia i ferri deve anche inserire i segnapunti, per cui può sostituire la punta del ferro di destra e passare le maglie inserendo i segnapunti e poi sostituire la punta del ferro di sinistra. Buon lavoro!
10.11.2020 - 22:23Brigitte LEENEN skrifaði:
Beste, ik ga deze trui breien en heb de wol al besteld (en gekregen ;-)). Maar ik vind de gepaste breinaalden niet... de rondbreinaalden heb ik, maar de naalden zonder kop 8mm, zijn nergens te vinden, niet op jullie website, noch bij veritas, noch bij Créacorner, noch bij Draad enzo... En ze zijn ook altijd maar 20cm, hetgeen mij kort lijkt. Dus de 5mm heb ik ook nog niet durven bestellen .. Kloppen de geven van jullie naalden zonder kop ? En zo ja waar kan ik ze bestellen ? Bedankt!
03.10.2020 - 13:11DROPS Design svaraði:
Dag Brigitte,
Niet al onze winkels verkopen al onze producten. Je kunt het beste even contact opnemen met de winkel waar je ook het garen hebt besteld, en daar je vraag neerleggen. Waarschijnlijk kunnen zij je wel verder helpen.
05.10.2020 - 11:35