DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Leaf Diversion

Prjónað vesti og eyrnaband úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu fyrir axlarsæti og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-23
DROPS Design: Mynstur no-040
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200 g litur 07, ljós beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-75 g litur 20, ljós beige

VESTI:

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200 g litur 07, ljós beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-75 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 2 stykki í allar stærðir.

EYRNABAND:

STÆRÐ:
Ein stærð
Mál: Breidd: Ca 14 cm. Lengd: Ca 49 cm – eða að óskaðri leng.
Höfuðmál: 54/56 cm – eða að óskaðri lengd.

EFNI:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 07, ljós beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm eða 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6732.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Vesti: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.4.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 2,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður og prjónað er í hring þar til útaukning fyrir öxl er lokið. Prjónið síðan fram- og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig.

VESTI:
Fitjið upp 128-136-144 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Nord og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 13 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið nú þannig:
Setjið 1. prjónamerki í byrjun á umferð (= á undan 2 lykkjum slétt), prjónið stroffprjón eins og áður yfir fyrstu 26-30-34 lykkjurnar, setjið 2. prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 38-38-38 lykkjur (= 2 lykkjur færri), setjið 3. prjónamerki hér, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 26-30-34 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir síðustu 38-38-38 lykkjur (= 2 lykkjur færri) = 124-132-140 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið nú síðustu umferð í A.1 og prjónið stroffprjón eins og áður yfir 26-30-34 lykkjur á hvorri öxl. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur í umferð:
Aukið er út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Nú eru einungis aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls18-20-22 sinnum. Útauknar lykkjur frá fyrstu 10-12-14 umferðum eru prjónaðar í sléttprjóni, síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar frá næstu 8 umferðum í mynstri þannig: 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1 og stroffprjón eins og áður yfir 26-30-34 lykkjurnar á hvorri öxl.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 196-212-228 lykkjur í umferð, haldið áfram með mynstur eins og áður. Í næsta skipti sem prjónuð er umferð sem er 1., 3., 5. eða 7 umferð í A.2, prjónið þannig: Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 26-30-34 lykkjurnar, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 72-76-80 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= framstykki), fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 26-30-34 lykkjurnar, prjónið mynstur eins og áður yfir síðustu 72-76-80 lykkjur (= bakstykki).

BAKSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir 72-76-80 lykkjur. Þ.e.a.s. prjónið A.2 yfir miðju 36-36-36 lykkjur og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem etir eru í umferð. Þegar stykkið mælist 39-42-45 cm frá skiptingu á milli A.1 í hálsi og A.2 – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 8-8-8 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10-12-14 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 4-2-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið A.3 yfir A.2 (= 2 lykkjur fleiri), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10-12-14 lykkjur jafnframt sem auknar eru út 4-2-4 lykkjur jafnt yfir, prjónið síðustu 8-8-8 lykkjur eins og áður = 82-82-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka í mynstri (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 38-38-38 lykkjur, prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið hefur verið prjónað í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

FRÁGANGUR:
Prjónið nú band með hnappagötum í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Nord og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar prjónaðar hafa verið 8 umferðir garðaprjón, fellið af fyrir hnappagötum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til bandið mælist ca 16 til 28 cm – eða að óskaðri lengd (hægt er að prjóna bandið lengra eftir að tölur hafa verið saumaðar í, þannig að auðveldara sé að prjóna að réttri lengd).
Saumið tölur í réttu á bakstykki, ca 14 cm upp að neðri kanti og á milli 5. og 6. lykkju frá kanti. Nú eru hægt að máta vestið og lengdina á bandinu er hægt að jafna til með því að prjóna áfram að óskaðri lengd. Saumið niður annan endann á bandinu að innanverðu á framstykki ca 14 cm (þ.e.a.s. í línu) með tölum.
Endurtakið í hinni hliðinni.

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Eyrnabandið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

EYRNABAND:
Fitjið upp 36 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði Nord + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið mynstur A.4 fram og til baka. Herðið aðeins á þræði í byrjun á hverri umferð svo að ysta lykkjan verði ekki eins laus. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið svona þar til stykkið mælist 49 cm eða prjónið að óskaðri lengd – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá, skiljið eftir smá enda til að sauma eyrnabandið saman með. Saumið sauminn með lykkjuspori innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Leaf Diversion

Maisie, United Kingdom

Leaf Diversion Vest

Linda, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Cristina wrote:

Si ho lavorato il campione risultano 70 cm di giro collo

01.02.2024 - 12:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Cristina, al momento non ci sono correzioni sul numero di maglie del collo. Come può vedere dalla foto non è un modello a collo stretto. Buon lavoro!

03.02.2024 - 10:22

country flag Cristina wrote:

Buongiorno, ho messo 136 maglie per il collo ma mi resta grandissimo\r\ngrazie

31.01.2024 - 10:35

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina, ha lavorato il campione prima di iniziare? Buon lavoro!

31.01.2024 - 18:54

country flag Eija Niemi wrote:

Hei! Onko todella niin, että lisäykset kuuluu tehdä ennen 1. ja 3. merkkiä. Olen nyt tehnyt ensimmäiset 8 lisäystä ja minusta alkaa näyttää siltä, että lisäykset kuuluisi tehdä 1. ja 3. merkin jälkeen. Ja tietenkin vastaavasti ennen 2. ja 4. merkkiä. Tällä tavalla lisättyjen 8n silmukan joustinosuus tulee A2-osuuden jatkoksi. Terveisin Eija N.

06.10.2023 - 10:04

DROPS Design answered:

Hei, tarkistin ohjeen ja lisäykset pitää tehdä ennen 1. ja 3. merkkiä sekä 2. ja 4. merkin jälkeen.

18.10.2023 - 17:03

country flag Li wrote:

När man ska öka FÖRE första markören. Betyder det att man ska göra ökningen i slutet på första varvet då? Dvs sista maskan på varvet.

06.02.2022 - 19:17

DROPS Design answered:

Hej Li, ja det stemmer, du øger kun på ryg og forstykket (ikke på skuldrerne) før 1.mærketråd sidst på varvet :)

09.02.2022 - 09:57

country flag Emma wrote:

”…sedan stickas de ökade maskorna från de nästa 8 varven i mönster så här: 2 avigmaskor, 2 rätmaskor, 2 avigmaskor, 2 rätmaskor.” Ska detta ske lika för varje ökning oavsett om det är vid höger eller vänster arm? Eller ska det göras spegelvänt för ena sidan?

17.01.2022 - 22:17

DROPS Design answered:

Hei Emma. Det blir like for hver økning. Om du ser på et nærbilde, ser du økning 11 og 12 er vrang masker, både på høyre og venstre siden. Samme med 13. og 14. økning (rett masker), 15. og 16. økning (vrang masker) og 17. og 18. økning (rett masker). mvh DROPS Design

18.01.2022 - 13:35

country flag Jag wrote:

Jag förstår inte detta: Öka så på varje varv totalt 18-20-22 gånger. De ökade maskorna från de första 10-12-14 varven stickas i slätstickning, sedan stickas de ökade maskorna från de nästa 8 varven i mönster så här: 2 avigmaskor, 2 rätmaskor, 2 avigmaskor, 2 rätmaskor. Är det efter att alla 18-20-22 ökningarna är gjorda som man stickar slätstickning över första maskorna och sen mönster, eller är det för varje varv och ny maska under tiden man ökar som det gäller?

12.01.2022 - 22:33

country flag Ida wrote:

Vad menas med ”När A.1 är färdigstickat på höjden, stickas A.2 över A.1 och resår som förut över de 26-30-34 maskorna på varje axel.” Specifikt att A2 stickas över A1, betyder det att man går över från att sticka A1 till att sticka A2?

12.01.2022 - 22:14

DROPS Design answered:

Hej Ida. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design

14.01.2022 - 14:21

country flag Caroline wrote:

Could you please clarify how the last 8 rounds of increased stitches of the saddle shoulder increase should be worked? Should the M1 increase in each round be purled or should the M1 increase be knit and the pattern (p2, k2, p2, k2) start on the next stitch?

28.12.2021 - 22:26

DROPS Design answered:

Dear Caroline, the next 8 increases should be worked in pattern: P2, K2, P2, K2. This means the first and the second (= and the 5th + 6th) of these 8 increases will be purled, the 3rd and the 4th (and the 7th + 8th) will be knitted. Happy knitting!

03.01.2022 - 09:31

country flag Mina Vaghei wrote:

Har dere en video om denne? Særlig halsen, jeg har vanskelighet med å forstå. Er det strikket opp fra jalsen og nedover eller omvendt

10.11.2021 - 01:19

DROPS Design answered:

Hej Mina. Du börjar längst upp på halsen och stickar nedover. Vi har dessvärre inte en video på just detta mönster, men vi har en på hur du ökar till sadelskulder efter halsen. Mvh DROPS Design

10.11.2021 - 08:46

country flag Giovanna wrote:

Per favore. Istruzioni per i ferri diritti e non circolari grazie

23.06.2021 - 19:28

DROPS Design answered:

Buonasera Giovanna, può lavorare il modello in parti separate con 1 maglia di vivagno a ogni lato per la cucitura. Buon lavoro!

23.06.2021 - 23:47