Dea skrifaði:
Buongiorno. Sto lavorando lo scaldapolsi sx ed ho notato che si crea una sfalsatura nelle coste della parte interna seguendo la spiegazione, per evitare l'inconveniente bisogna fare una piccola modifica. Quando si iniziano le coste del bordino, invece di fare 1 dir/1 rov, bisogna fare 1 rov/1 dir così quando si divideranno le 23 e le 33 avremo un lavoro perfetto. Spero di essere d'aiuto.
07.10.2020 - 09:20DROPS Design svaraði:
Buongiorno Dea. La ringraziamo per il suo contributo. Buon lavoro!
07.10.2020 - 13:23
Dea skrifaði:
Buonasera, nella spiegazione degli scaldapolsi vi è scritto così "Quando il lavoro misura 8-8 cm, iniziare gli aumenti per il tassello del pollice...." , questi 8 cm sono da calcolare dal giro d'inizio o dall'inizio del diagramma A2 - A3? Grazie.
05.10.2020 - 18:23DROPS Design svaraði:
Buonasera Dea, se non diversamente indicato, le misure si intendono dall'inizio del lavoro. Buon lavoro!
05.10.2020 - 19:17
Fish Fables#fishfablesset |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað eyrnaband og handstúkur úr DROPS BabyMerino. Allt settið er prjónað í gatamynstri og litlum köðlum.
DROPS 214-37 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 30 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi ca 4. og 5. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um op fyrir þumal): Aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki á hægri handstúku og á undan prjónamerki á vinstri handstúku. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff, þ.e.a.s. fyrsta lykkjan er prjónuð slétt, 2. lykkjan er prjónuð brugðið o.s.frv. Hver útaukning er gerð strax eftir/strax á undan prjónamerki svo að það myndist falleg lína meðfram útaukningunni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman við miðju að aftan. EYRNABAND: Fitjið upp 30-30 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 3 umferðir slétt (1. umferð = ranga). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem auknar er út um 5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 35-35 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur slétt, 31-31 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur slétt. Prjónið síðan A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 48-50 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. eyrnabandið og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað var um 5 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 30-30 lykkjur. Prjónið 3 sléttar umferðir yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið stykkið saman mitt að aftan innan við affellingarkantinn/uppfitjunarkantinn. ------------------------------------------------------ HANDSTÚKUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. HÆGRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir með stroffi er skipt yfir á sokkaprjóna 3. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 29-33 lykkjur (= innan í hönd) og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 23-23 lykkjur sem eftir eru. Prjónið síðan þannig: Haldið áfram með A.2 yfir fyrstu 29-33 lykkjur og prjónið A.3 yfir þær 23-23 lykkjur sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8 cm, byrjar útaukning fyrir þumal. Byrjið á að setja 1 prjónamerki eftir fyrstu 5-7 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. á eftir sléttri lykkju. Prjónið síðan eins og áður, en í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-14 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar janóðum inn í stroff eins og útskýrt er í útaukningu. Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 15-16 cm frá uppfitjunarkanti – ATH: Ef stykkið mælist minna en þetta er haldið áfram hringinn án útaukningar að réttu máli. Mátið e.t.v. handstúkuna og prjónið að óskaðri lengd áður en þumallykkjur eru settar á þráð. Setjið nú 12-14 lykkjur sem auknar voru út fyrir þumal á þráð = 52-56 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram hringinn með stroffi innan í hönd og A.3 ofan á hönd. Þegar stykkið mælist ca 19½-20½ cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 29-33 lykkjur og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 23-23 lykkjur sem eftir eru. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Í næstu umferð er prjónað stroff hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að stroffið haldi fallega áfram yfir lykkjur innan í hönd. Þegar prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir í stroffi yfir allar lykkjur er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Handstúkan mælist ca 21-22 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Setjið 12-14 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 6-6 lykkjur á bakhlið á þumli = 18-20 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2½ cm. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum. VINSTRI HANDSTÚKA: Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir með stroffi er skipt yfir á sokkaprjóna 3. Færið umerðina til um 1 lykkju til hægri, þannig að umferðin byrji með 1 lykkju brugðið og prjónið þannig: Prjónið 23-23 lykkjur slétt (= ofan á hönd) og prjónið A.2 yfir þær 29-33 lykkjur sem eftir eru (= innan í hönd). Prjónið síðan þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 23-23 lykkjur og haldið síðan áfram með A.2 yfir þær 29-33 lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 8-8 cm, byrjar útaukning fyrir þumal. Byrjið á að setja 1 prjónamerki eftir síðustu 5-7 lykkjur í umferð, þ.e.a.s. á undan sléttri lykkju. Prjónið síðan eins og áður, en í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-14 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar janóðum inn í stroff eins og útskýrt er í útaukningu. Þegar útaukningu er lokið, mælist stykkið ca 15-16 cm frá uppfitjunarkanti – stillið lengdina eftir hægri handstúku. Setjið nú 12-14 lykkjur sem auknar voru út fyrir þumal á þráð = 52-56 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram hringinn með A.3 ofan á hönd og stroffi innan í hönd. Þegar stykkið mælist ca 19½-20½ cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 23-23 lykkjur og haldið áfram með stroff eins og áður yfir þær 29-33 lykkjur sem eftir eru Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Í næstu umferð er prjónað stroff hringinn yfir allar lykkjur – passið uppá að stroffið haldi fallega áfram yfir lykkjur innan í hönd. Þegar prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir í stroffi yfir allar lykkjur er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Prjónið þumal á sama hátt og á hægri handstúku. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fishfablesset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.