Frozen Falls Set |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í klukkuprjónsmynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 214-34 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (á við um húfu): UMFERÐ 1: Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið * uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 3: Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚTAUKNING-1 (á við um húfu): Aukið út í sléttu lykkjuna þannig: Prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstur, en það er enginn klukkuprjóns uppsláttur í útaukningunni, þannig að næsta umferð í klukkuprjónsmynstri er lykkjan prjónuð sem átti að prjónast saman með uppslætti, án uppsláttar. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir) (á við um húfu): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. HÚFA: Fitjið upp 12-14 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með Air (látið þráðar endann vera 30 cm langan, það á að nota hann síðar til að sauma saman gatið efst í húfu í lokin). Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI - sjá útskýringu að ofan. Þegar 1. umferð í klukkuprjónsmynstri hefur verið prjónað, eru 6-7 lykkjur slétt í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja af þessum 6-7 lykkjum slétt, prjónamerkin eru notuð til útaukninga. Í 3. umferð í mynstri, aukið út um 4 lykkjur í hverja og eina af 6-7 lykkjum slétt – sjá ÚTAUKNING-1 (= 24-28 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 7 cm (= 24-28 lykkjur fleiri) = 60-70 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til húfan mælist 25-27 cm – stillið af að endað sé eftir umferð 3 í klukkuprjónsmynstri. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú rúllukant þannig: Prjónið * uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*. Prjónið nú 1 umferð slétt þar sem auknar er út 18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 78-88 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Fellið af með sléttum lykkjum, það er mikilvægt að affellingarkanturinn verði ekki stífur, þá kemur kanturinn ekki til með að rúllast eins og hann á að gera – fellið e.t.v. af með grófari prjónum. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kraginn og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir öxl á berustykki áður en stykkið skiptist og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-84-96 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið fyrstu umferð (= rétta) þannig: * prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 52-56-64 lykkjur. Nú er prjónað áfram hringinn með mynstri eftir mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a áfram á hæðina. Haldið áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. BERUSTYKKI: Prjónið mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 6-6-8 lykkjur (= hálft bakstykki), A.2 (= 2 lykkjur), A.1 yfir 12 lykkjur, A.3 (= 2 lykkjur) (= öxl), A.1 yfir 10-12-16 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir 2 lykkjur, A.1 yfir 12 lykkjur, A.3 yfir 2 lykkjur (= öxl) og A.1 yfir síðustu 4-6-8 lykkjur (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið eitt prjónamerki mitt ofan á aðra öxlina mitt í 12 lykkjur með A.1. Héðan er nú mælt. Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.2a og A.3a áfram á hæðina, þ.e.a.s. haldið áfram með útaukningar í 6. hverri umferð, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstur. Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað alls 8-9-12 sinnum á hæðina, eru 132-144-176 lykkjur í umferð. Prjónið A.1a yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-20-25 cm þar sem stykkið er lengst (mælt meðfram öxl frá prjónamerki sem var sett í öxl). Ef stykkið er styttra en þetta, prjónið klukkuprjónsmynstur án útaukninga að réttu máli – stillið af að næsta umferð sé umferð sem prjónuð er brugðið. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og axlalykkjur eru felldar af þannig: Prjónið 26-28-36 lykkjur klukkuprjónsmynstur, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= hálft bakstykki), fellið af næstu 13 lykkjur (fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja), 1 lykkja garðaprjón, prjónið 51-57-73 lykkjur klukkuprjónsmynstur, 1 lykkja garðaprjón (= framstykki), fellið af næstu 13 lykkjur (fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja), 1 lykkja garðaprjón og prjónið klukkuprjónsmynstur yfir síðustu 25-29-37 lykkjurnar (= hálft bakstykki). Klippið þráðinn frá. Látið lykkjurnar fyrir framstykki bíða á prjóninum. BAKSTYKKI: = 53-59-75 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, A.4 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir (þ.e.a.s. klukkuprjónsmynstrið byrjar og endar á 1 klukkuprjónslykkju brugðið) og endið með 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 14-16-18 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja (þetta er gert til að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman). FRAMSTYKKI: Prjónið yfir 53-59-75 lykkjur á framstykki á sama hátt og á bakstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Marit wrote:
Har dere noen video av hvordan man syr sammen hullet i toppen av lua til slutt sånn at det blir pent?
13.03.2024 - 21:58DROPS Design answered:
Hej Marit, ja, se sidst i denne video, du kan spole til sidste minut :) Lue 150-40
15.03.2024 - 09:42Sigrid Westly wrote:
Hei, Halskantens første omgang: strikk 2 r sammen, lag kast og ta maske løst av. Dette medfører vel ingen reduksjon i maskeantall, hvordan går det da fra 78 til 52 masker? Begynnelsen på A1 gir heller ingen mening når man har kast i første omgang, skal første omgang strikkes uten kast? Hilsen Sigrid
08.01.2021 - 22:43DROPS Design answered:
Hei Sigrid. 1) Jo, du reduserer når du strikker 2 masker sammen. Kastet du gjør tilhører masken du løfter løst over på høyre pinne (= patentmaske). Så når du er ferdig med 1 omgang teller du ikke med kastene, da stemmer maskeantallet som står i oppskriften. 2) Her kunne det ha vært bedre formulert. Oppskriften er oversendt til design avd for en dobbeltsjekk. (ser ut som 1.omgang i diagrammet er både forklart og vist i diagrammet). mvh DROPS design
15.01.2021 - 10:50Angelika Baumann wrote:
Sehr gut beschrieben, gut zum Nachmachen.
07.11.2020 - 14:32Marit wrote:
Hei, det henvises til diagram i beskrivelsen, men jeg ser ikke atdiise er oppgitt i oppskriften?
01.11.2020 - 08:03DROPS Design answered:
Hei Marit. Ja, her var diagrammene glemt å publiseres. De er lagt til nå, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS design
02.11.2020 - 14:47Evelyn Waddell wrote:
Wondering when this will be issued. I've been checking for a week or so. It looks practical.
20.10.2020 - 23:14