DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Elegant Emerald

Prjónað hálsskjól úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 214-36
DROPS Design: Mynstur me-216
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL
Stykkið mælist ca: Axlavídd = ca 46-48-54 cm. Lengd = ca 34-35-38 cm mælt frá öxl og niður.

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300 g litur 31, skógargrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 11.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Nýjar lykkjur á fram- og bakstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og nýjar lykkjur á öxlum eru prjónaðar inn í storff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og axlir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram kanti á öxlum og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 124-132-132 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm.
Næst umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið síðan sléttar lykkjur yfir næstu 44-44-44 lykkjur og aukið jafnframt út 4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-22-22 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 44-44-44 lykkjur og aukið jafnframt út 4 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 16-20-20 lykkjur = 132-140-140 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki eftir 26. lykkju í umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið fyrsta prjónamerki eftir þessa lykkju (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis – þetta er nú byrjun á umferð). Setjið næstu 3 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Hoppið yfir næstu 50-50-50 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri öxl), hoppið yfir næstu 16-20-20 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri öxl og framstykkis), hoppið yfir næstu 50-50-50 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri öxl), nú eru 16-20-20 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið nú mynstur þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 30 lykkjur, 9-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki situr hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 8 lykkjur fleiri fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-15-19 sinnum = 252-260-292 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 11-11-14 cm frá prjónamerki sem sett var í eftir kant í hálsi. Ef stykkið mælist styttra en þetta er prjónað áfram án útaukningar að réttu máli – stillið af að endað sé eftir umferð sem er 1.,3., 5., 7. eða 9. umferð í A.1. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 81-81-89 lykkjur og setjið þær á þráð (= bakstykki), prjónið eins og áður yfir næstu 44-48-56 lykkjur og setjið þær á þráð (= hægri öxl), prjónið næstu 82-82-90 lykkjur eins og áður og setjið þær á þráð (= framstykki), prjónið eins og áður yfir næstu 44-48-56 lykkjur (= vinstri öxl) og haldið eftir þessum lykkjum á prjóni. Færið inn síðustu lykkjuna í umferð á þráðinn saman við lykkjur á bakstykki (= 82-82-90 lykkjur af þræði fyrir bakstykki). Öll laskalínan er nú færð að framstykki og bakstykki. Prjónið nú stykkin fram og til baka hvort fyrir sig.

VINSTRI ÖXL:
= 44-48-56 lykkjur. Prjónið fram og til baka með stroffi eins og áður með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 8 umferðir, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI ÖXL:
Prjónið á sama hátt og vinstri öxl.

FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu með hringprjón 4 og Merino Extra Fine og prjónið upp 8 lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram hlið á hægri öxl (þ.e.a.s. 8 umferðir með stroffi), prjónið inn 82-82-90 lykkjur af þræði fyrir framstykki í mynstri eins og áður á prjóninn, prjónið upp 8 lykkjur jafnt yfir innan við 1 kantlykkju garðaprjón meðfram hlið á vinstri öxl (þ.e.a.s. 8 umferðir með stroffi) = 98-98-106 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir 82-82-90 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram fram og til baka, þ.e.a.s. prjónið mynstur eins og áður með 8 lykkjum stroff í hvorri hlið (ystu 2 lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni svo að kanturinn rúllist inn í hliðum). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 18-18-18 cm frá skiptingu (þar sem 8 lykkjur voru teknar upp í hvorri hlið á framstykki) – stillið af að endað sé eftir 4. umferð í A.1. Nú er aukið út um 8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, hvoru megin við A.1 (ekki er aukið út yfir lykkjur í stroff í hvorri hlið) = 114-114-122 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð til baka með sléttum lykkjum yfir slétta lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 8 lykkjur og haldið áfram með stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 34-34-38 lykkjur, prjónið A.2 yfir A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 34-34-38 lykkjur og haldið áfram með stroff eins og áður út umferðina. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir með stroffi. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Hálsskjólið mælist ca 34-35-38 cm frá öxl og niður.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Katherine wrote:

Als ik de 15 meerderingen gedaan heb voor maat small kom ik inderdaad aan 252 steken maar als ik dan 81+44+82+44 op een hulpdraad moet zetten heb ik 1 steek over...hoe moet het dan?

19.12.2023 - 15:37

DROPS Design answered:

Dag Katherine,

De laatste steek zet je op de hulpdraad met de steken voor het achterpand, zoals ook in de tekst beschreven staat.

20.12.2023 - 18:49

country flag Leue wrote:

Zijn in patroon A1 enkel de oneven rijen getekend?

18.12.2023 - 13:59

DROPS Design answered:

Dag Leue,

In het telpatroon zijn alle rijen getekend, dus zowel de even als de oneven rijen.

10.01.2024 - 09:58

country flag Lyse Goyette wrote:

Bonjour est ce qu'il y aurait une erreur dans le nombre de fois d'augmentations pour la 2ième grandeur , ( moi il me manque 5 augmentations .... Merci de votre réponse ...

23.08.2022 - 05:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Goyette, vous avez 140 m avant le raglan, vous augmentez 15 fois 8 mailles = 140 +(15*8)= 260 mailles quand toutes les augmentations des raglans ont été faites. En espérant que ceci puisse vous aider. Bon tricot!

23.08.2022 - 08:06

country flag Margaret Sedgwick wrote:

Hi, would love to knit this lovely pattern, but just cannot use circular needles. Help! Please. Thank you.

15.01.2022 - 09:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sedgwick, this lesson might help you to adapt this pattern into straight needles. Happy knitting!

17.01.2022 - 08:09

country flag GRETA VANTWEMBEKE wrote:

Cet possible d'avoirle potron en nerlandais svp

19.11.2021 - 20:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vantwembeke, tout à fait, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et sélectionnez "nederlands" - Bon tricot!

22.11.2021 - 07:16

country flag Josee Brunette wrote:

Bonjour.. je tricote l'empiècement. J'ai terminé les augmentations pour le Raglan et j'ai atteint le nombre de mailles requis cependant, je n'ai pas la longueur demandé. Selon les instructions, je dois continuer jusqu'à la longueur indiquée. Dois-je aussi continuer les augmentations?? Merci à l'avance Josée

21.09.2021 - 01:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brunette, si votre tension en hauteur n'est pas juste, tricotez simplement comme avant jusqu'à la hauteur indiquée, mais n'augmentez plus, pensez à bien arrêter après un rang impair de A.1 pour que le tour suivant (lorsque vous divisez l'ouvrage) soit un tour pair de A.1. Bon tricot!

21.09.2021 - 09:08

country flag Josée Brunette wrote:

Bonjour, pour l'empiècement, j'ai 140 mailles. On me demande de tricoter 1 maille endroit marqueur - glisser 50 mailles, marqueur - 20 mailles marqueur - 50 mailles, marqueur - 20 mailles - marqueur. 1+50+20+50+20 égal 141 mailles. Pouvez vous m'expliquer ce que je ne comprends pas?? Merci

12.09.2021 - 20:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brunette, la 1ère maille ne compte pas, vous la tricotez pour décaler le début du tour, autrement dit vous avez: 50+20+50+20 = 140 mailles (la maille que vous avez tricoté avant de mettre le marqueur est maintenant la dernière maille du tour). Bon tricot!

13.09.2021 - 09:05

country flag Stephanie Bevis wrote:

Should the smaller sized needle be 3 mm (as noted in the pattern instructions) or 3.5 mm as stated in the list of equipment needed, please?

27.03.2021 - 19:00

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, it seems it's a mistake of the equipment section: you use 3 mm needles, instead of 3.5 mm. We'll proceed to correct the mistake. Happy knitting!

28.03.2021 - 20:38

country flag Carin Perman wrote:

Beskrivning :sticka som förut över de första 81 mask.o sätt dem på en tråd sticka över nästa 44 och sätt på en tråd osv Jag undrar skall maskorna sitta kvar på rundstickan förklara den här biten av stickbeskr för mig Tack på förhand

19.02.2021 - 17:19

DROPS Design answered:

Hej Carin. Efter att du har satt maskor på tråden så ska du endast ha de 44 m till vänster axel kvar på stickan. Du stickar efter detta de olika delarna fram och tillbaka var för sig. Mvh DROPS Design

22.02.2021 - 11:37

country flag Adriana wrote:

Holaaa!! Consulta: a que le llaman extra fine cuando hablan del grosor del hilado?. Muchas gracias.

09.01.2021 - 01:35

DROPS Design answered:

Hola Adriana. Merino Extra Fine es una forma especial del hilo (cable spun). Normalmente es para agujas de 4-5 mm y 50 gr = aprox. 105 m. Estos hilos parecen voluminosos, pero al trabajar la labor tienen una textura bastante fina.

10.01.2021 - 12:21