NZINA skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas le premier rang de A.1. Est-ce une torsade ou bien 4 mailles rabattues ensemble ? Merci.
14.12.2020 - 12:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Nzina, au 1er rang de A.1 vous retrouvez les 2 derniers symboles de la légende: d'abord placer 1 maille sur l'aiguille auxiliaire devant l'ouvrage, tricoter 1 maille endroit, reprendre la maille en attente et la tricoter à l'endroit puis placer 1 maille sur l'aiguille auxiliaire derrière l'ouvrage, tricoter 1 maille endroit, reprendre la maille en attente et la tricoter à l'endroit. Bon tricot!
14.12.2020 - 13:31
Maryline skrifaði:
Merci pour votre message Beau modèle Maryline
23.10.2020 - 13:37
Maryline skrifaði:
Bonjour Pour ce modèle,j'ai terminé le 1er diagramme 16 rangs Pouvez vous me dire comment continuer: je recommence depuis le début ? Merci
20.10.2020 - 17:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Maryline, vous répétez les diagrammes en hauteur, comme vous avez répété A.1 pour terminer A.2 et A.3, autrement dit, quand les diagrammes sont terminés, vous les reprenez au 1er rang. Bon tricot!
21.10.2020 - 08:00
Marit skrifaði:
Diagram A1, der er det 2 forskjellige symboler, et stort på nederste omg. over 4 masker😉
09.10.2020 - 14:37DROPS Design svaraði:
Hei Marit. Det du mener er 1 stort symbolet på 1.rad er 2 symboler, lik de 2 over, men står bare forskjellige veier. mvh DROPS design
11.10.2020 - 20:50
Marit skrifaði:
Forklaring til diagram 1, et mønstertegn uten forklaring.
08.10.2020 - 21:27DROPS Design svaraði:
Hej Marit. Det ska finnas förklaring till alla symboler. Vilken är det du inte kan se? Mvh DROPS Design
09.10.2020 - 07:44
Viviana skrifaði:
Bel traforo
08.06.2020 - 20:56
Raspberry Rose Sweater#raspberryrosesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með gatamynstri, litlum köðlum og hringlaga hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 218-18 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 242 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 10,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 9. og 10. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki og ermar): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við hvort prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Prjónið síðan framstykki og bakstykki fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 242-264-286-312-348-378 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir í stroffi, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað erum 24-26-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 218-238-258-282-314-342 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 109-119-129-141-157-171 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 6-11-12-18-21-25 lykkjur sléttprjón A.1 (= 12 lykkjur), prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 64-64-72-72-80-88 lykkjur (= 8-8-9-9-10-11 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.1 (= 12 lykkjur), prjónið 6-11-12-18-21-25 lykkjur sléttprjón *, prjónamerki, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 9-9-9-9-10-10 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 230-250-270-294-322-354 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm. Í næstu umferð er fellt af fyrir handvegi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í annarri hliðinni á stykki, fellið af 6 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð og fellið af þær 3 lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 109-119-129-141-155-171 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-2-3-5-6-7 sinnum og 1 lykkju 1-3-2-3-4-5 sinnum í hvorri hlið = 103-105-113-115-123-133 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 37-37-41-41-43-43 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 31-32-34-35-38-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir kaðal í A.1 = 30-31-33-34-37-42 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: = 109-119-129-141-155-171 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-2-3-5-6-7 sinnum og 1 lykkju 1-3-2-3-4-5 sinnum í hvorri hlið = 103-105-113-115-123-133 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 43-44-46-47-49-50 cm. Í næstu umferð eru miðju 17-17-21-21-23-23 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum = 31-32-34-35-38-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir kaðal í A.1 = 30-31-33-34-37-42 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 54-56-58-62-64-66 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir með stroffi, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚRTAKA = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 6-9-6-11-9-5 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 16-18-20-21-23-25 sinnum = 80-86-92-98-104-110 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-47-46-45-44-43 cm. Nú eru eftir ca 7-8-8-10-11-11 cm á ermakúpu að loka máli. Mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd áður en ermakúpan er prjónuð. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur og prjónið sléttprjón út umferðina. Afgangur af ermakúpu er prjónuð fram og til baka á hringprjón í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fækkið um 2 lykkjur 3-5-5-5-5-5 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 3-2-2-4-6-6 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 53-54-53-54-54-53 cm (eða þar til 1 cm er að loka máli). Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkju sem eftir eru. Ermin mælist ca 54-55-54-55-55-54 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stuttan hringprjón 2,5 og prjónið upp ca 118 til 140 lykkjur í kringum hálsmál, meðtaldar lykkjur af þræði að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið 6 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raspberryrosesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.