Tineke skrifaði:
Kan ik ook markeringen in de steek zetten ipv markeerdraden in de 4 e steek?
13.03.2025 - 18:53DROPS Design svaraði:
Dag Tineke,
Je kan natuurlijk op je eigen manier de betreffende steek markeren, als je maar voor jezelf weet welke steek het is.
18.03.2025 - 20:15
Lara skrifaði:
Hello, is it possible to knit this without the knots, just with increases? Is the knit decorative or does it also make an increase? Thank you!
27.07.2024 - 15:05DROPS Design svaraði:
Hi Lara, it is possible. The knota are purely decorative, there is not any increase in there. Happy knitting!
28.07.2024 - 16:31
Annelie Collyer skrifaði:
Love this pattern. I would like to try it.
24.04.2024 - 18:39
Zeline skrifaði:
Bonjour Je n'arrive pas é déterminer si ce modèle se tricote avec un seul fil de brushed alpaca silk ou avec 2 fils ? Pouvez vous m'éclairer ? Merci
19.02.2024 - 09:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Zeline, ce pull se tricote avec 1 seul fil Brushed Alpaca Silk. Bon tricot!
19.02.2024 - 09:58
Galerand skrifaði:
Merci beaucoup pour votre réponse, c'est ce que j'ai fait et tout va bien
22.01.2024 - 12:40
Galerand skrifaði:
J'ai fini les augmentations et j'ai bien mes 252 mailles pour la taille L, ensuite faire 21 cm à partir du fil marqueur, de quel fil marqueur parlez vous, est-ce à partir du col, merci de votre réponse
20.01.2024 - 14:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Galerand, à la fin du col, on a placé un marqueur au milieu dos, au début du tour, ce marqueur est celui qui sert de repère pour mesurer l'empiècement. Mesurez à partir d'ici (sans le col), et divisez l'ouvrage quand vous avez atteint 21 cm à partir de ce marqueur. Bon tricot!
22.01.2024 - 08:20
Camilla skrifaði:
Förstår inte hur jag ska hantera markörerna, de ska sitta i en maska skriver ni, inte emellan. Hur får jag dem då att följa med i arbetet och hamna på rätt ställe?
03.01.2024 - 17:34
Leena Saikko skrifaði:
Hi, I'd like to knit design Amur maple. Can I use Drops Nord Mix yarn instead of Drops brushed alpaca silk ? With best regards Leena Saikko
30.10.2023 - 19:34DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Saikko, you can use 2 strands DROPS Nord instead of 1 strand DROPS Brushed Alpaca Silk, just note that the texture might be different due to the different content of each yarn. Read more here on how to calculate new amount of yarn. Happy knitting!
31.10.2023 - 15:49
Ewa skrifaði:
Hi, are the st counts correct? Given 76 st, to have 3 st between each marker, you need do place 26 markers, don’t you? But it says 19 markers. Then adding a st 8 times after each marker makes it adding >200 st, so after all you end ul with >280 st. But it says 228. Am I missing somethog?
30.09.2023 - 08:54DROPS Design svaraði:
Witaj Ewo, markery są wkładane w oczka. Zatem masz 19 oczek z markerem i 19 części po 3 oczka każda: 19 (z markerami) + (19x3)= 19+57= 76 oczek. Pozdrawiamy!
02.10.2023 - 11:21
Hanne A skrifaði:
Kan det passe at der strikkes med 1 tråd. Jeg synes resultatet bliver grimt og alt for løst og åbent. Sådan ser det ikke ud på billedet.
21.03.2023 - 16:06DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Det strikkes med 1 tråd. Får du den oppgitte strikkefastheten? Husk pinne nr er kun veiledende. Får du for mange masker på 10 cm, bytt til tykkere pinner. Får du for få masker på 10 cm, bytt til tynnere pinner. mvh DROPS Design
27.03.2023 - 09:47
Amur Maple#amurmaplesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, sléttprjóni og útaukningu. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna upp 1 lykkju í lykkjuna á milli 2 lykkja frá fyrri umferð. HNÚTUR: Prjónið 3 lykkjur (lykkja með prjónamerki, nýja lykkjan frá fyrri umferð og næsta lykkja) brugðið saman, sleppið ekki lykkjunum af prjóninum, en prjónið sömu 3 lykkjurnar slétt saman og síðan brugðið saman 1 sinni til viðbótar, sleppið að lokum öllum 3 lykkjum af vinstri prjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Prjónamerki eru sett í stykkið og aukið er út við þau. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið 19-20-21-22-23-24 prjónamerki í stykkið, setjið prjónamerkin lykkju, það eru 3 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Haldið áfram með sléttprjón hringinn, þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju á eftir hverja lykkju með prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNINGU. Í næstu umferð er prjónaður hnútur við hvert prjónamerki, hnútarnir eru prjónaðir í lykkjuna með prjónamerki, lykkjan sem aukið er út og næstu lykkju – SJÁ HNÚTUR. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið útaukningu og hnúta með 2-2½-2½-2½-2½-2½ cm millibili alls 8-8-8-9-10-10 sinnum, í hvert skipti sem aukið er út verður 1 lykkju fleiri á milli hnúta. Eftir alla útaukningu eru 228-240-252-286-322-336 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki, í næstu umferð er aukið út um 4-16-20-18-2-8 lykkjur jafnt yfir = 232-256-272-304-324-344 lykkjur. Nú skiptist fram- og bakstykkið og ermar þannig: Prjónið 34-38-40-44-49-53 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-53 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-192-216-236 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-28-29-29-29-29 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 6 cm – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttar lykkjur hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-5-4-3-2½-2 cm millibili alls 6-7-9-12-12-13 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-38-38-37-36-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og aukið út 2-0-2-0-2-0 lykkjur = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stoffið mælist 4 cm. Ermin mælist ca 44-42-42-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #amurmaplesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.