Verky skrifaði:
People, why did you comment the pattern is wrong, when is you who have problems with understanding the instructions , it's really simple, and the reason is very visible at the pictures...
01.11.2020 - 16:11
Petra Martin skrifaði:
Die Anleitung ist super
30.10.2020 - 14:51
Margaret Chesters skrifaði:
Hi, as Tiinu mentioned a month ago, the ribbed area neck edge should be knitted for 3cm not 7cm as your instructions mention.
22.10.2020 - 18:23
Tiinu skrifaði:
Mustri kirjeldus ei vasta pildil olevale tootele. Kaeluse kõrgus ei ole 7 cm. vaadake üle cm ja read.
21.09.2020 - 19:09
Vera skrifaði:
Mooie trui die opvalt door de kraag!
05.08.2020 - 13:56
Wild Mint Sweater#wildmintsweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsi, hringlaga berustykki og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-16 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 2,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hvorri hlið á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.2 (= 9 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í hlið og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 mitt undir ermi, þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 94-98-102-108-112-116 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-34-36-38-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 126-130-136-144-150-154 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjóna 4 og prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, aukið út um 42-32-34-36-50-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 168-162-170-180-200-206 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 4-5-6-7-7-8 cm – aukið jafnframt út 0-18-10-18-31-39 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 168-180-180-198-231-245 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 28-30-30-33-33-35 mynstureiningar með 6-6-6-6-7-7 lykkjur). Þegar A.1 sé prjónað til loka á hæðina, eru 280-300-330-363-396-420 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 15-16-18-19-21-22 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið sléttprjón – aukið jafnframt út 4-8-2-9-0-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 284-308-332-372-396-428 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 41-45-48-53-59-65 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 82-90-96-106-118-130 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-80-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-9-9-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-45-48-53-59-65 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-210-230-258-282 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – í miðju af 7-7-9-9-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Prjónið sléttprjón yfir bakstykki þar til 4 lykkjur eru eftir á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í – umferðin byrjar nú hér. Prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju af þessum 9 lykkjum), prjónið 80-88-96-106-120-132 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju af þessum 9 lykkjum), prjónið 80-88-96-106-120-132 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 í hvorri hlið á fram- og bakstykki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 190-206-222-242-270-294 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru lykkjur auknar út jafnt yfir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið 86-94-102-112-126-138 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 19-21-23-25-27-29 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur, prjónið A.2 eins og áður, prjónið 86-94-102-112-126-138 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 19-21-23-25-27-29 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur = 228-248-268-292-324-352 lykkjur. ATH: Það er aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragið stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2 í hinni hliðinni á stykkinu, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.2 eins og áður yfir næstu 9 lykkjur, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-64-70-80-80-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-9-9-11-11 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-79-89-91-95 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju af 7-7-9-9-11-11 lykkjum. Byrjið umferð 4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið A.2 (= 9 lykkjur – prjónamerki situr í miðju af þessum 9 lykkjum), prjónið þær lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstri. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.2 – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 10-11-14-18-18-18 sinnum = 47-49-51-53-55-59 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-36-35-33-31-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Í næstu umferð er lykkjum aukið út jafnt yfir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið síðan 38-40-42-44-46-50 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 9-9-11-11-11-11 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur = 56-58-62-64-66-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.2 eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan A.2 og endið með 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 46-44-43-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kant í hálsmáli tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu, fallegu spori. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildmintsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.