Eija Pyykkönen skrifaði:
Koko M. Mittaanko tuosta "kauluksen" jälkeen laitetusta merkistä sen kuinka pitkään neulon, ennenkuin erottelen hihat ja etu+takakpl?
16.09.2020 - 14:07DROPS Design svaraði:
Kyllä, kaikki kaarrokkeen mitat otetaan kyseisestä merkistä.
22.09.2020 - 17:18
Carolynne skrifaði:
COULD YOU PLEASE LET ME KNOW WHAT YARN GROUP A, B ETC. MEANS LIKE "WHAT IS YARN "A" DK OR WORSTED WIEGHT
15.09.2020 - 19:11DROPS Design svaraði:
Dear Carolyne, you will read more about yarn groups and kind/type of each yarn here . Happy knitting!
16.09.2020 - 08:27
Hanne Mette Andersson skrifaði:
Hei Det står feil i oppskrift for erme i str M. 53 masker pluss plukk opp 8 er lik 61 - ikke 51.
02.09.2020 - 07:24DROPS Design svaraði:
Hej Hanne. Tack för info, detta är nu rättat! Mvh DROPS Design
02.09.2020 - 08:44
Mira Ekstrand skrifaði:
Hej! Går det att byta garnera till endast Air som också har 17m?
30.08.2020 - 16:52DROPS Design svaraði:
Hej Mira, Ja det går bra :)
31.08.2020 - 10:20
Melanie skrifaði:
Thanks for reply but the chart for this pattern doesn't have measurements across the chest like the one in the tutorial. Are they the same as the numbers at the bottom?
14.08.2020 - 10:51DROPS Design svaraði:
Dear Melanie, sure, if there is only one measurement, this means there is no other width, the body has straight edges, ie no increases nor decreases on the sides = bottom edge will be the same as bust/ches. Happy knitting!
14.08.2020 - 11:13
Melanie skrifaði:
In the drawing which numbers are the chest measurement?
13.08.2020 - 18:45DROPS Design svaraði:
Dear Melanie, you will find how to read measurement charts here. Happy knitting!
14.08.2020 - 07:18
Davenport Michèle skrifaði:
Mon préféré Hiver blanc White Winter
16.06.2020 - 11:47
Ulrika skrifaði:
Aniuk - I think it means something likte snow melting into water
11.06.2020 - 12:31
Isabelle skrifaði:
Cristaux de neige. J'aime beaucoup le modèle et aimerais trouver les explications. Ou sont-elles?
08.06.2020 - 10:26
Sylvie Lehmann skrifaði:
Très beau modèle
07.06.2020 - 08:44
Endless Possibilities Sweater#endlesspossibilitiessweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL
DROPS 216-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 9,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-92-96-100 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-11-14-13-16-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 84-91-98-105-112-119 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.1 alls 12-13-14-15-16-17 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 216-234-252-270-288-306 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 16-17-18-18-18-18 cm, aukið út um 12-12-14-13-14-19 lykkjur jafnt yfir = 228-246-266-283-302-325 lykkjur. Útaukning í stærð S, M og L er nú lokið – haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. Í stærð XL, XXL og XXXL haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 22-24-26 cm. Aukið út um 13-14-19 lykkjur jafnt yfir = 296-316-344 lykkjur. Allar stærðir: Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 32-35-37-42-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 50-53-58-64-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-70-75-84-92-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-53-58-64-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 32-35-38-42-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-170-188-208-228 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm, aukið út um 28-32-34-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 172-188-204-228-252-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 50-53-58-64-66-70 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-61-68-74-78-82 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-5-5-5-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá AFFELLING. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 9-10-13-15-16-17 sinnum = 40-41-42-44-46-48 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-37-36-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), aukið út um 8-7-10-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 42-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið niður stroffið þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #endlesspossibilitiessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.