Gunvor Bergström skrifaði:
Jag stickar Mikado Jacket och har fått repa upp mönstret på oket. Befinner mig nu i början av mönstret igen d v s varv 3. Jag ska då sticka 1 rät och sedan omslag och lyfta en maska. Det innebär ju att på 2 maskor får jag 3 och arbetet kommer att öka från 181 maskor till ca 240 maskor. Sedan ökas i mönstret vid symbolen x så att en maska blir 5 m 17 ggr =68, detta görs 2 ggr =136 m. Slutresultatet kan inte bli 325 maskor, jag får det till 376. Är mönstret eller jag fel?
14.12.2020 - 10:31DROPS Design svaraði:
Hej, mönstret stämmer. Du ska öka 1 maska till 5 maskor totalt 18 gånger och detta görs två gånger. Det ökas alltså totalt 144 maskor. 181 + 144 blir 325. Maskorna som "ökas" i patentstickningen räknas inte in i maskantalet.
16.12.2020 - 14:33
Eva Albinsson skrifaði:
Hej! Normalt skulle nästa varv vara avigt varv, alltså varv 2 på diagrammet. Men jag tolkar det som att det är ett rätt varv igen (alltså från rätsida) , och att de följande 2 varven stickas från avigan. Inte varannat rätt och avigt, utan 1 och 2 räta (rätsida) , 3 och 4 aviga (avigsidan). Stämmer det??
13.11.2020 - 17:20DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design
17.11.2020 - 07:57
Eva Albinsson skrifaði:
Tack! :)
13.11.2020 - 14:48
Eva Albinsson skrifaði:
Hej! När jag lyfter maskan ska garnet då löpa (ligga) framför den lyfta maskan? Mvh Eva
13.11.2020 - 11:55DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Tråden ligger bakom arbetet när du lyfter maskan. Mvh DROPS Design
13.11.2020 - 13:23
Eva Albinsson skrifaði:
Hej! Tack!!
13.11.2020 - 11:49
Eva Albinsson skrifaði:
Hej! Jag förstår fortfarande inte. A3 : ofylld romb före =1 rät maska plus = 1 rät maska svart prick = ett omslag och 1 lyft maska Det blir tre maskor (plus ett omslag), inte 2. Och A4 ger då 5 maskor. Kan du steg för steg beskriva hur jag tyder varje symbol. Mvh Eva
13.11.2020 - 11:16DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Den första symbolen är ingen maska utan endast en förklaring på vilken färg du ska sticka de 2 maskorna i diagrammet med. Så när du ska sticka diagram A.3 så stickar du: rätmaska (=plus-symbolen), 1 omslag och 1 lyft maska (= svart prick -symbolen). Mvh DROPS Design
13.11.2020 - 11:46
Eva Albinsson skrifaði:
Hej! Jag är på varv 3 och första varvet på diagram A3 och A4. Det ska bli 17 ggr på bredden men jag har 11. Jag förstår inte vad som är fel, hur jag ska läsa diagrammet. Maskantalet efter ökningarna stämmer. Mvh Eva
12.11.2020 - 20:40DROPS Design svaraði:
Hej Eva. Du stickar 1 kantmaska + A.3 (=2 m) + "A.4 (=4 m), A.3 över 6 m" totalt 17 ggr (dvs (4m+6m) x 17 = 170m), + A4 (= 4 m), A.3 över 3 m och avsluta med 1 kantmaska. 1+2+170+4+3+1= 181 m. Mvh DROPS Design
13.11.2020 - 08:24
Eva Albinsson skrifaði:
Hej! Är på varv 3 och har stickat v första varvet på diagram A3, A4. Det ska bli 17 ggr på bredden men jag har 11. Jag förstår inte vad jag gör fel, hur jag ska läsa diagrammet. Maskantalet efter ökningarna stämmer. Mvh Eva
12.11.2020 - 20:34
Vigdis skrifaði:
Hvordan kan jeg finne ut hvilken størrelse jeg skal strikke?
19.10.2020 - 21:38DROPS Design svaraði:
Hej Vigdis, nederst i opskriften finder du en måleskitse som viser målene på jakken i de forskellige størrelser. Og lidt længere nede i opskriften finder du en lektion som viser "Slik leser du en målskisse". God fornøjelse!
20.10.2020 - 08:26
Ulla Sjösten skrifaði:
Efter första ökningen i diagrammet har jag redan det antal maskor som jag ska ha när diagrammet är färdigstickat! Jag har alltså ett ökningsvarv kvar längre upp i diagrammet!! Är det ett fel i mönstret? Tacksam för hjälp, har haft kontakt med affären där jag köpt garn och mönster, men vi kan inte lösa det!! Hälsn Ulla
08.09.2020 - 09:36DROPS Design svaraði:
Hej Ulla. Vilken storlek stickar du så ska vi se om vi kan hjälpa dig. Mvh DROPS Design
08.09.2020 - 11:31
Mikado Jacket#mikadojacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita klukkuprjóni og lettneskum köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-8 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.1 og A.2 er prjónuð í sléttprjóni með tveggja lita mynstri. Mynsturteikning A.3 og A.4 er prjónuð í tveggja lita klukkuprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 133 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 123 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 8,78. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-7½-8-8½-8½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 129-133-137-145-151-157 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum karrí. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Skiptið yfir í litinn ljós beige (klippið frá þráðinn með litnum karrí). Í næstu umferð er prjónað stroff frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru í umferð, 1 lykkja slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar kantur í hálsi mælist 1½-2 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff í 7-8-8-9-9-10 cm, frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 4. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 14-14-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 143-147-155-163-173-183 lykkjur. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt. Setjið 5 kantlykkjur að framan á sitt hvorn þráðinn í hlið á stykki án þess að prjóna þær, það á að prjóna mynstur yfir berustykki, áður en kantur að framan er prjónaður sér og saumaður niður í lokin = 133-137-145-153-163-173 lykkjur. Skiptið yfir í karrí, klippið frá þráðinn í litnum ljós beige. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 20-20-20-20-26-28 lykkjur jafnt yfir og fitjið upp 1 kantlykkju í lok umferðar = 154-158-166-174-190-202 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur og fitjið upp 1 kantlykkju í lok umferðar = 155-159-167-175-191-203 lykkjur. Prjónið nú mynstur, prjónið lykkjur utan við mynstur með sama lit eins og fyrsta lykkja í mynstri. UMFERÐ 5: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 (= 4 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir (= 38-39-41-43-47-50 sinnum á breidd), prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: Skiptið yfir í karrí (það þarf ekki að klippa ljós beige þráðinn frá, það á að nota hann bráðlega). UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 12-12-14-16-20-28 lykkjur jafnt yfir = 167-171-181-191-211-231 lykkjur. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 0-0-1-0-0-0 lykkja sléttprjón, A.2 (= 4 lykkjur) þar til 2-2-3-2-2-2 lykkjur eru eftir (= 41-42-44-47-52-57 sinnum á breidd), prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.2, 0-0-1-0-0-0 lykkju sléttprjón og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 12-13-13-14-14-15 cm. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, með litnum ljós beige þar til stykkið mælist 12-13-13-14-15-17 cm. Prjónið síðan þannig: Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár (klippið frá þráðinn í litnum ljós beige) og prjónið síðan með hringprjón 3. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt. Þegar nú er prjónað mynstur, prjónið lykkjur utan við mynstur með sama lit og fyrstu lykkju í mynstri. UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.3 (= 2 lykkjur), * A.4 (= 4 lykkjur), A.3 yfir 8-6-6-6-6-6 lykkjur (= 4-3-3-3-3-3 sinnum á breidd) *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir (= 13-16-17-18-20-22 sinnum á breidd), A.4 yfir 4 lykkjur, A.3 yfir 3 lykkjur og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 279-307-325-343-379-415 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið lettneskan kaðal þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, með gallabuxnablár. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige, * 1 lykkja slétt með litnum ljós beige, 1 lykkja slétt með litnum gallabuxnablár *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt með litnum ljós beige og endið með 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige. UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige, leggið báða þræðina á bakhlið á stykki, 1 lykkja slétt með litnum ljós beige. Dragið þráðinn með litnum gallabuxnablár undir þráðinn í litnum ljós beige og prjónið 1 lykkju slétt með litnum gallabuxnablár. Haldið svona áfram með sléttum lykkjum til skiptis með litnum ljós beige og gallabuxnablár, en færði alltaf þráðinn UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem var prjónuð þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón með ljós beige. UMFERÐ 4 (= frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón með ljós beige, leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér), prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Dragið þráðinn með litnum gallabuxnablár undir þráðinn í litnum ljós beige, 1 lykkja brugðið með litnum gallabuxnablár og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis með litnum ljós beige og gallabuxnablár, en færið alltaf þráðinn UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem var prjónuð þar til 1 lykkja er eftir, leggið þráðinn með litnum gallabuxnablár á bakhlið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige. Stykkið mælist ca 21-22-22-23-24-26 cm. Prjónið nú stykkið í sléttprjóni með litnum ljós beige. Fellið af 1 kantlykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 277-305-323-341-377-413 lykkjur. Prjónið nú yfir kantlykkjur að framan þannig: HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Setjið lykkjur á hringprjón 4 og prjónið með litnum ljós beige þannig: Prjónið fram og til baka í garðaprjóni, en fitjið upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá röngu (þ.e.a.s. að berustykki). Þegar kantur að framan mælist sama og berustykkið, fellið kantlykkjur af í næstu umferð frá réttu og kantur að framan er settur til baka á sama hringprjón og afgangur af berustykki (þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu). VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Setjið lykkjur á hringprjón 4 og prjónið með litnum ljós beige þannig: Prjónið fram og til baka í garðaprjóni, en fitjið upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá réttu (þ.e.a.s. að berustykki). Þegar kantur að framan mælist sama og berustykkið, fellið kantlykkjur af í næstu umferð frá röngu, prjónið 1 umferð frá réttu og kantur að framan er settur til baka á sama hringprjón og afgangur af berustykki (þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu). BERUSTYKKI: = 287-315-333-351-387-423 lykkjur. Prjónið nú stykkið með litnum ljós beige. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Útaukningu er nú lokið í stærð S-M-L, en haldið áfram í stærð XL-XXL-XXXL þannig. STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 363-401-435 lykkjur. Endurtakið útaukningu eftir 2 cm = 375-415-447 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 287-315-333-375-415-447 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 22-24-25-28-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið til fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 39-44-46-53-59-65 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 79-89-95-107-119-131 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 39-44-46-53-59-65 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 183-203-213-239-263-287 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 48-53-55-62-68-74 inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru 87-97-103-115-127-139 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram með sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3-5-4-4-4-3 cm millibili alls 7-5-6-6-6-7 sinnum = 211-223-237-263-287-315 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-27-28-27-28-28 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er prjónuð í hring í sléttprjóni með ljós beige. Setjið 60-64-68-76-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-76-84-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja undir ermi (það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-14-17-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-36-35-33-32-31 cm frá skiptingu, prjónið lettneskan kaðal með litnum ljós beige og gallabuxnablár þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 1 lykkja slétt með litnum gallabuxnablár, 1 lykkja slétt með litnum ljós beige *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Dragið þráðinn með litnum gallabuxnablár yfir á bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og dragið þráðinn til baka að framhlið. Dragið þráðinn með litnum ljós beige undir þráðinn með litnum gallabuxnablár og síðan yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og dragið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur í til skiptis með litnum gallabuxnablár og ljós beige, en dragið alltaf þráðinn UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem var prjónuð. UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umferð, en nú er þráðurinn dreginn alltaf yfir þráðinn frá fyrri lykkju sem var prjónuð. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist ca 4 cm. Ermin mælist alls ca 42-41-40-38-37-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið lausa kanta að framan við berustykki, innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kanti að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mikadojacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.