Karine skrifaði:
Millise suuruse järgi ma peaksin kuduma L on RÜ 48 ja XL 53 aga mul on Rü 51.
23.07.2022 - 10:51DROPS Design svaraði:
Tere Karine! Oleneb ka sellest, kas teie koetihedus on sama, kui antud juhendis. Kui soovite liibuvamat pluusi, soovitan L suurust. Head kudumist!
30.07.2022 - 01:06
Annick skrifaði:
Bonjour..je finalise ma question d'hier : je parle de la dernière maille qui reste à la fin du rang lorsque l'on a fait toutes les augmentations..merci
18.05.2022 - 07:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Annick, tricotez cette maille comme les autres (cf ci-dessous), cette leçon pourra vous aider à comprendre ces augmentations à intervalles réguliers. Bon tricot!
18.05.2022 - 08:23
Annick skrifaði:
Merci pour votre réponse.. juste une petite précision... qu'est-ce que je fais de la 9eme maille ..je continue à la tricoter à l'endroit où je tricote la 8eme et 9eme ensemble..?? Merci de m'éclairer si possible
17.05.2022 - 19:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Annick, vous la tricotez tout simplement, si vous la diminuez, vous n'aurez pas le bon nombre de mailles. Bon tricot!
18.05.2022 - 08:15
Annick skrifaði:
Bonjour J'ai monté 121 mailles et augmenté 15 mailles soit 121:15= 8 et reste 1 m. Que dois-je faire de cette maille?? Merci pour votre conseil
16.05.2022 - 16:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Annick, c'est l'exemple que vous retrouverez sous AUGMENTATIONS au tout début des explications, autrement dit, vous faites 1 jeté après environ chaque 8ème maille, vous terminerez par 9 mailles, mais vos augmentations seront réparties à intervalles réguliers. Bon tricot!
17.05.2022 - 08:57
Kristine Vågenes skrifaði:
Beklager at jeg spør igjen,Jeg lurer på om ragelanøkningen skal stemme med mønstret.Jeg har 228 masker .Masketallet stemmer i de 4 delene,
12.05.2022 - 20:08DROPS Design svaraði:
Hej Kristine, nej du skal ikke få raglanøkningen til at stemme med mønsteret :)
13.05.2022 - 08:47
Kristine Vågenes skrifaði:
Jeg mener når vi skal begynne på raglanøkning får jeg ikke det til å stemme med masketallet mell om hver merke,Jeg strikker i str L
09.05.2022 - 18:52DROPS Design svaraði:
Hei Kristine, I størrelse L har du 228 masker på pinnen. Første merket er satt etter 34 masker (før neste masken ikke i masken), 2. merket etter 46 masker, 3. etter 68 masker og 4. etter 46 masker, og 34 masker igjen etter siste merket. 34 +46 +68 +46 + 34 = 228 masker. God fornøyelse!
10.05.2022 - 06:57
Kristine Vågenes skrifaði:
Får ikke ragelanfellingen til å stemme på str L. Masketallet stemmer.
09.05.2022 - 14:15DROPS Design svaraði:
Hej Kristine, jo du sætter mærkerne imellem maskerne, så du har ialt 68 på rygstykket, 68 på forstykket og 46 masker på hvert ærme = 228 masker :)
11.05.2022 - 07:44
Bodil Johansen skrifaði:
Jeg vil strikke nr. 213-8 Plejer at strikke str. XL, men når jeg vil strikke denne trøje passer målene ikke str. XL bliver for lille og Str. XXL for stor, hvad pindenummer vil i foreslå. Min strikkeprøve passer, jeg måler i alt 114 cm i omkreds.
03.05.2022 - 22:53DROPS Design svaraði:
Hej Bodil, brug den pind som gør at du overholder strikkefastheden. Hvis du følger XXL, så kan du jo prøve blusen og evt hoppe over sidste raglan udtagning, hvis blusen passer dig på det tidspunkt :)
04.05.2022 - 10:01
Marie Lezel skrifaði:
Bonjour je souhaiterais faire ce tee-shirt là. J ai en ma possession du Drops Safran, que je voudrais utiliser , est il possible de le tricoter en double pour obtenir un fil de catégorie B. Merci de votre réponse.
19.04.2022 - 22:34
Marie Lezel skrifaði:
Bonjour je souhaiterais faire ce tee-shirt là. J ai en ma possession de du Drops safran, que je voudrais utiliser , est il possible de le tricoter pour obtenir un fil de catégorie B. Merci de votre réponse.
19.04.2022 - 22:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lezel, pas vraiment car vous n'aurez pas le bon échantillon avec Safran qui est du groupe de fils A - retrouvez ici tous nos tops réalisés avec un fil du groupe A (avec un empiècement arrondi). Bon tricot!
20.04.2022 - 07:12
Summer Halo#summerhalotop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, laskalínu og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 121 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 8,1. Í þessu dæmi er aukið út á eftir ca 8. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring. Kantur á ermum er prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 121-125-129-135-145-149 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-19-23-17-15-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 136-144-152-152-160-168 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. BERUSTYKKI: Prjónið A.1 hringinn (= 17-18-19-19-20-21 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 204-216-228-228-240-252 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 10-10-10-11-11-11 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Setjið fyrsta prjónamerkið á eftir fyrstu 31-32-34-36-39-43 lykkjur (= ½ bakstykki), annað prjónamerkið er sett á eftir næstu 40-44-46-42-42-40 lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerkið er sett á eftir næstu 62-64-68-72-78-86 lykkjur (= framstykki) og fjórða prjónamerkið er sett á eftir næstu 40-44-46-42-42-40 lykkjur (= ermi). Nú eru 31-32-34-36-39-43 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á hálfu bakstykki. Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-3-5-11-11-12 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 6-6-6-4-5-6 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 252-288-316-348-368-396 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-0-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 256-292-316-348-372-396 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-61 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 52-62-68-72-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-84-90-102-112-122 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 52-62-68-72-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-45-51-56-61 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig, takið í burtu öll prjónamerki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-184-200-224-248-272 lykkjur. Setjið 1 nýtt prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið = 84-92-100-112-124-136 lykkjur hvoru megin við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 152-168-184-208-232-256 lykkjur. Prjónið í sléttprjóni þar til stykkið mælist alls 16 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á prjón 3,5. Prjónið 1 umferð perluprjón og fækkið jafnframt um 1 lykkju í umferð = 151-167-183-207-231-255 lykkjur. Prjónið síðan perluprjón í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING í útskýringu að ofan. Stykkið mælist ca 38-40-42-44-46-48 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-62-68-72-74-76 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-70-78-82-86-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 1 lykkju í þessari umferð = 59-69-77-81-85-89 lykkjur. Prjónið perluprjón hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerhalotop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.