DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Summer Promise

Prjónuð vafningspeysa með laskalínu úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 213-24
DROPS Design: Mynstur bs-159
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-450 g litur 2110, ljós gulur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 29, vanilla

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir lykkju í hliðum.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 261 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 22 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 34) = 7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 6. og 7. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir ystu 11 lykkjur í hvorri hlið.

ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á framstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað í hlið í hægra og vinstra framstykki (= 2 lykkjur færri í umferð) þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í skiptingunni á milli hægra framstykkis og bakstykkis, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið fram að prjónamerki í skiptingunni á milli bakstykkis og vinstra framstykkis, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna bæði uppslátt og úrtöku í mynstri (þ.e.a.s. 2. og 3. lykkju í A.2 og 5. og 6. lykkju í A.4), prjónið sléttar lykkjur yfir þessar 2 lykkjur þar til þeim hefur fækkað til loka.

LASKALÍNA:
Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 2 lykkjur á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 2 lykkjur á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VAFNINGSPEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handveg.
Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað fram og til baka. Að lokum er hægri og vinstri kantur að framan prjónað til loka áður en saumað er saman aftan í hnakka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 261-285-309-317-349-381 lykkjur á hringprjón 4 (meðtaldar 11 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.

Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð þannig: A.1 yfir fyrstu 11 lykkjurnar (= kantur að framan), sléttar lykkjur yfir næstu 239-263-287-295-327-359 lykkjur (þ.e.a.s. þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð), JAFNFRAMT er fækkað um 34-37-40-41-45-49 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, A.3 yfir síðustu 11 lykkjurnar (= kantur að framan) = 227-248-269-276-304-332 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið 1 prjónamerki 69-76-83-83-90-97 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 89-96-103-110-124-138 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum á framstykki.
Prjónið nú mynstur og stuttar umferðir á framstykki með byrjun frá réttu:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.1 yfir fyrstu 11 lykkjur (mynstrið á að passa með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn frá röngu á stykki, leggið þráðinn frá réttu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka í mynstri.
UMFERÐ 3: Prjónið A.1 yfir fyrstu 11 lykkjur, A.2 yfir næstu 7 lykkjur, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn frá röngu á stykki, leggið þráðinn frá réttu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka í mynstri.
Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið nýja mynstureiningu af A.2 yfir næstu 7 lykkjur í umferð í hvert skipti sem prjónað er frá réttu – stillið af að byrjað sé til skiptis í 1. og 3. umferð í mynstri í hvert skipti sem byrjað er á nýrri einingu með A.2, þannig að gatamynstrið (úrtaka + uppsláttur) er prjónað alveg eins í mismunandi einingum í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar prjónaðar hafa verið stuttar umferðir og 8-9-10-10-11-12 mynstureiningar með A.2 á breidd (þá eru eftir 2 lykkjur á undan prjónamerki í hlið), prjónið mynstur frá réttu yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð þannig:
Prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, prjónamerki situr hér, 1 lykkja brugðið, A.4 yfir næstu 84-91-98-105-119-133 lykkjur (= 12-13-14-15-17-19 mynstureiningar með 7 lykkjum), 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónamerki situr hér, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, A.4 yfir næstu 56-63-70-70-77-84 lykkjur, A.3 yfir síðustu 11 lykkjur. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir alveg eins og á hægra framstykki þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið A.3 yfir fyrstu 11 lykkjur (mynstrið á að passa með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn frá réttu á stykki, leggið þráðinn frá röngu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2: Prjónið til baka í mynstri.
UMFERÐ 3: Prjónið A.3 yfir fyrstu 11 lykkjur, A.4 yfir næstu 7 lykkjur, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn frá röngu á stykki, lyftið til baka ystu lykkjunni á hægri prjóni yfir á vinstri prjón, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið til baka í mynstri.
Haldið svona áfram fram og til baka og prjónið eina nýja einingu af A.4 yfir næstu 7 lykkjur í umferð í hvert skipti sem prjónað er frá röngu – stillið af að byrjað sé til skiptis á 1. og 3. umferð í mynstri í næstu umferð frá réttu í hvert skiptis sem byrjað er á nýrri einingu með A.4, þannig að gatamynstrið (úrtaka + uppsláttur) sé prjónaður alveg eins í mismunandi einingum í umferð.
Prjónið nú stuttar umferðir og 8-9-10-10-11-12 mynstureiningar með A.4 á breidd (nú eru eftir 2 lykkjur á undan prjónamerki í hlið), prjónið nú mynstur eins og áður frá röngu yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Nú er umferðum með stuttum umferðum lokið.
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður. Þegar stykki mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti og meðfram prjónamerki í hlið, byrjar úrtaka í hlið á framstykki – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 2 cm millibili alls 9 sinnum (= alls 18 lykkjur færri) = 209-230-251-258-286-314 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá uppfitjunarkanti (meðfram prjónamerki í hlið), fellið af 3-4-5-5-6-7 lykkjur fyrir handveg hvoru megin við prjónamerki í hliðum í næstu umferð frá röngu.
Nú eru 83-88-93-100-112-124 lykkjur á bakstykki og 57-63-69-69-75-81 lykkjur á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 110-112-116-118-120-122 lykkjur á hringprjón með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um (= 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) hringinn í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-14-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA-1 = 96-98-100-102-104-106 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Þegar ermin mælist 24-23-22-21-20-19 cm, fellið af 6-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi = 90-90-90-92-92-92 lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg í hvorri hlið = 377-394-411-422-446-470 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermar.
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður á framstykki og bakstykki og prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermum. Þegar stykkið mælist 2-1-0-2-1-0 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Lykkjum er fækkað mismunandi á framstykki, bakstykki og ermum.
Hægra og vinstra framstykki:
Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 23-26-29-29-32-35 sinnum (= 46-52-58-58-64-70 lykkjur færri á hvoru framstykki).
Bakstykki:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 23-26-29-29-32-35 sinnum (= alls 46-52-58-58-64-70 lykkjur færri á bakstykki).
Ermar:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 10-14-18-21-25-29 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 15-13-11-10-8-6 sinnum (= alls 80-80-80-82-82-82 lykkjur færri á hvorri ermi).

Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, eru 79-78-77-84-90-96 lykkjur eftir í umferð. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 11 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 37-36-35-42-48-54 lykkjur og fækkið jafnframt um 3-2-0-6-11-17 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 10 lykkjur, A.3 eins og áður yfir síðustu 11 lykkjur = 76-76-77-78-79-79 lykkjur. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 11 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= vinstri kantur að framan), fellið af næstu 54-54-55-56-57-57 lykkjur, prjónið síðustu 11 lykkjur (= hægri kantur að framan).

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið nú kant fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar kantur að framan mælist 4 cm, prjónið stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið fyrstu 7 lykkjur, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið til baka, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur, snúið.
Endurtakið umferð 1-4 einu sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum). Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist 15-15-15½-15½-16-16 cm meðfram lengstu hliðinni. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið kant að framan fram og til baka með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar kantur að framan mælist 4 cm, prjónið stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið fyrstu 7 lykkjur, snúið, herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið til baka, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur, snúið.
Endurtakið umferð 1-4 einu sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum). Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur að framan mælist 15-15-15½-15½-16-16 cm meðfram lengstu hliðinni. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið saman kanta að framan mitt að aftan og saumið síðan við hálsmál aftan í hnakka.

SNÚRA OG LYKKJUR:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 5 lykkjur.
Þegar snúran mælist ca 180 til 250 cm – eða að óskaðri lengd, fellið af. Festið endana í hvorum enda á snúru.
Heklið lykkju í hvorri hlið meðfram sléttri lykkju í skiptingunni á milli framstykkis og bakstykkis með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) með heklunál 3. Festið þræðina með keðjulykkju í hlið ca 5 cm neðan við þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, heklið loftlykkjur í ca 4 cm. Festið þræðina með 1 keðjulykkju ca 4 cm neðan við þar sem lykkjan byrjaði. Klippið þræðina frá og festið enda vel. Endurtakið í hinni hliðinni.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Danie wrote:

During cast on for the body it gives a number but then says “including 11 stitches”… does this mean that the extra stitches are already included in the original number or that we need to include 11 additional stitches? Thank you???

19.11.2023 - 08:00

DROPS Design answered:

Dear Danie, these stitches are included in the number of stitches to cast on, this means you don't have to cast them off extra. Happy knitting!

20.11.2023 - 10:34

country flag Deborah wrote:

Buongiorno. Non ho capito comunque. Si lavora sulle prime 11 e poi si fa un ferro accorciato. Poi si lavora sulle 11 + 7 maglie e di nuovo un ferro accorciato. Ma poi devo lavorare sempre su queste prime 11 e 11+7 fino ad aver fatto tutte le ripetizioni? Grazie

08.04.2023 - 19:25

DROPS Design answered:

Buonasera Deborah, deve aggiungere una ripetizione di 7 maglie di A.2 ad ogni nuovo ferro accorciato fino ad aver lavorato le ripetizioni indicate. Buon lavoro!

11.04.2023 - 23:12

country flag Deborah wrote:

Buongiorno. Non ho capito comunque. Si lavora sulle prime 11 e poi si fa un ferro accorciato. Poi si lavora sulle 11 + 7 maglie e di nuovo un ferro accorciato. Ma poi devo lavorare sempre su queste prime 11 e 11+7 fino ad aver fatto tutte le ripetizioni? Grazie

20.03.2023 - 10:03

DROPS Design answered:

Buonasera Deborah, deve aggiungere una ripetizione di 7 maglie di A.2 ad ogni nuovo ferro accorciato fino ad aver lavorato le ripetizioni indicate. Buon lavoro!

11.04.2023 - 23:12

country flag Deborah wrote:

Buongiorno. Non ho capito il passaggio dei ferri accorciati: ogni quanto li devo fare? Grazie

19.03.2023 - 14:03

DROPS Design answered:

Buonasera Deborah, deve lavorare a ferri accorciati fino al numero di ripetizioni di A.2 indicato. Buon lavoro!

19.03.2023 - 19:05

country flag Reuhl wrote:

Guten Tag, ich verstehe beim Rumpfteil nicht wie das funktioniert: "einschließlich je 11 Maschen beidseitig für die vorderen Blenden) mit 1 Faden BabyAlpaca Silk und 1 Faden Kid-Silk (= 2 Fäden)". Könnten Sie mir das bitte etwas genauer erklären wie man das macht, ich stricke noch nicht so lange. Vielen Dank im Voraus!

15.02.2021 - 12:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reuhl, es bedeudet, daß die 11 Blenden-Maschen auf beiden Seiten sind in den angegebenen Maschenanzahl inbegriffen, so brauchen Sie nicht diese 22 Maschen extra anzuschlagen. Hoffentlich kann es Ihnen weiter helfen. Viel Spaß beim stricken!

15.02.2021 - 15:16

country flag Molly Koch wrote:

Er det hul mønster på ryggen også ?

20.07.2020 - 06:33

DROPS Design answered:

Hej Molly, Du strikker A.4 over ryggen ifølge opskriften. God fornøjelse!

28.07.2020 - 15:59

country flag Oksana wrote:

Could you please provide with more details about the crocheted straps: Is that along side lines? Does it start 5 cm bellow armholes and lasts 4 cm down? etc.

25.06.2020 - 09:43

DROPS Design answered:

Dear Oksana, the crocheted straps start approx. 5 cm below the cast off stitches for armholes and 4 cm down (fasten the chains with 1 slip stitch in the stitch in the side). Happy knitting!

25.06.2020 - 16:56

country flag Broux wrote:

Bonjour j'ai presque terminé ce modèle en taille S. Les quantités de laine requises ne sont pas suffisantes. Il me reste 10 rangs à faire les bordures et la ceinture . J'ai du recommander une pelote de baby alpaca silk.

18.06.2020 - 17:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Broux, avez-vous bien conservé la même tension que dans le modèle, en largeur et en hauteur autrement dit 17 m x 22 rangs = 10 x 10 cm? Si le nombre de rangs en hauteur est différent, la quantité nécessaire peut en être affectée. Merci. Bon tricot!

19.06.2020 - 08:03

country flag Broux wrote:

Bonjour j'ai tricoté les rangs raccourcis du devant droit, puis le 1er rang A4 du dos j'en suis aux rangs raccourcis du devant gauche et je ne comprends pas : si je tricote le premier rang A4 puis les rangs raccourcis au deuxième puis quatrième....etc motif A4 j'ai deux rangs 1 + rang env l'un au dessus de l'autre Faut-il au premier rang du devant gauche alterner rang 1 et rang 3 à chaque motif?

31.05.2020 - 12:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Broux, les rangs ajourés des diagrammes se tricotent toujours sur l'endroit, vous allez tricoter les rangs raccourcis du devant gauche en commençant sur l'envers, puis continuer de la même façon que pour le devant droit, en tricotant toujours plus de mailles. Bon tricot!

02.06.2020 - 10:00

country flag Brynhild Hansen wrote:

Så fin!!!

12.05.2020 - 14:06