Vanilla Cloud |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-34 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (mynsturteikning A.3 og A.4. á við um stærð XL, XXL og XXXL). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 19. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi 18. og 19. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-76-80-84-88-92 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-4-8-8-12-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 76-80-88-92-100-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir stroff mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu og aukið út þannig: ÚTAUKNING 1: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) alls 19-20-22-23-25-27 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 114-120-132-138-150-162 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 115-120-135-140-150-165 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L, XL, XXXL er aukið út um 1-3-2-3 lykkjur og í stærð M og XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-9-10 cm aukið út þannig: ÚTAUKNING 2: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 23-24-27-28-30-33 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru 161-168-189-196-210-231 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 160-170-190-198-210-234 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er fækkað um 1 lykkju, í stærð M, L, XL og XXXL er aukið út um 2-1-2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15-15-15-17 cm, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: ÚTAUKNING 3: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 32-34-38 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 224-238-266 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 15-18-21 cm, prjónið þannig: Prjónið mynstur A.5 (= 7 lykkjur) alls 32-34-38 sinnum hringinn í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: ÚTAUKNING 3: Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) alls 33-35-39 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 264-280-312 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 266-280-315 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð XL og XXXL aukið út 2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-21-24 cm, prjónið þannig: ÚTAUKNING 4: Prjónið * 3-2-3 mynstureiningar A.5, prjónið 1 mynstureiningu A.4 *, prjónið *-* 9-13-11 sinnum, síðan endar umferðin mismunandi eftir stærðum eins og útskýrt er að neðan: Stærð XL: Endið umferð með A.5 yfir síðustu 14 lykkjur (= 2 mynstureiningar). Stærð XXL: Endið umferð með A.4 yfir síðustu 7 lykkjur (= 1 mynstureining). Stærð XXXL: Endið umferð með A.5 yfir síðustu 7 lykkjur (= 1 mynstureining). Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka eru 284-308-337 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-26-28 cm. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan. ALLAR STÆRÐIR: Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 32-34-38-41-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-69-76-83-90-99 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 32-35-38-42-45-49 lykkjurnar (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-154-168-182-196-217 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 70-77-84-91-98-109 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og 70-77-84-91-98-108 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar 1-3-5-3-1-3 cm (stykkið mælist ca 4-5-6-6-6-7 cm frá síðasta gatamynstri á berustykki) prjónið mynstur A.5 hringinn í umferð. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 9 cm millibili alls 3 sinnum = 152-166-180-194-208-229 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-30-32-35 lykkjur jafnt yfir = 176-192-208-224-240-264 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-50-57-59-64-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-65-67-72-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi (= 3-4-4-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 1-3-5-3-1-3 cm (stykkið mælist ca 4-5-6-6-6-7 cm frá síðasta gatamynstri á berustykki) prjónið mynstur þannig: 2-1-1-2-1-1 lykkjur slétt, A.5 þar til 3-1-1-2-1-2 lykkjur eru eftir í umferð (= 7-8-9-9-10-11 mynstureiningar), endið með 3-1-1-2-1-2 lykkjur slétt. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3-2-2-2-1½ cm millibili alls 7-9-11-11-13-16 sinnum = 40-40-43-45-46-48 lykkjur. Prjónið með sléttprjóni þar til ermin mælist 36-35-33-33-32-31 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-5-3-6-4 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 39-38-36-36-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Annette wrote:
Danke für die schnelle Antwort ;-)
17.01.2024 - 15:33Annette wrote:
Hallo liebes Drops-Team, Zum Abschnitt HALSBLENDE, letzter Satz: 1 Markierer nach dem Rippenmuster an der hinteren Mitte anbringen, die Passe wird nun ab diesem Markierer gemessen. ->Ich bin nicht sicher ob ich das richtig verstehe. Nach den Runden der Halsblende setze ich einen Markierer und dies ergibt dann die hintere Mitte des Pullovers? Oder kommt der Markierer woanders hin. Danke im Vorfeld für die Hilfe. Gruß, Annette
16.01.2024 - 13:05DROPS Design answered:
Liebe Annette, nach der Halsblende soll dieser Markierer die hintere Mitte zeigen, die Runden beginnen von hier und die Arbeit wird von diesem Markierer und nicht von der Halsblende gemessen. Viel Spaß beim stricken!
17.01.2024 - 08:46Jennifer Carvalho wrote:
I have yarn of the same composition in 50 gms hanks. How many hanks would I need to make a large sweater? Thank you.
19.01.2023 - 11:30DROPS Design answered:
Dear Mrs Carvalho, please read more about changing yarn here - should you need any individual assistance, feel free to contact your yarn store, even per mail or telephone. Happy knitting!
19.01.2023 - 18:34Jennifer Carvalho wrote:
Drops Design. Thanks very much.
16.01.2023 - 16:48Jennifer Carvalho wrote:
The needle size in the pattern above and for the group A yarn is different. Here for the kid-silk yarn a 5.5 mm is suggested; in the yarn group A, which is the group for the kid-silk, a sz 3/3.5 is suggested. Please let me know which sz is correct? Thank you.
16.01.2023 - 12:57DROPS Design answered:
Dear Mrs Carvalho, correct, but here you are working with 2 strands Kid-Silk (= with double yarn), so that you get a tension of a yarn group C, and you should get 16 sts x 20 rows stockinette with 2 strands = 10 x10 cm. Happy knitting!
16.01.2023 - 16:28Jytte Hjort wrote:
Jeg er faldet for denne opskrift, hvor jeg skal strikke med Drops Kid-Silk - 2 tråde. Lyder det ikke mærkeligt, at der kun skal bruges 8 nøgler / 200 g til str. XXL? Det vil sige 4 nøgler, da jeg jo skal strikke med to tråde !!!!! Kh Jytte
13.04.2021 - 17:41DROPS Design answered:
Hej Jytte, DROPS Kid-Silk er meget let og du har kun 16 masker på 10 cm og så er det hulmønster... det ser ud til at stemme helt fint (vi har ikke hørt andet) :)
14.04.2021 - 15:17Margarita wrote:
Me encantaría tenerlo y llevarlo
21.04.2020 - 22:19Marianne wrote:
Denne ser fin ut! Når kommer oppskrift?
14.04.2020 - 12:33Françoise wrote:
Très joli pull jaune poussin j'aime à quand l'explication
08.03.2020 - 09:26Cristina wrote:
¿Cuándo se sabe que están subidos los patrones?
02.03.2020 - 08:59