Barbara skrifaði:
Also wird unter dem Arm nicht mehr abgenommen?
26.08.2026 - 19:00DROPS Design svaraði:
Liebe Barbara, doch wird es immer noch unter dem Arm wie zuvor (siehe Anleitung) abgenommen. Viel Spaß beim Stricken!
27.08.2026 - 08:34
Barbara skrifaði:
Bitte erklären sie mir die Abnahme am Ende der Ärmel wenn alles zunahmen beendet sind! Danke
26.08.2026 - 10:19DROPS Design svaraði:
Liege Barbara, wenn der Ärmel 23-10 cm ab Markierung misst, schneiden Sie Faden ab, jetzt wir man die Maschen in Hin und Rückreihen ab die mittlere Masche vom oberen Teil Ärmel abketten und dann in Hin- und Rückreihe ab oberen Teil weiterstricken, gleichzeitig 2 Maschen am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) abketten bis 3 Maschen übrig sind. So wird die untere Kante vom Ärmel gerade. Viel Spaß beim Stricken!
26.08.2026 - 16:33
Marie skrifaði:
Bonjour, ayant réalisé plusieurs pulls et top de DROPS en taille M/L, je suis surprise de constater que sur ce modèle mes mesures correspondent à la taille S. Ce pull a-t-il une forme particulièrement ample? Merci.
27.07.2026 - 08:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, pas particulièrement, mais tout dépend comment vous aimez avoir vos pulls/tops, si vous les préférez un peu plus larges ou un peu plus près du corps. Retrouvez ici comment choisir votre taille (notez que les précédentes collections peuvent avoir des tendances plus serrées/plus larges en fonction des époques). Bon tricot!
04.08.2026 - 14:00
Kornelia skrifaði:
Ich weiß nicht wie ich Teil A2 stricken soll Gibt es dazu ein Video
04.05.2026 - 08:57DROPS Design svaraði:
Liebe Kornelia, der Teil A.2 stricken Sie wie unter HALBES VORDERTEIL/RÜCKENTEIL: erklärt wird, dh beginnen Sie mit einer Hinreihe und ketten Sie die Masche mit der Markierung (hintere/ vordere Mitte) dann stricken Sie glattrechts bis die andere Markierung (vordere/hintere Mitte) glatt rechts, gleichzeitig ketten Sie 2 Maschen am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) ab, bis 3 Maschen (Seite vom Pullover) übrig sind. Dann stricken Sie die andere Seite genauso gleich. Viel Spaß beim Stricken!
20.05.2026 - 08:50
Magdalena skrifaði:
Czy robiąc boki w każdym rzędzie zamykac oczko przed i za markerem? Czy w co drugim?
23.08.2025 - 12:36DROPS Design svaraði:
Witaj Magdaleno, na bokach zamykasz oczka co 2 okrążenia, czyli jedno okrążenie jest bez zamykania oczek, a drugie z zamykaniem, itd. Pozdrawiamy!
29.08.2025 - 19:35
MO skrifaði:
Hoe kan je nu meerderen én minderen op dezelfde steken? Ga verder in de rondte met patroon A.1 en meerder 1 steek aan elke kant van de middelste steek op het voorpand en achterpand iedere andere naald zoals hiervoor, TEGELIJKERTIJD op de eerste naald met meerderingen, begint u met minderen aan elke kant - lees TIP VOOR HET MINDEREN. Minder zo om de naald (op dezelfde naald waarop de meerderingen worden gebreid midden voor en midden achter)
13.08.2025 - 08:20DROPS Design svaraði:
Dag MO,
Je meerdert midden voor/ midden achter en je mindert aan de zijkanten.
18.08.2025 - 10:25
MO skrifaði:
Wat is de bedoeling van A2 en A3. Ergens moet het omgeslagen worden en vastgenaaid. Is dat de bedoeling?
12.08.2025 - 12:32DROPS Design svaraði:
Dag MO,
Op een gegeven moment heb je een punt midden voor en een punt midden achter. Dan worden de steken van de ene punt naar de andere punt gebreid, waarbij je steeds steken afkant aan elke kant. Je hoeft dus niets achteraf dicht te naaien.
18.08.2025 - 10:24
Laura Smith skrifaði:
Where is chart 2 and chart 3, please
09.08.2025 - 20:54DROPS Design svaraði:
Dear Laura, A.2 and A.3 are not stitch-patterns; only illustrations that show the shaping of the specific section that you are working. The only knitting chart here is A.1. Happy knitting!
10.08.2025 - 16:59
Ingrid Van Den Bosch skrifaði:
Kan ik op dit model een verhoogde achterkant in short rows breien en hoe moet het dan met de meerderingen middenachter en schouders aub? Dank u
04.03.2025 - 19:08DROPS Design svaraði:
Dag Ingrid,
Het is voor ons helaas niet mogelijk om een patroon aan te passen naar persoonlijke wensen.
06.03.2025 - 19:42
Cecile skrifaði:
Bonjour. Je vais commencer le demi devant/dos en aller retour. Est-ce-qu'il faut rabattre les mailles sur l envers ET sur l' endroit ou seulement sur l endroit? Merci
14.06.2024 - 12:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Cécile, vous devez rabattre les mailles au début de chaque rang = de chaque côté soit sur l'endroit et sur l'envers; vous obtiendrez ainsi un bord droit. Bon tricot!
14.06.2024 - 16:23
Spring Lineup#springlineupsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í vinkil með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-14 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningar A.2 og A.3 sýna hvernig stykkin eru prjónuð þegar prjónað fram og til baka. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 13. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í (= 8 lykkjur fleiri í umferð): Aukið út þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (eða brugðið ef það er brugðin umferð í A.1), það eiga að myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið mitt fram/mitt aftan og prjónað er fram og til baka í 2 stykkjum (= hliðar). Kanturinn með garðaprjóni neðst niðri er prjónaður í hring í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið mitt á ermi og prjónað er fram og til baka í smá tíma (= neðri hlið á ermi). Kanturinn með garðaprjóni neðst niðri er prjónaður í hring í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-112-116-120 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 2 cm. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-8-8-8-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 96-100-112-120-124-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið. Setjið prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (= mitt að aftan), hoppið yfir næstu 23-24-27-29-30-35 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= mitt á öxl), hoppið yfir næstu 23-24-27-29-30-35 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= mitt að framan), hoppið yfir næstu 23-24-27-29-30-35 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= mitt á öxl), nú eru 23-24-27-29-30-35 lykkjur á milli síðasta og fyrsta prjónamerki í umferð. BERUSTYKKI: Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið A.1 hringinn í umferð, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 40-44-48-51-56-59 sinnum = 416-452-496-528-572-616 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 29-31-34-36-40-42 cm frá eftir kanti í hálsmáli og niður í prjónstefnu (þ.e.a.s. mælt meðfram útaukningu á annarri öxlinni og mitt fram/mitt aftan) og ca 35-37-40-43-48-50 cm meðfram miðjulykkju við hverja af útaukningum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 65-71-76-82-91-99 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 79-85-97-101-105-111 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 129-141-151-163-181-197 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 79-85-97-101-105-111 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), prjónið næstu 64-70-75-81-90-98 lykkjur (= hálft bakstykki). Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju á hvorri öxl og setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju á framstykki. Látið prjónamerkin sitja þarna – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 274-298-322-350-386-418 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með mynstur A.1 og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð eins og áður, JAFNFRAMT í fyrstu umferð með útaukningu byrjar úrtaka í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (sömu umferð og aukið er út í mitt að framan og mitt að aftan). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 13-13-12-11-8-8 cm mitt að framan (mælt frá prjónamerki sem var sett í miðjulykkju) – stillið af að endað sé í umferð án útaukninga og úrtöku og að 3 rendur í sama lit hafa verið prjónaðar til loka á hæðina (þannig að það eru 3 rendur í sama lit sem ekki brotna). Nú eru eftir ca 5 cm í garðaprjóni að loka máli. Klippið frá. Setjið lykkju með prjónamerki í mitt að aftan + lykkjur að framan á undan lykkju með prjónamerki í mitt að framan á 1 þráð (= hálft bakstykki + hálft framstykki), nú á að prjóna yfir þessar lykkjur aðeins síðar. Nú er hálft framstykki og hálft bakstykki á prjóni. HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Sjá mynsturteikningu A.2 fyrir þennan hluta. Prjónað er með litnum ljós beige til loka. Byrjið frá réttu og fellið af lykkju með prjónamerki í mitt að framan/mitt að aftan. Haldið áfram í sléttprjóni, litur ljós beige og úrtöku hvoru megin við prjónamerki í hliðum – JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 4 og prjónið á sama hátt og hitt hálfa framstykkið/bakstykkið. NEÐRI KANTUR: Byrjið í annarri hliðinni og prjónið upp ca 202-218-236-256-282-306 lykkjur meðfram öllum neðri kantinum á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 79-85-97-101-105-111 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 87-93-107-113-117-123 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 4-4-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn með A.1 og aukið út hvoru megin við miðjulykkju á efri hlið á ermi í annarri hverri umferð, JAFNFRAMT í fyrstu umferð með útaukningu byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð 6-10-22-24-24-24 sinnum (= alls 6-10-22-24-24-24 lykkjur færri í þessum umferðum) = 81-83-85-98-93-99 lykkjur. Haldið síðan áfram með úrtöku undir ermi og útaukningu yfir ermi í annarri hverri umferð (þannig að lykkjufjöldinn haldist stöðugur) til loka. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 23-21-19-16-11-10 cm frá prjónamerki í miðjulykkju – stillið af að endað sé eftir umferð án útaukninga og úrtöku og að 3 rendur í sama lit hafa verið prjónaðar til loka á hæðina (þannig að 3 rendurnar í sama lit brotna ekki). Nú eru eftir ca 3 cm í garðaprjóni að loka máli. Klippið frá. Nú á að prjóna fram og til baka – sjá mynsturteikningu A.3 fyrir þennan hluta. Byrjið frá réttu og fellið af miðju lykkju mitt á ermi (þ.e.a.s. sú lykkja sem aukið er út hvoru megin við). Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku við prjónamerki mitt undir ermi – JAFNFRAMT eru felldar af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR Á ERMI: Byrjið mitt undir ermi og prjónið upp ca 59-61-63-65-67-69 lykkjur meðfram öllum neðri kanti á sokkaprjóna 3,5 með litnum ljós beige – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið garðaprjón hringinn í 3 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springlineupsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.