DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Lineup

Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í vinkil með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 210-14
DROPS Design: Mynstur vs-065
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-700-750 g litur 03, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 07, zink
50-50-50-50-50-50 g litur 20, sjávarblár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæðina með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5: fyrir kanta í garðaprjóni.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm kanta í garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningar A.2 og A.3 sýna hvernig stykkin eru prjónuð þegar prjónað fram og til baka.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 13.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í (= 8 lykkjur fleiri í umferð):
Aukið út þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (eða brugðið ef það er brugðin umferð í A.1), það eiga að myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur A.1.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið mitt fram/mitt aftan og prjónað er fram og til baka í 2 stykkjum (= hliðar). Kanturinn með garðaprjóni neðst niðri er prjónaður í hring í lokin.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið mitt á ermi og prjónað er fram og til baka í smá tíma (= neðri hlið á ermi). Kanturinn með garðaprjóni neðst niðri er prjónaður í hring í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-100-104-112-116-120 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 2 cm. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-8-8-8-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 96-100-112-120-124-144 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið. Setjið prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (= mitt að aftan), hoppið yfir næstu 23-24-27-29-30-35 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= mitt á öxl), hoppið yfir næstu 23-24-27-29-30-35 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= mitt að framan), hoppið yfir næstu 23-24-27-29-30-35 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju (= mitt á öxl), nú eru 23-24-27-29-30-35 lykkjur á milli síðasta og fyrsta prjónamerki í umferð.

BERUSTYKKI:
Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið A.1 hringinn í umferð, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 40-44-48-51-56-59 sinnum = 416-452-496-528-572-616 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 29-31-34-36-40-42 cm frá eftir kanti í hálsmáli og niður í prjónstefnu (þ.e.a.s. mælt meðfram útaukningu á annarri öxlinni og mitt fram/mitt aftan) og ca 35-37-40-43-48-50 cm meðfram miðjulykkju við hverja af útaukningum.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 65-71-76-82-91-99 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 79-85-97-101-105-111 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 129-141-151-163-181-197 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 79-85-97-101-105-111 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-12-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), prjónið næstu 64-70-75-81-90-98 lykkjur (= hálft bakstykki).
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju á hvorri öxl og setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju á framstykki. Látið prjónamerkin sitja þarna – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 274-298-322-350-386-418 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 4-4-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn með mynstur A.1 og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð eins og áður, JAFNFRAMT í fyrstu umferð með útaukningu byrjar úrtaka í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (sömu umferð og aukið er út í mitt að framan og mitt að aftan). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 13-13-12-11-8-8 cm mitt að framan (mælt frá prjónamerki sem var sett í miðjulykkju) – stillið af að endað sé í umferð án útaukninga og úrtöku og að 3 rendur í sama lit hafa verið prjónaðar til loka á hæðina (þannig að það eru 3 rendur í sama lit sem ekki brotna). Nú eru eftir ca 5 cm í garðaprjóni að loka máli. Klippið frá.
Setjið lykkju með prjónamerki í mitt að aftan + lykkjur að framan á undan lykkju með prjónamerki í mitt að framan á 1 þráð (= hálft bakstykki + hálft framstykki), nú á að prjóna yfir þessar lykkjur aðeins síðar. Nú er hálft framstykki og hálft bakstykki á prjóni.

HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Sjá mynsturteikningu A.2 fyrir þennan hluta. Prjónað er með litnum ljós beige til loka. Byrjið frá réttu og fellið af lykkju með prjónamerki í mitt að framan/mitt að aftan. Haldið áfram í sléttprjóni, litur ljós beige og úrtöku hvoru megin við prjónamerki í hliðum – JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.

HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 4 og prjónið á sama hátt og hitt hálfa framstykkið/bakstykkið.

NEÐRI KANTUR:
Byrjið í annarri hliðinni og prjónið upp ca 202-218-236-256-282-306 lykkjur meðfram öllum neðri kantinum á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Fellið af – sjá AFFELLING.

ERMI:
Setjið 79-85-97-101-105-111 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 87-93-107-113-117-123 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 4-4-5-6-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn með A.1 og aukið út hvoru megin við miðjulykkju á efri hlið á ermi í annarri hverri umferð, JAFNFRAMT í fyrstu umferð með útaukningu byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð 6-10-22-24-24-24 sinnum (= alls 6-10-22-24-24-24 lykkjur færri í þessum umferðum) = 81-83-85-98-93-99 lykkjur. Haldið síðan áfram með úrtöku undir ermi og útaukningu yfir ermi í annarri hverri umferð (þannig að lykkjufjöldinn haldist stöðugur) til loka. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 23-21-19-16-11-10 cm frá prjónamerki í miðjulykkju – stillið af að endað sé eftir umferð án útaukninga og úrtöku og að 3 rendur í sama lit hafa verið prjónaðar til loka á hæðina (þannig að 3 rendurnar í sama lit brotna ekki). Nú eru eftir ca 3 cm í garðaprjóni að loka máli. Klippið frá.
Nú á að prjóna fram og til baka – sjá mynsturteikningu A.3 fyrir þennan hluta. Byrjið frá réttu og fellið af miðju lykkju mitt á ermi (þ.e.a.s. sú lykkja sem aukið er út hvoru megin við). Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku við prjónamerki mitt undir ermi – JAFNFRAMT eru felldar af 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Á ERMI:
Byrjið mitt undir ermi og prjónið upp ca 59-61-63-65-67-69 lykkjur meðfram öllum neðri kanti á sokkaprjóna 3,5 með litnum ljós beige – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið garðaprjón hringinn í 3 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2022
ERMAR: Setjið 79-85-97-101-105-111 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 87-93-107-113-117-123 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja með ljós beige
symbols = slétt lykkja með sjávarblár
symbols = slétt lykkja með zink

symbols = brugðið með ljós beige
symbols = prjónstefna
symbols = mitt að framan
symbols = mitt að aftan
symbols = mitt ofan á ermi
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Spring Lineup

Elodie, France

Spring Lineup

Ana, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Shiona Dawson wrote:

Hi, In the section: HALF FRONT/BACK PIECE: where it says: "Continue with stocking stitch, light beige and decrease on each side of marker in the sides ". Does it mean to decrease at the side of the garment only on the knit rows or on both knit and purl rows. Many thanks

28.04.2021 - 13:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Dawson, you will cast off 2 stitches at the beginning of every row, both from right side and from wrong side. Happy knitting!

28.04.2021 - 14:21

country flag Voll wrote:

Ich kann nicht verstehen,wie in dieser Weise ja 2 Runde insgesamt 40Maschen

06.04.2021 - 22:25

DROPS Design answered:

Oebe Frau Voll, nach der Halsblende setzen Sie Markierungen, dann werden Sie beidseitig jeder Markierung zunehmmen - siehe ZUNAHMETIPP-2 insgesamt 40 Mal in jeder 2. Runde (=1 Runde mit Zunahmme, 1 Runde ohne und diese beide Runde 40 Mal wiederholen). Viel Spaß beim stricken!

07.04.2021 - 07:39

country flag Mareike wrote:

Heyhey! Verstehe ich das richtig und die Umschläge zum zunehmen werden in der Passe sowohl mit rechten als auch linken Maschen gemacht? Habe gerade erst angefangen und bin zwischen der ersten und zweiten Reihe in Marineblau... Liebe Grüße Mareike

26.03.2021 - 15:01

DROPS Design answered:

Liebe Mareike, bei der 1. Runde in Marineblau (= 7. Reihe in A.1 = ungerade Reihe)stricken Sie die Umschläge und bei der 2. Runde in Marineblau (= 8. Reihe in A.1 = gerade Reihe) stricken Sie die Umschläge links in Marineblau. Siehe auch ZUNAHMETIPP-2. Viel Spaß beim stricken!

26.03.2021 - 15:55

country flag Pia Koustrup wrote:

Jeg har nu strikket modellen str. L. med 104 m. taget 8 m ud jævnt fordelt og taget ud på hver 2. pind rundt ved hver mærke. Så ender jeg med 304 masker i stedet for de 496 der står beskrevet. Hvad er der gået galt? Desuden passer længden ikke på strikketøjet ift det opgivne mål i opskriften og min strikkefasthed har jeg testet. den passer på mm ved test før jeg startede arbejdet

12.03.2021 - 14:01

country flag Kristina wrote:

Hej! Jag tycker att beskrivningen för A2 är lite otydlig. Man måste alltså börja med att avmaska mittmaskan fram och fortsätta jobba med vänstra sidan av plagget (sett utifrån hur man bär det) ? Maskorna på högra sidan av plagget vilar ju på en tråd. Varför kan man inte börja med bakifrån och med högra sidan?

09.03.2021 - 18:14

DROPS Design answered:

Hej Kristina, du kan börja med den sidan du vill :)

11.03.2021 - 10:24

country flag Agnieszka wrote:

Dzień dobry. Widzę na schemacie swetra trójkąty A1 i A2 ale nie wiem jak je wykonać. Kiedy dobierać a kiedy zamykać oczka i jak zrobić aby powstaly. Ani opis ani schemat nie są jasne. Pozdrawiam.

06.03.2021 - 19:46

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, gdy zaczynasz boki = A.2, zaczynasz od zamknięcia oczka na środku przodu/środku tyłu, dalej przerabiasz dżersejem, zamykając z każdej strony oczka z boku jak wcześniej, co 2 okrążenia (= w każdym rzędzie na prawej stronie robótki), a jednocześnie zamykasz 2 oczka na początku każdego rzędu z każdej strony (= na prawej i na lewej stronie robótki). Miłej pracy!

08.03.2021 - 14:04

country flag Agnieszka wrote:

Planuje wykonac ten sweter i czytając opis robótki nie mogę znaleźć schematu A2 i A3.

28.02.2021 - 07:18

DROPS Design answered:

Witaj Agnieszko, te 2 schematy znajdują się pod schematem A.1 na schematycznym rysunku swetra. Pozdrawiamy i miłej pracy!

28.02.2021 - 18:24

country flag Marilyn Walton wrote:

I have reached the last part of the yoke, where it says 'Work next round as follows'. My next round should contain yarn overs to continue the pattern of holes centre front, back and sides (sleeves) but no mention of this is made in the pattern or A1. If I make yarn overs, this increases the stitch count, and there is no mention of that either. How should this round and the following rounds with yarnovers be worked please?

24.02.2021 - 18:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Walton, work next round as before ie with A.1, colours and yarn overs as you did before, and at the same time divide piece for sleeves and finish body - always continuing A.1. Happy knitting!

25.02.2021 - 07:10

country flag Jasmins wrote:

I am knitting this pattern in the size XL, and I just finished the increases after the garter ridge to 120 stitches. But the pattern calls for me to place markers every 29 stitches, which leaves 4 stitches between the first and last marker in the round.

09.02.2021 - 08:20

DROPS Design answered:

Dear Jasmins, the markers should be inserted in a stitch, not between stitches, so that you have: (1 stitch with marker, 29 sts) x 4 = 120 sts in the round. Happy knitting!

09.02.2021 - 09:02

country flag Ilona Schmiedel wrote:

Ich habe die Größe 34 und möchte den Pullover von oben stricken wieviel Maschen muss ich anschlagen.

21.01.2021 - 16:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmiedel, siehe die Antwort unten :)

22.01.2021 - 07:41