Spring Fjords Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Big Delight og DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-10 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar taka á þráðinn seinna í mynstrinu ætti þráðurinn að samsvara 4 lykkjum (þ.e.a.s. 1 lykkja meira en lyft var yfir) – sjá stjörnu við hliðina á mynsturteikningu A.2. Þegar þráðurinn liggur, ætti þráðurinn að samsvara lengd sem samsvarar lykkjum sem lyft er yfir. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (= 2 lykkjur) og deilið þeim 78 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,58. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan þegar flíkin er mátuð): Fellið af fyrir 7-7-7-8-8-8 hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjum brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Neðsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá kanti efst í hálsmáli. Þau 5-5-5-6-6-6 hnappagöt sem eftir eru, eru staðsett jafnt yfir með ca 7½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni. Nú eru lykkjur auknar út jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, í annarri hverri umferð frá réttu þannig: Aukið út 17-21-25-23-19-23 lykkjur 1 sinni, síðan 15-21-23-20-19-20 lykkjur alls 2-2-2-3-4-4 sinnum = 123-143-155-171-187-199 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 1 kantlykkja), endurtakið A.2 (= 4 lykkjur) – sjá MYNSTUR, þar til 2 lykkjur eru eftir (= 30-35-38-42-46-49 sinnum á breidd), A.3 (= 1 lykkja) og endið með A.1 yfir síðustu lykkjuna (= 1 kantlykkja). Aukið út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu A.1 þannig: ÚTAUKNINGS UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24-24-36-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 147-167-191-207-223-235 lykkjur. A.2 er endurtekið þá 36-41-47-51-55-58 sinnum á breiddina. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24-24-24-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 171-191-215-231-247-271 lykkjur. A.2 er þá endurtekið 42-47-53-57-61-67 sinnum á breiddina. Þegar A.1b til A.3b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1b til A.3b á hæðina 0-0-0-0-1-1 sinnum til viðbótar (= alls 1-1-1-1-2-2 sinnum á hæðina). Prjónið síðan áfram í mynstri A.1 til A.3. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24 lykkjur jafnt yfir = 195-215-239-255-271-295 lykkjur. A.2 er þá endurtekið 48-53-59-63-67-73 sinnum á breiddina. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24 lykkjur jafnt yfir = 219-239-263-279-295-319 lykkjur. A.2 er þá endurtekið 54-59-65-69-73-79 sinnum á breiddina. ÚTAUKNINGS UMFERÐ 5: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 0-0-0-12-24-24 lykkjur jafnt yfir = 219-239-263-291-319-343 lykkjur. A.2 er þá endurtekið 54-59-65-72-79-85 sinnum á breiddina. Prjóni nú mynstur og stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram! Þegar A.1d til A.3d hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1d til A.3d á hæðina 1-1-2-2-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 2-2-3-3-3-3 sinnum á hæðina). Prjónið síðan A.1c yfir A.1d, A.2c yfir A.2d og A.3c yfir A.3d. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé umferð með Air frá réttu, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið mynstur yfir fyrstu 31-35-37-41-47-53 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-56-62-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 64-68-76-84-92-100 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-50-56-62-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 32-36-38-42-48-54 lykkjur (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 143-155-167-183-203-223 lykkjur. Prjónið mynstur yfir lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Þ.e.a.s. A.2 er endurtekið alls 35-38-41-45-50-55 sinnum á breiddina. Þegar A.1c til A.3c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 umferðir sléttprjón og aukið út 7-7-7-6-7-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 150-162-174-189-210-231 lykkjur. Prjónið síðan A.4 (= 1 lykkja) yfir kantlykkju, endurtakið A.5 (= 3 lykkjur) þar til eftir eru 2 lykkjur (= 49-53-57-62-69-76 sinnum á breiddina), A.6 (= 1 lykkja) og endið með A.4 yfir kantlykkju. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 umferðir sléttprjón með Air og aukið út 9-5-9-10-5-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 159-167-183-199-215-239 lykkjur. Prjónið síðan A.1a yfir kantlykkju, endurtakið A.2a þar til 2 lykkjur eru eftir (= 39-41-45-49-53-59 sinnum á breiddina), A.3a yfir 1 lykkju og endið með A.1a yfir kantlykkju. Þegar A.1a til A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina prjónið 2 umferðir sléttprjón með Air og aukið út 0-1-0-2-1-1 lykkjur í fyrstu umferð = 159-168-183-201-216-240 lykkjur. Prjónið síðan A.4 yfir kantlykkju, endurtakið A.5 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 52-55-60-66-71-79 sinnum á breiddina), A.6 yfir 1 lykkju og endið með A.4 yfir kantlykkju. Prjónið 2 umferðir slétt með Air og fækkið um 0-1-0-2-1-1 lykkjur í fyrstu umferð = 159-167-183-199-215-239 lykkjur. Prjónið A.1 yfir kantlykkju, endurtakið A.2c þar til 3 lykkjur eru eftir (= 39-41-45-49-53-59 sinnum á breidd), A.3c yfir 1 lykkju og endið með A.1c yfir kantlykkju. Prjónið nú stykkið til loka með Air. Prjónið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar fram- og bakstykki mælist 27-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju í næstu umferð frá réttu = 160-168-184-200-216-240 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff þannig (= frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 46-50-56-62-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn eins og á fram- og bakstykki, stillið af að mynstrið við þar sem endað var á berustykki. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar slétt með Air mitt undir ermi (í umferð með Big Delight er lykkjunum sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, lyft yfir á hægri prjón, þ.e.a.s. þær eru ekki prjónaðar). Prjónið nú alveg eins mynstur og á fram- og bakstykki þannig: Þegar A.2c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 sléttar umferðir með Air. Prjónið A.5 hringinn. Prjónið 2 sléttar umferðir með Air. Prjónið A.2a hringinn (í fyrstu og síðustu mynstureiningu af A.2a er þræðinum ekki lyft sem liggur laus yfir lykkjurnar 4 umferðir upp, hann liggur bara yfir lykkjum). Prjónið 2 sléttar umferðir með Air. Prjónið A.5 hringinn. Prjónið nú stykkið til loka með Air. Prjónið sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 27-26-25-24-22-21 cm. Aukið nú út 10-10-8-6-6-4 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-76-80-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 31-30-29-28-25 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið efst í hálsmáli á vinstra framstykki, prjónið upp lykkjur innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið upp ca 90-118 lykkjur (deilanlegar með 4 + 2) frá réttu á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur að framan mælist ca 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant að framan á hægra framstykki, en þá eru teknar upp lykkjur með byrjun frá neðri kanti og fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Mm wrote:
Wanneer begint het motief en hoe begin ik met kleur.hoe lees ik het van A1 naara2 naar A3 ofa1 naara1b naar a1c naar A1 d
28.09.2020 - 16:39DROPS Design answered:
Dag Mm,
In de beschrijving van het patroon staat aangegeven waar je precies moet beginnen met de telpatronen. De telpatronen lees je van onder naar boven en van rechts naar links. Bij de veel gestelde vragen vind je ook uitleg over hoe je volgens een telpatroon breit.
20.11.2020 - 11:34