Linda Förster skrifaði:
In der Anleitung steht das nach 38 cm (Größe xl) der Armausschnitt beginnt, in der Maßskizze steht allerdings erst nach 58 cm. Welche Angabe stimmt?
11.04.2022 - 20:29DROPS Design svaraði:
Liebe Linda. Bei einer Länge von 34-35-36-37-38-39 cm für die Armausschnitte abketten, und die Gesamtlänge beträgt 58 cm. Viel Spaß beim stricken!
11.04.2022 - 22:42
Babsi skrifaði:
Das Muster A 3 & 4 benutzt man nur in Größe M ?
21.08.2020 - 21:18DROPS Design svaraði:
Liebe Babsi, ja genau, A.3 und A.4 werden nur in Größe M gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
24.08.2020 - 07:58
Herma skrifaði:
Het is een vraag over Patroon ks-162, die roze trui in kantpatroon Ter hoogte van de armsgaten moet je steken afkanten, waarom is dat bij elke maat een andere hoeveelheid? Met vriendelijke groet Herma van den Hoven
28.05.2020 - 16:08DROPS Design svaraði:
Dag Herma,
Voor elke maat is de afmeting van het armsgat en de mouw een beetje anders, vandaar dat je ook een verschillend aantal steken af moet kanten in de verschillende maten.
31.05.2020 - 10:27
Toos skrifaði:
IK WOU HEEL GRAAG NR 134-1
18.05.2020 - 18:33
Françoise skrifaði:
Jolie pull ajouré (explication attendu avec impatience
08.03.2020 - 09:28
Mercedes skrifaði:
Por qué no lo publican ya??? se va a pasar la primavera y no me va a dar tiempo a tejerlo hará demasiada calorrrrrr
08.03.2020 - 00:52
Angelica Dutu skrifaði:
❤️love it ❤️
20.02.2020 - 10:02
Anne-Marie skrifaði:
Gleder meg til mønsteret kommer!
18.02.2020 - 12:35
Lena skrifaði:
Underbar ! Hoppas mönstret kommer snart så jag kan beställa garn
12.02.2020 - 09:43
Mercedes skrifaði:
Muy femenino y delicado, me encantaría tejerlo
02.02.2020 - 23:50
Springs Beats#springsbeatssweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með gatamynstri, garðaprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 213-15 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá röngu! Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið á ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjurnar í garðaprjóni. Í næstu umferð (rétta), prjónið uppsláttinn snúinn slétt svo ekki myndist gat. Síðan er hægt að velja á milli 2 möguleika hvernig á að prjóna nýjar lykkjur: Möguleiki 1 (einfalt): Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni, en í umferð 12 og 14 í mynsturteikningu, prjónið slétt frá röngu yfir allar lykkjur í umferð. Möguleiki 2 (aðeins flóknara): Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur eins langt og það nær (hér er mikilvægt að telja lykkjurnar vel, svo að það verði fækkað um jafn margar lykkjur í mynstri og slegið er uppá í mynstri). Þær lykkjur sem ekki ganga upp í heila eða hálfa mynstureiningu í hvorri hlið, prjónast í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt að fella af með grófari prjónum. Ef affellingin er enn stíf er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 67-77-85-95-105-117 lykkjur á hringprjóna 4,5 með 3 þráðum Kid-Silk. Takið frá einn þráð. Afgangur af bakstykkinu er prjónaður með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3-3-2-2-2-3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4-4-3-3-3-4 lykkjur eru eftir í umferð (= 6-7-8-9-10-11 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 3-3-2-2-2-3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 1-1-5-10-10-11 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 65-75-75-75-85-95 lykkjur eftir. Prjónið síðan mynstur þannig: XS, S, L, XL/XXL og XXXL: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 6-7-7-8-9 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. M: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 5 lykkjur), prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (= 6 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4 (= 6 lykkjur) og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 38-40-41-43-44-46 cm frá uppfitjunarkanti, en endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 23-25-25-25-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 20-24-24-24-28-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og 3 þræði Kid-Silk. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlin á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur eins og á bakstykki og prjónið alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 41-43-45-46-48-50 cm. Í næstu umferð eru miðju 7-9-9-9-11-13 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 20-24-24-24-28-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og 3 þræði Kid-Silk. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 35-35-37-37-39-39 lykkjur á hringprjón 4,5 með 3 þráðum Kid-Silk. Takið frá einn þráð. Afgangur af ermi er prjónaður með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-0-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til eftir eru 3-3-4-4-5-5 lykkjur í umferð (= 3 mynstureiningar í öllum stærðum með 10 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja), 0-0-1-1-2-2 lykkjur sléttprjón og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-4½-4-3½-3-2½ cm millibili alls 8-10-10-12-13-14 sinnum í hvorri hlið = 51-55-57-61-65-67 lykkjur. Þegar ermin mælist 52-50-49-47-45-42 cm, setji 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónamerkin merkja hvar sauma á ermina í við botn á handveg. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til ermin mælist 1-1-3-6-6-7 cm frá prjónamerki. Öll ermin mælist ca 53-51-52-53-51-49 cm – ATH: Lengd á ermum er mismunandi eftir stærðum vegna breiddar á öxlum. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og 3 þræði Kid-Silk. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Leggið ermina inn ca ½ cm undir handveg á fram- og bakstykki, þannig að garðaprjón sem er meðfram handveg liggi utan á ermi. Saumið fallega niður yst meðfram handveg á fram- og bakstykki með smáu spori í ystu lykkju með garðaprjóni. Saumið botninn á handveg – prjónamerki á ermum eiga að passa við hlið á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur – endið sauminn þegar ca 12 cm eru eftir neðst niðri í hvorri hlið á fram- og bakstykki (= klauf). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 72 til 86 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 5 til 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnara lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið kantinn í hálsmáli inn tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu fallegu spori og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springsbeatssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.