Jolien skrifaði:
Ik heb nog niet eerder met raglan of telpatroon gewerkt. Ik begrijp niet hoe ik de tweede naald moet breien. De eerste naald was vrijwel helemaal in rechte steek, met meerderen. Maar hoe brei ik de steken die ik heb gemeerderd? Moeten die ook in het telpatroon worden gebreid? Ook begrijp ik niet hoe je de stekenmarkeerder in de steek zet. Ik bedoel, verhuist de stekenmarkeerder elke naald mee, of blijft die in de eerste toer achter?
19.01.2022 - 15:13DROPS Design svaraði:
Dag Jolien,
Je kunt een draad in een andere kleur of een steekmarkeerder plaatsen in de aangegeven steken, zodat je weet bij welke steek je moet meerderen. Je kunt de markeerdraad of stekenmarkeerder meenemen in de hoogte tijdens het breien.
Je breit het patroon zoals aangegeven in de beschrijving, dus als er bijvoorbeeld staat 'brei A.1 over 20 steken' dan herhaal je A.1 steeds in de breedte. Als er tricotstee staat in de beschrijving, dan brei je die steek steeds in tricotsteek (dus recht). De eerst naald van A.1 is inderdaad de hele tijd recht. De tweede naald is afwisselend averecht en recht.
21.01.2022 - 09:00
Petra skrifaði:
Die Maschenprobe Glatt rechts war richtig. Im angegebenen Muster wurde der Pulli jetzt allerdings drei Größen kleiner als angegeben. Wie ist denn die Maschenprobe im Muster?
02.04.2021 - 18:13DROPS Design svaraði:
Die Maschenprobe sollte im Muster eigentlich zu der glatt rechten Maschenprobe passen. Es kann sein, dass sich das Strukturmuster etwas zusammenzieht, dem können Sie aber entgegenwirken, indem Sie den Pullover anfeuchten, auf das richtige Maß ziehen und liegend trocknen lassen.
04.04.2021 - 23:41
Brittmari Gissler skrifaði:
Har stickat första varvet med omslag och A 1. A 2 men var tar jag vägen nästa varv. ska nästa varv vara aviga maskor bara eller fortsätter man med A1 aviga och räta . eller A 2. förstår inte. är första raglanökningen.
25.03.2021 - 11:11DROPS Design svaraði:
Hej Brittmari, vart annat varv stickar du rät varvet runt och vart annat varv stickar du rät, avig, rät, avig, rät, avig osv... Lycka till :)
25.03.2021 - 11:48
Cornelia skrifaði:
Verstehe ich das richtig -A2 ist einfach falsches Patentmuster?
25.02.2021 - 23:48DROPS Design svaraði:
Liebe Cornelia, ich bin damit nicht sicher, da es unterschiedliche Muster gibt, die sowas genannt werden, aber A.1 und A.2 sind einfach ein Rippenmuster, wo Sie immer abwechslungsweise 1 Masche kraus recht (= 1. Masche in A.1 / die Masche A.2) und 1 Masche glatt rechts stricken (2. Masche A.1). Viel Spaß beim stricken!
26.02.2021 - 08:27
Aurélie skrifaði:
Je ne comprends toujours pas car quand je reprends le point fantaisie mon raglan est toujours en point endroit et coïncide avec le reste de mon tricot mais quand je mets de côté les mailles pour les manches je me retrouve avec un point envers à la fin du dos et un point envers au début du devant donc en mettant 6 nouvelles mailles ce n’est pas bon pour le point fantaisie.
27.01.2021 - 15:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Aurélie, lorsque vous tricote les mailles du dos/devant après la division des manches, vous avez un nombre pair de mailles, et vous pouvez ainsi tricoter A.1 sur toutes les mailles, même celles des raglans. Bon tricot!
28.01.2021 - 08:37
Aurélie skrifaði:
Bonjour, j’ai un souci en arrivant à la division entre les manches et le dos/devant. Quand je remonte 6 mailles sous les bras je ne retombe pas bien pour continuer les points texturés. Je dois ‘raccorder’ 2 points envers mais en montant les 6 mailles je me retrouve avec 2 points envers à la suite. Est-ce normal ou j’ai fait une erreur quelque part ? Merci
27.01.2021 - 10:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Aurélie, la maille jersey du raglan doit maintenant se tricoter dans le point fantaisie et non plus en jersey uniquement, votre nombre de mailles doit ainsi tomber juste pour tricoter le motif tout le tour. Bon tricot!
27.01.2021 - 13:09
Giada skrifaði:
Buonasera, volevo capire se subito dopo il primo aumento del raglan , nei ferri seguenti, il motivo va ripetuto come nella prima serie (es. 38 m.centrali con A1 e poi A2 per il dietro, oppure ad es. 20 m. A1 è più A2 per le maniche), o si procede ad eseguire 2m con A1 ed 1m con A2 e vis di seguito?
04.12.2020 - 17:10DROPS Design svaraði:
Buonasera Giada, deve incorporare gli aumenti nella lavorazione del motivo. Buon lavoro!
06.12.2020 - 22:10
Andrea skrifaði:
Hallo liebes Drops Team, müssten nicht die Rumpfteile und die Ärmel gerade Maschenzahlen haben, damit das Muster passt? Also 94M anstatt 95M für die Rumpfteile und 66M anstatt 65M für die Ärmel. Liebe Grüße Andrea
01.10.2020 - 00:09DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, das Muster wird über 2 Maschen gestrickt, aber damit das Muster symetrisch wird (= am Anfang/Ende von jedem Teil gleich wird), endet man mit A.2, aber dann werden die Zunahmen im Muster gestrickt, so haben Sie abwechslungsweise 1 Masche kraus rechts/ 1 Masche glatt rechts am Anfang/Ende von jedem Teil. Viel Spaß beim stricken!
01.10.2020 - 10:22
Lene Andersen skrifaði:
Er det muligt at lægge en video ind som viser hvordan man strikker 2 omgang ved reglan udtag, da det er meget svært at forstå hvordan der strikkes mønster ?
05.09.2020 - 22:43DROPS Design svaraði:
Hei Lene. Ditt ønsker er lagt til i listen over video ønsker. Takk for ditt innspill. mvh DROPS design
07.09.2020 - 13:17
Deborah skrifaði:
I’m having the same problem as one of the comments above - my pattern looks like a seed stitch so I am off. I understand needing to Purl the Purls from 2 rows below...I just don’t seem to end up there. It might be my marker placement...I’m doing the M size. When you indicate inserting the marker ‘in’ the 1st stitch, 2nd marker ‘in’ the 43rd stitch, etc...should that mean a marker before the 1st stitch, a marker between the 43rd and 44th stitch, etc?
21.07.2020 - 23:52DROPS Design svaraði:
Dear Deborah, when marker have to be inserted in a stitch, they are supposed to be in that stitch, not before neither after, but really in the stitch. These stitches with a marker (= 4 stitches in total) are the stitches worked in stocking stitch when working diagrams and increasing for raglan. Happy knitting!
29.07.2020 - 12:38
Sweet Seventeen#sweetseventeensweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-16 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið rendur þannig: Prjónið með ljós beige frá uppfitjun til 9-11-12-13-15-17 cm. Prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn, 6 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn, 6 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn, 3 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn. Prjónið með ljós beige í 18-18-19-20-20-20 cm. Prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir með ljós beige, 3 umferðir með múrsteinn, prjónið með ljós beige í 5 cm, prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir með ljós beige, 3 umferðir með múrsteinn. Prjónið til loka með ljós beige. RENDUR ERMI: Prjónið með ljós beige þar til ermin mælist 29-28-27-25-24-22 cm frá skiptingu, prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir með ljós beige, 3 umferðir með múrsteinn, prjónið með ljós beige til loka. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstrið jafnóðum og aukið er út. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 100-104-108-116-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige. Setjið 1 prjónamerki á milli fyrstu og síðustu lykkju (= byrjun á umferð, í hverja skiptingu á milli erma og bakstykkis). Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingunum = 125-130-135-145-150-155 lykkjur. Prjónið síðan með 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið nú yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 124-128-136-144-148-156 lykkjur. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið fyrir LASKALÍNA, án þess að prjóna, þannig: Setjið 1. prjónamerkið í 1. lykkju í umferð, setjið 2. prjónamerki í 41.-43.-47.-51.-53.-57. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 63.-65.-69.-73.-75.-79. lykkju, setjið 4. prjónamerki í 103.-107.-115.-123.-127.-135. lykkju. Prjónið síðan RENDUR OG MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram! Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 38-40-44-48-50-54 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= bakstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= ermi). Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið A.1 yfir næstu 38-40-44-48-50-54 lykkjurnar, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= framstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi). Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með rendur og mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-24-26-30-33-35 sinnum = 300-320-344-384-412-436 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og rendur þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Endið síðustu umferðina 1-2-1-0-2-3 lykkjum á undan prjónamerki sem merkir byrjun á umferð. Setjið eitt nýtt prjónamerki (= ný byrjun á umferð). Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 87-95-101-111-123-133 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-65-71-81-83-85 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 87-95-101-111-123-133 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-65-71-81-83-85 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-218-238-266-290 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur og rendur eins og áður þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-236-264-288 lykkjur. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 63-65-71-81-83-85 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-71-79-89-93-97 lykkjur. Prjónið hringinn og haldið áfram með mynstur A.1 og RENDUR ERMI. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 10-10-13-17-18-19 sinnum = 49-51-53-55-57-59 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 39-38-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-3-1-3-1-3 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 43-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af með, svo að kanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetseventeensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.