DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
DROPS SS24

Sunsets and Sand Jacket

Prjónuð peysa með perluprjóni og v-hálsmáli úr DROPS Big Delight og DROPS Melody. Stærð XS - XXL.

DROPS 212-18
DROPS Design: Mynstur db-113
Garnflokkur C + D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-300-400-400-400 g litur 07, sólarupprás
Og notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-200-200-250-250-300 g litur 15, beige

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 10 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 15: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 540: 2 stykki í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 6 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN ÞANNIG:
Þegar fyrsta lykkjan á að vera slétt: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Þegar fyrsta lykkjan á að vera brugðin: 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 6 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN ÞANNIG:
Þegar síðasta lykkjan á að vera slétt: 2 lykkjur slétt saman.
Þegar síðasta lykkjan á að vera brugðin: 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumuð saman í hlið í lokin.
Lykkjurnar fyrir ermar eru prjónaðar upp í handveg á fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 34-38-40-42-46-50 lykkjur með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 15. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið í sléttprjóni og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið (merkir handveg) = 32-36-38-40-44-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið perluprjón yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af miðju 6-6-8-8-8-10 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð við háls er fækkað um 1 lykkju = 12-14-14-15-17-18 lykkjur eftir á öxl. Fellið laust af allar lykkjur þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 21-23-24-25-27-29 lykkjur með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 15. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni, sléttprjóni, perluprjóni yfir síðustu 6 lykkjur í umferð (séð frá réttu) = kantur að framan. Þegar stykkið mælist 40-42-41-43-45-44 cm, fellið af 1 lykkju innan við kant að framan – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili, alls 8-8-9-9-9-10 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1 lykkju í byrjun á umferð frá réttu (merkir handveg). Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið perluprjón yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af þær 12-14-14-15-17-18 lykkjur á öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið yfir fyrstu 6 lykkjur í umferð og fellið af 1 lykkju fyrir handveg í byrjun á umferð frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

VINSTRI ERMI:
Prjónið upp lykkjur meðfram handveg efst á peysu og ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.

Byrjið þar sem 1 lykkja var felld af fyrir handveg á vinstra framstykki og prjónið upp 26-28-30-30-32-34 lykkjur frá réttu með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 15. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og niður meðfram handveg á bakstykki þar sem felld var af 1 lykkja fyrir handveg. Prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum með 6-6-5-6-5-4 cm millibili alls 5-5-6-5-6-7 sinnum = 16-18-18-20-20-20 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-36-35-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið perluprjón yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 49-48-47-46-45-43 cm.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en byrjið á bakstykki. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á bakstykki og niður meðfram handveg á framstykki þar sem felld var af 1 lykkja fyrir handveg.

FRÁGANGUR-2:
Saumið hliðar- og ermasauma í eitt í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í vinstra framstykki – sjá mynd. Tölum er hneppt á milli 2 lykkja í kanti að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Katleen wrote:

Hallo, Daar Melody zo veel pluist heb ik via de garenvervanger voor 2 draden brushed alpaca silk gekozen. Samen met Drops Air ( categorie c) kom ik aan c + c + c. Toch kom is deze combinatie niet geschikt voor breinaalden 15. Heb ik een fout gemaakt bij de selectie van de garens ?

20.08.2022 - 15:43

DROPS Design answered:

Dag Katleen,

In het patroon wordt garengroep C+D gebruikt en niet C+C+C, dus in het patroon is de totale dikte kleiner, want C+C is E en niet D. Nou is dit niet zo'n heel groot verschil en waar het uiteindelijk om gaat is dat je dezelfde stekenverhouding krijgt, zodat je het patroon kunt volgen. Je kunt dus ook een proeflapje met een andere naalddikte proberen.

23.08.2022 - 19:10

country flag Katleen wrote:

Hallo, Daar ik Drops Melody vermijd omwille van het pluizen heb ik de garenvervanger geconsulteerd, Twee draden brushed alpaca silk . De big delight wil ik vervangen door Air. Heb dus driemaal garen categorie C. Toch kom ik verre van de steekverhouding nl 7 st en 10 nld voor 10 x 10 cm. Heb je raad voor me ?

19.08.2022 - 23:30

country flag Pao Marie-Antoinette wrote:

Hola, gracias por subir todos estos patrones son increíbles, pero tengo una pregunta, si es el panel trasero, por q hay q hacer disminución para el escote? Gracias :)

24.06.2022 - 06:17

DROPS Design answered:

Hola Pao, normalmente se trabajan disminuciones en la espalda para que se asiente mejor el modelo, haciendo una pequeña forma de escote en la parte de la espalda (en vez de cerrar todos los puntos en la misma fila).

26.06.2022 - 13:24

country flag Marta wrote:

Buenos días, quisiera saber dónde ubicar los ojales para los dos botones, o si estos son decorativos.

09.07.2021 - 05:57

DROPS Design answered:

Hola Marta, como los puntos son muy amplios, no se trabajan ojales, sino que se abotona usando el espacio entre los puntos.

15.07.2021 - 00:19

country flag Marta wrote:

Quisiera saber dónde ubicar los ojales para los dos botones, o si estos son solo decorativos. Agradecé mucho su respuesta.

09.07.2021 - 05:54

country flag Mirja wrote:

Ich bin etwas verwirrt. Wird die Jacke mit Nadelstärke 15 gestrickt?? Wo finde ich die bei Drops.

14.06.2021 - 13:28

DROPS Design answered:

Liebe Mirja, hier finden Sie unsere Rundnadel Stärke 15 - und hier die Liste von den DROPS Laden, die die DROPS Stricknadel in ihrem Laden führen. Viel Spaß beim stricken!

14.06.2021 - 16:33

country flag Béatrice LASSALLE wrote:

Bonjour, Pour réaliser ce modèle de veste, vous utilisez des aiguilles circulaires en aller et retour. Puis-je le tricoter avec des aiguilles droites ? Merci d'avance.

24.01.2021 - 10:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lassalle, on utilise des aiguilles circulaires pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, mais vous pouvez effectivement utiliser des aiguilles droites, pensez à bien vérifier votre tension car vos mailles seront plus serrées - retrouvez plus d'infos sur les aiguilles circulaires ici. Bon tricot!

25.01.2021 - 09:44

country flag Melfeu wrote:

Bonjour, je reçois la laine aujourd’hui... petite question lorsqu’il est dit : Quand l'ouvrage mesure 3 cm, continuer en jersey avec 1 maille lisière au POINT MOUSSE de chaque côté – voir ci-dessus on tricote le rang en jersey (1rang à l’endroit puis l’autre à l’envers) ou au point mousse (tout à l’endroit)? Merci pour votre réponse

15.01.2021 - 10:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Melfeu, vous tricotez en jersey (= à l'endroit sur l'endroit, à l'envers sur l'envers) mais les mailles lisières (= la 1ère et la dernière maille de chaque rang) sont tricotées au point mousse (= à l'endroit tous les rangs) - comme on le montre dans cette vidéo. Bon tricot!

15.01.2021 - 15:20

country flag Evelyne wrote:

Bonjour, je voudrais faire le gilet uniquement en Big Delight et en utilisant un seul fil (et donc des aiguilles adaptées). Quelle quantité de Big Delight dois-je prévoir pour une taille 40 (taille française) ? merci.

27.09.2020 - 17:06

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Ce modèle paraît toutefois correspondre à ce que vous cherchez et pourra au moins vous inspirer pour faire les ajustements nécessaires. Il se tricote en DROPS Air, qui est du même groupe que DROPS Big Delight. Bon tricot!

28.09.2020 - 10:24

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, je ne trouve d'aiguilles N°15 sur la boutique Kalidou, comment faire? Cordialement, Nathalie

12.08.2020 - 16:53

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, n'hésitez pas à les contacter pour vérifier avec eux - même par mail ou téléphone, on saura vous répondre et vous conseiller. Bon tricot!

12.08.2020 - 17:09