DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Seventeen

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-16
DROPS Design: Mynstur sk-073
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-350 g litur 03, ljós beige
50-50-50-100-100-100 g litur 19, múrsteinn

PRJÓNFESTA:
21 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8976.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið rendur þannig:
Prjónið með ljós beige frá uppfitjun til 9-11-12-13-15-17 cm.
Prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn, 6 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn, 6 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn, 3 umferðir ljós beige, 3 umferðir múrsteinn.
Prjónið með ljós beige í 18-18-19-20-20-20 cm.
Prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir með ljós beige, 3 umferðir með múrsteinn, prjónið með ljós beige í 5 cm, prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir með ljós beige, 3 umferðir með múrsteinn. Prjónið til loka með ljós beige.

RENDUR ERMI:
Prjónið með ljós beige þar til ermin mælist 29-28-27-25-24-22 cm frá skiptingu, prjónið 3 umferðir með múrsteinn, 3 umferðir með ljós beige, 3 umferðir með múrsteinn, prjónið með ljós beige til loka.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki í, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstrið jafnóðum og aukið er út.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 100-104-108-116-120-124 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige. Setjið 1 prjónamerki á milli fyrstu og síðustu lykkju (= byrjun á umferð, í hverja skiptingu á milli erma og bakstykkis). Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingunum = 125-130-135-145-150-155 lykkjur. Prjónið síðan með 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið nú yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 124-128-136-144-148-156 lykkjur.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið fyrir LASKALÍNA, án þess að prjóna, þannig: Setjið 1. prjónamerkið í 1. lykkju í umferð, setjið 2. prjónamerki í 41.-43.-47.-51.-53.-57. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 63.-65.-69.-73.-75.-79. lykkju, setjið 4. prjónamerki í 103.-107.-115.-123.-127.-135. lykkju. Prjónið síðan RENDUR OG MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram!

Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 38-40-44-48-50-54 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= bakstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= ermi). Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið A.1 yfir næstu 38-40-44-48-50-54 lykkjurnar, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= framstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi). Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með rendur og mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-24-26-30-33-35 sinnum = 300-320-344-384-412-436 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og rendur þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Endið síðustu umferðina 1-2-1-0-2-3 lykkjum á undan prjónamerki sem merkir byrjun á umferð. Setjið eitt nýtt prjónamerki (= ný byrjun á umferð). Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:

Prjónið 87-95-101-111-123-133 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 63-65-71-81-83-85 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 87-95-101-111-123-133 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-65-71-81-83-85 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 186-202-218-238-266-290 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur og rendur eins og áður þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 184-200-216-236-264-288 lykkjur. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 63-65-71-81-83-85 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-71-79-89-93-97 lykkjur. Prjónið hringinn og haldið áfram með mynstur A.1 og RENDUR ERMI. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 10-10-13-17-18-19 sinnum = 49-51-53-55-57-59 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 39-38-37-35-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-3-1-3-1-3 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 43-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af með, svo að kanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.04.2020
Leiðrétting: ERMI:..Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-3-1-3-1-3 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur.
Yfirfarið á vefsvæði: 16.06.2020
Leiðrétting: Til að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar færist byrjunin á umferðinni til um 1-2-1-0-2-3 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Seventeen

Joe5, France

Sweet Seventeen

Anett Bjørndal Oulie, Norway

Sweet Seventeen

Anett Bjørndal Oulie, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Anny wrote:

Drops 212/16 -super flot og er i gang. vil høre ang.diagram, A1-er det en omgang ret,og næste omg...... en rett og en vrang? og A2-en omg ret og en omg vrang?

29.05.2020 - 11:30

DROPS Design answered:

Hej Anny, Ja det stemmer :)

29.05.2020 - 15:00

country flag Deborah Paige wrote:

Thank you for previous answers, which have helped. Split is still causing trouble! Start of round is as of first raglan line, and at last raglan I have 90/70/90/70 stitches between markers. (320 total) Working 95 Sts, moving 65 onto holder then casting on 6 Sts under sleeve and then the same for 'front' leaves me with one side sleeve divide lining up with raglan on back and the other side lining up with raglan on front - so they are not symmetrical. sorry if unclear - help would be great.

26.05.2020 - 11:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Paige, thanks for your feedback, pattern has been now edited - see correction in red. Happy knitting!

16.06.2020 - 13:28

country flag Deborah wrote:

This is a question. When I divide for sleeves and work 'front' in stocking stitch does that mean I change pattern row each time I move from front to back? (otherwise there will be three rows stocking stitch at front which will look odd.) If I do front and back as a plain row, then knitting across the increased stitches gives me two purl stitches in a row. can you help?

24.05.2020 - 12:56

DROPS Design answered:

Dear Deborah, you are not supposed to have 3 rows stocking stitch next to each other when dividing piece, just continue working following A.1 as before - there is now an even numbered of sts, A.1 should fit in the round. Happy knitting!

25.05.2020 - 09:45

country flag Deborah wrote:

I have reached the point where I divide for sleeve, 24 cm from neck edge. I have ended on a 1 purl, 1 row, so Knitting in pattern I am on a plain stitch row from start of round, slipping sleeve stitches and increasing 6 stitches under each sleeve. On the following row (1 plain/1 purl) knitting across the increased stitches to the 'front' I get two purl stitches together. The pattern says knit 'front' in stocking stitch, but I am already on a plain row. Can you help?

24.05.2020 - 12:34

DROPS Design answered:

Dear Deborah, pattern should now fit over all stitches in the round - you do not work any stitches in stocking stitch anymore (the raglan sts are now worked in pattern as other sts). Happy knitting!

25.05.2020 - 09:44

country flag Lisa wrote:

I am having trouble understanding this pattern. Is this pattern supposed to be like a shaker knit or a moss stitch or something else? I would love to see a video.

11.05.2020 - 23:01

DROPS Design answered:

Dear Lisa, this pattern create a textured pattern like rib, you will work (as in A.1) alternately 1 stitch in garter stitch, 1 stitch in stocking stitch. In other words work A.1 as follows in the round: row1: knit 2 - row 2: purl 1, knit 1. Repeat these 2 rounds. Happy knitting!

12.05.2020 - 09:24

country flag Darcia wrote:

From the correction: Correction:... Work until piece measures 39-38-37-35-34-32 cm = 15 1/4”-15”-14 1/2”-13 3/4”-13 3/8”-12 1/2” from division. Knit 1 round and decrease 1-3-1-3-1-3 stitches evenly = 48-48-52-52-56-56 stitches... Am I reading this correctly that for a small I decrease from 186 to 48 sts in one row? And thinking my measurement for small from division should be 32cm. Thank you!

11.05.2020 - 04:03

DROPS Design answered:

Dear Darcia, the correction applies to the sleeve - see online pattern, not on the body. Happy knitting!

11.05.2020 - 10:38

country flag Anne Nelissen wrote:

Hoi, het is me niet duidelijk welke steek hier gebruikt wordt. Wordt er met de ribbelsteek de patentsteek bedoeld? Na de boordsteek, bij de start van de raglan, interpreteer ik het patroon als 1 naald rechts/averechts breien en daarna 1 naald rechts. ?? Maar dat geeft een soort van rijstpapeffect. Is dit de bedoeling? Of kan iemand even verduidelijken hoe ik het patroon moet lezen en welke steken bedoeld worden. Dankjewel alvast. Anne

02.05.2020 - 20:03

DROPS Design answered:

Dag Anne,

Het telpatroon A.2 en A.1 (te vinden rechts onder de schematekening van de trui, onderaan de beschrijving) is een structuurpatroon, waarbij je de ene naald alle steken recht breit en de andere naald 1 recht, 1 averecht.

05.05.2020 - 12:03

country flag Deborah Paige wrote:

Sorry if you have already had this. Would you advise keeping raglan line in stocking stitch at end of increases til I divide for sleeves and body, which means I have 3 pain stitches in a row at raglan til divide)? or change to pattern (1 purl 1 plain) as soon as increases done?

02.05.2020 - 18:35

country flag Deborah Paige wrote:

Hello? Quick question: would you advise keeping raglan line in stocking stitch after the increases have finished? (it leaves me with 3 knit stitches in a row) and change to pattern when I divide into sleeves and body - or should I change to pattern (1 purl I plain on every other row) straight after increases have finished?

02.05.2020 - 18:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Paige, continue working the raglan stitches as before, ie in stocking stitch. Happy knitting!

04.05.2020 - 12:06

country flag Deborah Paige wrote:

This is another question from me about the sweet seventeen pattern\r\nI\'m now doing the first stripe. The main body of the garment is cream and the stripe is rust. \r\nThe first and third stripes in the pattern are a plain row (with yarn over increases for raglan) so the next row in cream starts with a plain/purl pattern (as per diagram - A1/A2). On the purl stitches the cream shows through on the right side of the work. Is this right?

21.04.2020 - 16:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Paige, yes since the stripes are 3 rounds each colour, there will be some first row with a colour worked with purl stitches, this belong to the pattern and the stripes. Happy knitting!

22.04.2020 - 08:14