Nanna skrifaði:
Hej! Jeg har taget ud i alt 13 gange og har nu 168 masker. Næste linje står jeg skal strikke til det måler 12 cm, lige nu m¨ler det kun 10 cm. Skal jeg strikke et par omgange uden raglan, eller??
01.05.2020 - 20:32
Elly skrifaði:
Its a very nice pattern to knit for my little grandson. I only miss the position of the black eyes and nose on the counting patterns. Could you show were they should be placed? Thanks! Elly
17.04.2020 - 12:33DROPS Design svaraði:
Dear Elly, just take inspiration from the picture to add the eyes, you can use for example 2 buttons to check the placement of eyes and try different ways until you find the one that you like. Happy knitting!
17.04.2020 - 12:48
Sofie Hovgaard Winther skrifaði:
Hej :) Hvordan kan det være, at man, når markørerne sættes efter ribkanten er lavet, skal strikke 7 ret og 2 udtagninger til venstre ærme, men 8 ret og 2 udtagninger til højre ærme. For mig lyder det til, at man så vil have en maske mere på højre ærme hele vejen. Men når der så skal sættes til side, så er det 40 på hvert. Raglankanten må da blive skæv, tænker jeg?
14.04.2020 - 16:01DROPS Design svaraði:
Hej Sofie, du har både en ekstra kantmaske og retmaske med til det ene ærme. Strik 1 kantmaske retstrik, 1 ret, sæt 1.mærke, strik 7 masker ret og tag 2-4-2 (2-2-2-2) masker ud jævnt fordelt, sæt 2.mærke (= venstre ærme). God fornøjelse!
28.04.2020 - 15:41
Mari skrifaði:
Jeg skal sy på ører med maskesting og får ikke mønsteret til å stemme. Ørene ser ikke ut som på bildet. Strikker i str12/18 og har funnet A1og A3 som stemmer med oppskriften. Begynner to pinner over og setter riktig stjerne på riktig side. Skal jeg sy mer enn hva mønsteret viser? Hva gjør jeg galt?
01.04.2020 - 11:58DROPS Design svaraði:
Hei Mari. Litt usikker på hva du ikke får til å stemme. Om du har funnet riktig diagram det skal sys maskesting etter, skal det stemme. Bildet kan avvike litt ettersom du strikker en annen størrelse enn på bildet. Du skal ikke sy mer enn hva mønstret viser. mvh DROPS design
17.04.2020 - 09:54
Therese skrifaði:
Om det står sticka 23 maskor och öka 2 maskor jämnt fördelat, ska man då öka 2 maskor då man stickar de där 23 maskorna eller ska man göra det efteråt?
24.03.2020 - 08:11DROPS Design svaraði:
Hej Du ökar 2 maskorna under tiden du stickar de 23 maskorna. Lycka till!
24.03.2020 - 08:54
Ann Kristin skrifaði:
Kan man heller strikke genseren nedenfra og opp, og lage en rund hals uten knapper? Kan man bare følge mønstret som vanlig da?
11.03.2020 - 20:33DROPS Design svaraði:
Hei Ann Kristin. Det kan du gjøre, men husk å tenke andre veien, som snu diagrammet, øk der det skal felles osv. Åpningen til halsen må være stor nok for å få hodet igjennom uten en knapper. God Fornøyelse!
16.03.2020 - 09:32
Joan Falk skrifaði:
Jeg vil gerne strikke Littel FOX men i en uldgarn, der kan vaskes i maskine. Hvad skal jeg vælge og hvor meget? Meget gerne i “ rævefarver”.
08.03.2020 - 22:34DROPS Design svaraði:
Hej Joan, Så kan du vælge DROPS Karisma eller DROPS Merino Extra fine. God fornøjelse!
09.03.2020 - 12:02
Gitte skrifaði:
Hej Drops. Hvordan ændrer jeg opskriften til drops baby marino? (24 sts x 32 rows)=10x10 cm? med pind 3.
23.02.2020 - 19:17DROPS Design svaraði:
Hei Gitte. Denne oppskrifter er skrevet for garn i garngruppe B. DROPS Baby Merino er et tynnere garn og tilhører garngruppe A. Design avd har dessverre ikke muligheten til å skrive om oppskriften for et tynnere garn. Prøv evnt å strikke en større størrelse, sjekke strikkefastheten og målskissen som tilhører oppskriften. God Fornøyelse!
24.02.2020 - 12:01
Little Fox#littlefoxsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með refamynstri. Stærð 1 mánaða – 8 ára.
DROPS Baby 36-14 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 - veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Öll mynsturteikningin A.1 er prjónuð í sléttprjóni. Mynsturteikningin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Þegar prjónað er með 2 litum, prjónað er með nokkrum þráðum í hvorum lit, þá sleppur maður við löng hopp á röngu. Prjónið e.t.v. með þráðum bæði innan úr og utan með sömu dokkunni. Þ.e.a.s. í fyrsta hluta í A.1 er prjónað með 5 þráðum (1 þráður í litnum heslihneta, 1 þráður í litnum ljós beige, 1 þráður í litnum heslihneta, 1 þráður í litnum ljós beige, 1 þráður í litnum heslihneta), síðan er prjónað með 3 þráðum (1 þráður í litnum heslihneta, 1 þráður í litnum ljós beige, 1 þráður í litnum heslihneta). ATH: Til að koma í veg fyrir göt við litaskipti, þá verður að tvinna þræðina um hvorn annan. Mynsturteikning A.2 og A.3 sýnir hvar á að sauma augun með lykkjuspori í lokin. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. prjónamerki, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 2.-3. og 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og aukið út um 1 lykkju á undan 5. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram- og til baka á hringprjón, áður en það skiptist upp fyrir ermar og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 56-60-60 (68-72-72-76) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3,5 með litnum heslihneta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 1½ til 2 cm, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 5 prjónamerki í stykkið og aukið lykkjur jafnt yfir frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt, setjið 1. prjónamerki, prjónið 7 lykkjur slétt og aukið út 2-4-2 (2-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, setjið 2. prjónamerki (= vinstri ermi), prjónið 21-23-23 (27-29-29-31) lykkjur slétt og aukið út 2-2-2 (1-1-2-1) lykkjur jafnt yfir, setjið 3. prjónamerki (= bakstykki), prjónið 8 lykkjur slétt og aukið út 2-4-2 (2-2-2-2) lykkjur jafnt yfir, setjið 4. prjónamerki (= hægri ermi), prjónið 16-18-18 (22-24-24-26) lykkjur slétt og aukið út 2-2-2 (1-1-2-1) lykkjur jafnt yfir, setjið 5. prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón = 64-72-68 (74-78-80-82) lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorir hlið á stykki og aukið út fyrir laskalínu í hverri umferð frá réttu þannig: Aukið út við hvert prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, alls 13-14-15 (16-17-18-19) sinnum = 168-184-188 (202-214-224-234) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 12-13-15 (16-17-18-19) cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, setjið næstu 36-40-40 (42-44-46-48) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-6 (6-6-6-6) lykkjur undir ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir 49-53-55 (60-64-67-70) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 36-40-40 (42-44-46-48) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-4-6 (6-6-6-6) lykkjur undir ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir 45-49-51 (56-60-63-66) lykkjur, 1 lykkja garðaprjón og fitjið upp 4-4-4 (4-4-4-5) lykkjur í lok umferðar = 108-116-124 (134-142-148-155) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 0-0-0 (0-1-2-3) cm frá skiptingu. Nú er prjónað A.1 á framstykki þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón yfir 62-68-72 (76-82-84-89) lykkjur, A.1 (= 35-35-39 (46-46-51-51) lykkjur), 9-11-11 (10-12-11-13) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið til loka með heslihneta. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 13-14-15 (17-20-23-26) cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 2-2-2 (0-0-2-3) lykkjur jafnt yfir = 110-118-126 (134-142-150-158) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist ca 3 cm – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Peysan mælist ca 28-30-33 (36-40-44-48) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-40-40 (42-44-46-48) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6 (6-6-6-6) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-44-46 (48-50-52-54) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 4-4-6 (6-6-6-6) lykkja sem prjónaðar voru upp mitt undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½ (2½-3½-4-5) cm millibili alls 3-4-5 (5-5-5-5) sinnum = 34-36-36 (38-40-42-44) lykkjur. Þegar ermin mælist 10-12-13 (16-21-25-28) cm frá skiptingu, fækkið um 2-0-0 (2-0-2-0) lykkjur jafnt yfir = 32-36-36 (36-40-40-44) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 3 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. LASKALÍNUKANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 28 til 36 lykkjur frá réttu (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram laskalínuopi á ermi á hringprjón 3,5 með litnum heslihneta. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju garðaprjón og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm, felli af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið meðfram laskalínuopi á framstykki, en þegar kantur að framan mælist 1 cm fellið fyrir 4 hnappagötum á framstykki. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman í brugðnu einingunum, (séð frá réttu) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju garðaprjón. Saumið út augu á ref og nef með litnum svartur. Eyrun eru saumuð með lykkjuspori með litnum ljós bege eftir mynsturteikningu A.2 og A.3. Lykkjurnar eru saumaðar ofan frá og niður. Lykkja með ör og stjörnu í mynsturteikningu A.2 og A.3, á að sauma ca 2 umferðum neðan við lykkju með ör og stjörnu í A.1. Saumið kanta að framan neðst í laskalínuopi (þar sem fram- og bakstykki byrjar) – kantur að framan á framstykki á að liggja yfir kant á ermi. Saumið tölur í kant að framan á ermi. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlefoxsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.