Britt Helen skrifaði:
Denne modellen må være helt feil mht størrelser. Bestilte garn til str m. Strikket som anført i oppskrift, men genseren ble mindre enn str S . Ingen rest av bunnfarge garn da jeg bar ferdig. Så jeg har ikke strikket feil mht bestilt strikkepakke. . Anbefaler at oppskrift mht størrelse gjennomgås.
03.01.2023 - 16:44
Hélène R skrifaði:
Est-ce que ce serait une bonne idée de faire une élévation derrière le cou pour ce modèle?
12.04.2022 - 03:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Helene, bien sur. Bon tricot!
12.04.2022 - 08:49
Ella skrifaði:
Ik begrijp niet hoe de meerdering werkt waar het patroon van 6 naar 8 steken gaat, dus tussen pijl 4 en 5.
22.01.2022 - 10:49DROPS Design svaraði:
Dag Ella,
Op pijl 4 heeft het telpatroon 6 steken in de breedte die je steeds herhaalt. Het komt er op neer dat je dan de hele naald in licht mint breit. Verdeeld oever de gehele toer meerder je steken. Op het stukje tussen pijl 4 en pijl 5 is het telpatroon 4 steken breed en deze steken herhaal je steeds tot je weer aan het begin van de toer bent. Op pijl 5 heeft het telpatroon 8 steken in de breedte in steenrood en hier geldt weer hetzelfde als op pijl 4: de meerderingen verdeeld op de toer maken. Na pijl 5 heb je meer steken op de naald, dus meer herhalingen van 8 steken.
24.01.2022 - 20:29
Barbara skrifaði:
Ich würde mir mehr Pullover wünschen, auch für Kinder, im Stil von Retro Beauty, dann könnte ich all meine vielen Wollreste mit verarbeiten. Ethnic Style, vielleicht in Ocker, Rostbraun usw. und auch geometrisch würde mir sehr gefallen. Ansonsten finde ich Eure Website großartig, habe schon viel Fabel verstrickt.
15.12.2021 - 23:16
Anne Mary skrifaði:
Jeg Har Tenkt å Strikke I Brushed Alpacca Silke. Går Det Bra?
26.03.2021 - 08:42DROPS Design svaraði:
Hej Anne Mary, DROPS Sky tilhører garngruppe B og Brushed Alpaca silk tilhører garngruppe C så den er lidt tykkere. Prøv at lave en strikkeprøve hvor 20 masker og 26 pinde = 10x10 cm, så kan du selv se om du synes om strukturen :)
26.03.2021 - 13:51
šárka Kubánková skrifaði:
Dobrý den, je mi velice divné, že se přidává na podpaží nejdříve vlatstně na předním díle a na druhé podpaží na zadním díle. Skutečně to tak má být? děkuji
19.02.2021 - 12:37
Anna Maskova skrifaði:
Dobry den, Nemohu se docist kolik prize se potrebuje na velikost M. Mohli byste mi to upresnit? Dekuji
14.02.2021 - 18:09DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Anno, spotřebu uvádíme vždy v hlavičce návodu, spolu s dalšími důležitými informacemi (velikost jelic, zkušební vzorek a pod.). Množství potřebné příze je rozepsáno ve stejném pořadí, v jakém jsou zapsány jednotlivé velikosti (tento systém platí v celém návdu, tedy i pro počty ok atd.). Pro velikost M platí tedy vždy druhý údaj zleva, potřebujete tedy: 250 g, barva č. 15, světlá mint a po 50 g od každé z dalších barev. Hodně zdaru! Hana
15.02.2021 - 07:13
DROUET skrifaði:
Bonjour, Doit-on repasser le pull une fois terminé ? je ne l'ai pas fait, et les manches et le corps ont rétréci. Merci de votre aide.
15.01.2021 - 17:26
Suzanne Marks skrifaði:
Is the tension for this pattern correct? It doesn’t match the tension on the ball band and when I knit the pattern swatch, to get the tension as stated in the pattern it has a much more open texture than the picture shown.
01.11.2020 - 12:59DROPS Design svaraði:
Dear Suzanne, the tension for the pattern is correct. The ball band tension is 21x28 and in the pattern it's 20x26, so it's quite similar (they don't have to be identical, since you can make a garment with the same yarn with a more open or tight texture). The tension is calculated by working in stocking stitch and not the multi-colored pattern, perhaps that's the difference. If that's not it, you could try using a smaller needle. Happy knitting!
01.11.2020 - 16:16
Lebon skrifaði:
Bonjour, je me demandais si on pouvait commencer par le bas car je n'ai pas d'aiguilles circulaire et comment faire pour debuter merci
15.04.2020 - 13:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lebon, vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites - pour le tricoter de bas en haut, il suffit peut être de prendre les instructions en sens inverse - n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS pour toute assistance complémentaire et pour tous les ajustements nécessaires. Bon tricot!
15.04.2020 - 14:34
Retro beauty#retrobeautysweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er brotinn niður tvöfaldur og saumaður niður að innanverðu á stykki í lokin. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-106-110-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum sítróna. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 9 cm. Setjið 1 prjónamerki hér, héðan er nú mælt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið síðan eftir A.1 og aukið út jafnt yfir í umferð með ör – SJÁ ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út við örvar í mynsturteikningu þannig: ÖR 1: aukið út 34-36-38-44-46-52 lykkjur = 126-132-138-150-156-168 lykkjur í umferð. ÖR 2: aukið út 36-36-36-42-42-48 lykkjur = 162-168-174-192-198-216 lykkjur í umferð. ÖR 3: aukið út 30-30-36-42-42-48 lykkjur = 192-198-210-234-240-264 lykkjur í umferð. ÖR 4: aukið út 24-30-34-38-40-40 lykkjur = 216-228-244-272-280-304 lykkjur í umferð. ÖR 5: aukið út 24-28-36-32-40-40 lykkjur = 240-256-280-304-320-344 lykkjur í umferð. ÖR 6: aukið út 24-24-24-32-32-40 lykkjur = 264-280-304-336-352-384 lykkjur í umferð. ÖR 7: aukið út 16-24-24-28-36-28 lykkjur = 280-304-328-364-388-412 lykkjur í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með litnum ljós mynta þar til stykkið mælist 20-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 42-46-49-54-59-64 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 56-60-66-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-92-98-108-118-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-60-66-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-46-49-54-59-64 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-216-236-260-284 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós mynta. Þegar stykkið mælist 29-31-32-32-32-32 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-60-66-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós mynta = 64-68-76-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 10-10-5-3-3-3 cm millibili alls 2-2-4-6-6-6 sinnum = 60-64-68-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-38-38-36-34-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-20-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 44-44-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Ermin mælist ca 42-42-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – munið eftir AFFELLING. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það verði uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og sveigist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur og ekki stífur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #retrobeautysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.