Ina Haringsma skrifaði:
Wie in Nerderland kan mij helpen met de trui Tulip Ring/Drops 212?
25.04.2020 - 20:43DROPS Design svaraði:
Dag Ina,
Je kan je vragen hier op het forum stellen. Waar kom je precies niet uit? Als je wat specifieker aangeeft waar je tegenaan loopt kunnen we je beter helpen. Bekijk evt. ook de video's die bij het patroon staan.
28.04.2020 - 20:35
Fatma AlMassry skrifaði:
Can i order one and ship it to Egypt
26.03.2020 - 17:29DROPS Design svaraði:
Dear Mrs AllMassry, you will find the list of our DROPS retailers shipping worldwide here - do not hesitate to contact them by mail for any further informations. Happy knitting!
27.03.2020 - 09:31
Virga skrifaði:
Sorry voor mijn vraag, heb het patroon terug bekeken : de uitleg begint vanaf Medium, niet Smal, dus het klopt.
19.03.2020 - 19:46DROPS Design svaraði:
Dag Virga,
Dankjewel voor de terugkoppeling en veel breiplezier!
24.03.2020 - 18:45
Laurence skrifaði:
Merci infiniment pour votre réponse, ça a donné un sens à tout un pan des instructions que je n avais pas saisi jusqu’à maintenant
09.03.2020 - 18:10
Laurence skrifaði:
Bonjour est il possible de tricoter ce modèle avec un fil alpaca et un fil kid silk? de plus est il possible de le tricoter avec des aiguilles droites?
09.03.2020 - 08:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Laurence, tout à fait, vous pouvez remplacer 1 fil Air (= groupe C) par 2 fils du groupe A = 1 fil Alpaca + 1 fil Kid-Silk par exemple - plus d'infos ici. Vous trouverez également ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
09.03.2020 - 12:48
Anette Adetoft skrifaði:
Stickar i medium. När oket är klart har jag 231 maskor. Öka 10 m=241. Det står att jag då ska ha 262m. När jag ska dela arbetet 25,50,69,50,44=238. Var är felet?
29.02.2020 - 07:42DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Du skal ha 231 masker når arbeidet måler ca 20 cm. Nå står beskrivelsen til str S for seg selv, slik at du som strikker str. M må se på det første tallet under: Størrelse M, L, XL, XXL og XXXL, altså når arbeidet måler 21 cm, økes det med 7 masker jevnt fordelt = 231 + 7 = 238 masker og da vil beskrivelsen under Alle størrelser stemme. God Fornøyelse!
02.03.2020 - 12:03
Daphne Archer skrifaði:
Please could I buy the Drops pattern knitted from neck down?
28.02.2020 - 21:51DROPS Design svaraði:
Dear Daphne, you do not need to buy the patterns as the DROPS patterns are available free, and you can download them from our website. If you are looking for top down patterns, please use the search function on our side that can filter your results. Happy Knitting!
29.02.2020 - 20:45
Nicole GUTH skrifaði:
Oh, mille mercis pour la rapidité de votre réponse. Vous êtes super efficaces, je pensais que pour la taille M, c'étaient les premiers chiffres... Belle semaine à vous
24.02.2020 - 11:15
Nicole GUTH skrifaði:
Bonjour J'ai un souci avec le nombre de mailles en taille M. A la fin de l'arrondi j'ai bien 238 mailles, ensuite je prends bien les premières mesures indiquées, 31+46+8+62+46+8+31et là il y a 6 mailles en trop .Comment les répartir? J'ai déjà refait 2 fois, mais ça ne colle pas. j'espère que vos lumières pourront m'éclairer Merci pour votre aide et vos conseils et bon lundi Nicole
24.02.2020 - 00:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guth, en taille M vous avez bien 238 m mais pour la division, la taille M est la 2ème taille et vous devez donc diviser ainsi: 25 + 50 + 69 + 50 + 44= 238 m et quand les mailles des manches sont en attente: 25 + 8 + 69 + 8 + 44 = 154 m. Bon tricot!
24.02.2020 - 09:51
Anna Pagels skrifaði:
Hmmm - jag läste fel :-( Uppmärksammade inte att maskor för storlek S var borttagen från variabellistan.
20.01.2020 - 19:35
Tulip Ring#tulipringsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og trompetermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 19. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-8-0-3-6-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 80-88-84-91-98-105 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir stroff í byrjun á umferð, það á að mæla berustykkið frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) alls 10-11-12-13-14-15 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 210-231-252-273-294-315 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Prjónið áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S: Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 216 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan: Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25 cm, aukið út 7-10-9-16-17 lykkjur jafnt yfir = 238-262-282-310-332 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan. Allar stærðir: Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Í stærð M, XL og XXXL eru ójafn fjöldi með A.1 í umferð og til að mynstrið verði staðsett samhverft við miðju að framan, færið byrjun á umferð til þannig að hún verði ekki lengur mitt að aftan í þessum stærðum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 31-25-37-31-45-41 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-56-60-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-69-75-81-91-100 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-56-60-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 31-44-38-50-46-59 lykkjur sem eftir eru (= ca hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-154-166-182-202-220 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 23-24-24-24-24-24 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-18-18-22-24 lykkjur jafnt yfir = 156-172-184-200-224-244 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 46-50-56-60-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-5-1½-1-1-1 cm millibili alls 2-3-6-9-7-5 sinnum = 50-52-52-52-60-66 lykkjur. Þegar ermin mælist 14-14-12-10-9-7 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 52-52-52-52-56-60 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er aukið út um 2 lykkjur, í stærð M, L, XL eru ekki auknar út lykkjur eða fækkað og í stærð XXL og XXXL er fækkað um 4-6 lykkjur). Prjónið nú mynstur hringinn þannig: Prjónið * 0-0-0-0-1-2 lykkjur slétt, A.2 *, prjónið *-* alls 4 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 68-68-68-68-72-76 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 72-72-72-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 34-34-32-30-29-27 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tulipringsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.