Cloud Fluff |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa með ísettum ermum án sauma úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-14 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 8,25. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – í hring: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsátt og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og lykkjan er prjónað saman. Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri = alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru prjónaðar 3 lykkjur þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið síðan áfram í klukkuprjóns mynstri. ATH! Þessi prjónamerki eiga ekki að færast til, aukið síðan út í sömu lykkju. Þ.e.a.s. lykkjufjöldinn á milli 1. og 2. útaukninga á hvorri öxl verður sá sami. ÚTAUKNING-2: Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppslátturinn og lykkja er prjónað brugðið saman. FYRSTA ÚTAUKNING Á ERMAKÚPU ER PRJÓNUÐ ÞANNIG: Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkið þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju (þ.e.a.s. lykkju á hægri prjóni), en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í fyrstu útauknu lykkjunni (= brugðin lykkja). Í næsta skipti sem aukið er út á að auka í lykkju með prjónamerki. ÖNNUR ÚTAUKNING Á ERMAKÚPU ER PRJÓNUÐ ÞANNIG: Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkin þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í síðustu útauknu lykkjunni (= brugðin lykkja). Í næsta skipti þegar aukið er út er aukið í lykkjuna með prjónamerki. Í næsta skipti eru 3 lykkjurnar prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið síðan áfram í klukkuprjóns mynstri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í eitt stykki ofan frá og niður. Aukið er út fyrir öxlum og ermakúpu. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 62-62-66-72-72-76 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði Sky og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 54-54-58-62-62-66 lykkjur. Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki þannig (prjónamerkin eru sett í lykkjurnar, byrjun á umferð er ca mitt að aftan): Prjónið 7-7-9-9-9-11 lykkjur slétt, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið 13 lykkjur slétt, setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið 11-11-13-15-15-17 lykkjur slétt, setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið 13 lykkjur slétt, setjið 4. Prjónamerki í næstu lykkju og prjónið slétt, prjónið slétt yfir 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem eftir eru. Lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis er hægri öxl, lykkjur á milli 3. og 4. prjónamerkis er vinstri öxl. Það á að auka síðar í lykkjur með prjónamerki. Setjið 1 prjónamerki í stykkið í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – í hring – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur og aukið út fyrir öxl þannig: ÖXL: Fyrsta útaukning er gerð í 2. umferð í klukkuprjóns mynstri (lykkjur með prjónamerki eru brugðnar lykkjur). Aukið út 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6-7-8-8-9-9 sinnum = 102-110-122-126-134-138 lykkjur. Aukið út í sömu lykkju, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn á milli 1. og 2. og 3. og 4. prjónamerki verður sá sami, útauknar lykkjur eru prjónaðar á undan 1. prjónamerki, á milli 2. og 3. prjónamerki og á eftir 4. prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 9-10-11-11-12-12 cm frá prjónamerki á eftir kanti í hálsmáli. Nú eru lykkjur auknar út fyrir ermakúpu þannig: ERMAKÚPA: Prjónið 3 umferðir eftir síðustu útaukningu á öxl. Í næstu umferð með brugðnum lykkjum (þ.e.a.s. uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman) er aukið út fyrir ermakúpu og prjónamerkin eru færð þannig: HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið eins og áður að lykkju með 1. prjónamerki. HÆGRI ERMAKÚPA: 1. útaukning á hægri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= lykkjan með 1. prjónamerki = ranga) – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið 1 lykkju eins og áður (= slétt lykkja), 2. útaukning á hægri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= brugðin lykkja) (= 4 lykkjur fleiri). FRAMSTYKKI: Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með 4. prjónamerki, takið frá 2. og 3. prjónamerki. VINSTRI ERMAKÚPA: 1. útaukning á vinstri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= brugðin lykkja), prjónið 1 lykkju eins og áður (= slétt lykkja), 2. útaukning á vinstri ermakúpu er gerð í næstu lykkju (= lykkjan með 4. prjónamerki = brugðin lykkja) (= lykkjur fleiri). HÁLFT BAKSTYKKI: Prjónið út umferðina eins og áður. Nú eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið. Aukið út 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki og færið prjónamerkin í 4. hverja umferð alls 8-9-10-10-12-13 sinnum = 166-182-202-206-230-242 lykkjur. Prjónamerkin eru færð í ystu lykkjuna hvoru megin við hvora ermakúpu í hvert skipti sem aukið er út, þ.e.a.s. það verða 4 lykkjur fleiri á milli prjónamerkja á ermakúpu í hverri útaukningu. Stykkið mælist ca 20-22-24-24-28-29 cm, mælt frá prjónamerki mitt að aftan. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni þar til stykkið mælist 24-24-25-26-29-30 cm, mælt frá prjónamerki mitt að aftan. Nú er aukið út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri) = 174-190-210-214-238-250 lykkjur. Prjónið 1 umferð. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig, klukkuprjón er prjónað eins og áður. Prjónið 27-29-31-33-37-39 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 34-38-42-42-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 53-57-63-65-73-77 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 34-38-42-42-46-48 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, endið með 26-28-32-32-36-38 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 118-126-138-146-162-170 lykkjur. Haldið áfram hringinn með klukkuprjóns mynstri. Í fyrstu umferð með klukkuprjóns mynstri eru prjónaðar 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi án þess að prjóna lykkjurnar saman með uppslætti. Þegar stykkið mælist 25-27-28-29-28-29 cm frá skiptingu, prjónið 3 sléttar umferðir. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 34-38-42-42-46-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 40-44-48-50-54-56 lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóns mynstri. Í fyrstu umferð með klukkuprjóns mynstri eru prjónaðar 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi án þess að prjóna lykkjurnar saman með uppslætti. Þegar stykkið mælist 30-31-31-30-28-27 cm frá skiptingu, prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Fellið síðan af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (37)
Ula skrifaði:
Czy jest możliwe zamieszczenie wideoinstrukcji dotyczącej dodawania oczek na ramiona i zaokrąglenie rękawów ? Jest to całkowicie nowa metoda formowania rękawów/reglanu i myślę że więcej osób ma problem z prawidłowym zrozumieniem opisu. Będę bardzo wdzięczna za video bo wzór mi się bardzo podoba, jest nietuzinkowy. Z góry serdecznie dziękuję.
21.01.2020 - 14:40DROPS Design svaraði:
Witaj Ulu, już zgłosiłam taką prośbę. Sprawdzaj we wzorze czy video jest już dostępne. Dziękujemy za zainteresowanie naszymi wzorami i serdecznie pozdrawiamy!
21.01.2020 - 17:01Jill skrifaði:
Ich bin ziemlich verwirrt was die Armkugel angeht. Erst bis Marker 1 stricken, dann bis 4 (2 und 3 entfernen). Dann ist doch die Runde beendet und plötzlich geht es um die linke Armkugel? Ist das noch die gleiche Reihe oder erfolgen diese Zunahmen später? Muss man da nicht wie bei einem Raglan Pullover an jeder "Naht" je links und rechts davon zunehmen? Wäre hilfreich wenn nach dieser Zunahme eine Maschenzahl angegeben wäre.
20.01.2020 - 20:12DROPS Design svaraði:
Liebe Jill, bei der Zunahmen für den Armkugel nehmen Sie 2 Maschen an jedem Ärmel wie beschrieben, dh es sind keine Raglanzunahmen sondern nur für die Ärmel. Stricken Sie genau wie beschrieben, so nehmen Sie 4 Maschen bei jeder Ärmel zu = 8 Maschen pro Zunahmenrunde und insgesamt 8 bis 13 x (siehe Größe). Viel Spaß beim stricken!
21.01.2020 - 09:36Karine skrifaði:
Incompréhensible... Après le tour 1 et ses jetés, on se retrouve avec 81m. En ajoutant 7 séries de 8 augmentations, on aurait donc au total 137m. et non 110 pour la taille M. A cause de ce mauvais nombre de mailles, le motif n'arrête pas de se décaler et impossible de comprendre ce que je fais de travers : je suis scrupuleusement les indications... Dommage, j'aurais vraiment aimé tricoter ce modèle.
19.01.2020 - 03:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Karine, les jetés des côtes anglaises ne comptent pas dans le nombre de mailles, ils comptent uniquement avec leur maille glissée. En M vous avez 54 mailles après la bordure endroit, vous tricotez ensuite en côtes anglaises, en plaçant bien vos marqueurs comme indiqué (on augmente dans les mailles envers); le nombre de mailles entre les marqueurs des épaules ne change pas, c'est le nombre de mailles du devant et du dos qui augmente au début. On augmente 7 x 8 mailles = 56 augmentations + les 54 m du début = 110 m. Bon tricot!
20.01.2020 - 10:29Silke skrifaði:
Ein tolles Modell! Leider passt die Anleitung nicht zur Maßskizze. Es gibt falsche Angaben: Die Schulter über 13 Maschen entspricht 10,8 cm und nicht 6 cm. Der Ärmel hat 40 Maschen = 33,4 cm Ärmelumfang und nicht 56 cm!!! Die Grundform entspricht auch keimen T! Sehr schade!
16.01.2020 - 23:28DROPS Design svaraði:
Liebe Silke, die 3 cm oben sind für die Schulter, die sind aber nicht die 13 Maschen von der Anleitung. Wenn der Pullover flach liegt, dann sind die Schulter 3 cm höher als bis zum Halsausschnitt (1 cm = Halskante). Die 25 cm sind die Höhe der Passe, der Ärmelumfang ist aber nicht in der Maßskizze. Die Ärmel wird 33 cm messen, Sie sind ja recht. Maßskizze ist etwas standard, aber hier haben Sie genauso die Schulter, und Ärmel wie in der Maßskizze gezeichnet, keine Abnahme bei den Ärmeln und die Seite vom Rumpfteil sind gerade. Viel Spaß beim stricken!
22.01.2020 - 09:41Marianne skrifaði:
Hei =) Jeg skulle ønske dere hadde flere bilder av genseren, for det er litt vanskelig å se hvor lang den er, samt hvordan den ser ut i armene =) Den ser vanvittig digg ut, så denne vil jeg strikke 😍 Er det noe mulighet for å få tilsendt noen bilder av genseren, eller kan dere legge ut flere bilder av den her?
16.01.2020 - 18:53DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Vi har lagt ut 5 bilder av denne modellen som vi håper gir et godt inntrykk av hvordan denne herlige genseren blir. God Fornøyelse!
27.01.2020 - 12:50Jero skrifaði:
Casual y desenfadado. Fácil de ejecutar. Lo tiene todo para realizarlo enseguida publiquen los patrones.
15.01.2020 - 10:23Eva skrifaði:
Ich habe für diesen Pullover gestimmt, weil es mir immer gefällt, wenn Ärmel mal nicht auf die typische Art und Weise eingesetzt sind. Aber bitte nicht Sky! Das Garn verfilzt extrem schnell und ist nach meiner Erfahrung für Pullover nicht geeignet.
11.12.2019 - 16:32