Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við aukum út eftir ÚTAUKNING-1 á öxlum í peysunni «Cloud Fluff» í DROPS 212-14. Við erum með færri fjölda lykkja en sem stendur í mynstri og við höfum nú þegar aukið út í 3 umferðum. Við sýnum einungis ÚTAUKNING-1 yfir öxlum, bæði hvernig er prjónað og hvernig umferðin á eftir er prjónuð (við sýnum ekki hvernig framstykkið og bakstykkið er prjónað). ÚTAUKNING-1 er prjónuð þannig:
Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn með prjónamerki þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri = alls 8 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð eru prjónaðar 3 lykkjur þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið.
Þessi peysa er prjónuð úr 1 þræði DROPS Sky og 1 þræði DROPS Kid-Silk, en í myndbandinu notum við garnið; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.
Front = Framstykki aftan, Back = Bakstykki, Sleeve = Ermi (öxl)
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð