Hvernig á að auka út fyrir ermakúpu í DROPS 212-14

Keywords: hringprjónar, klukkuprjón, peysa,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við aukum út eftir ÚTAUKNING-2 fyrir ermakúpu í peysunni «Cloud Fluff» í DROPS 212-14. Við erum með færri fjölda lykkja en sem stendur í mynstri. Við sýnum ÚTAUKNING-2 með 1. og 2. útaukningu fyrir ermakúpu, hvernig við færum prjónamerkin og hvernig umferðin á eftir er prjónuð (við sýnum ekki hvernig framstykkið og bakstykkið er prjónað). ÚTAUKNING-2 er prjónuð þannig:
Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkið þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju (þ.e.a.s. lykkju á hægri prjóni), en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í fyrstu útauknu lykkjuna (= brugðin lykkja). Í næsta skipti sem aukið er út á að auka í lykkju með prjónamerki.
ÚTAUKNING-2, önnur útaukning á ermakúpu er prjónuð þannig:
Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkin þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna brugðið saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn brugðið saman 1 sinni til viðbótar og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í síðustu útauknu lykkjunni (= brugðin lykkja). Í næsta skipti þegar aukið er út er aukið í lykkjuna með prjónamerki.
Í næsta skipti eru 3 lykkjurnar prjónaðar þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið.
Front = Framstykki aftan, Back = Bakstykki, Sleeve = Ermi (öxl)
Þessi peysa er prjónuð úr 1 þræði DROPS Sky og 1 þræði DROPS Kid-Silk, en í myndbandinu notum við garnið; DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift með þessari aðferð til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

Myndbandið að ofan er hægt að nota í eftirfarandi mynstrum

Athugasemdir (1)

Augendre wrote:

Est-ce que vous pourriez m'expliquer comment faire les diminutions des manches je les tricote en magic loop c'est la première fois que j'utilise cette méthode merci d'avance bonne journée

27.12.2022 - 09:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Augendre, on ne diminue pas lorsque l'on tricote les manches, elles se font toutes droites à partir des mailles mises en attente jusqu'à ce qu'on les rabatte. Bon tricot!

02.01.2023 - 15:17

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.