DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Sky yarn
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Evening Glow Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og stuttum ermum með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 212-2

#eveningglowjacket

DROPS Design: Mynstur sk-075
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 19, múrsteinn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA, kókoshneta NR 516: 6-6-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1470.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur):
Prjónið frá réttu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón.
Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur):
Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 93 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 31.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 31. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kanta að framan og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 30. og 31. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (laskalína) og A.2 (mynstur á ermum). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 10 lykkjur í A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= alls 8 lykkjur fleiri í útauknings umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á framstykki og bakstykki og í A.2 á ermum.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá röngu!
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (rétta) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8½-9-8-8 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 105-109-113-119-123-127 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Sky.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið VINSTRI KANT AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur) – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (= 6 lykkjur) – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með stroff í 3 cm, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATH: Kantur að framan er prjónaður eins og útskýrt er að ofan til loka.
Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) þar sem aukið er út um 3-7-7-5-1-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 108-116-120-124-124-132 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð meitt að framan. Berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn brugðið).
Prjóni síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar):
Teljið 20-22-23-24-24-26 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), teljið 28-32-34-36-36-40 lykkjur (= bakstykki) setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 20-22-23-24-24-26 lykkjur á hægra framstykki á eftir síðasta prjónamerki.

Í næstu umferð byrjar mynstur eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. í næstu umferð er aukið út frá réttu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, 9-11-12-13-13-15 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.2 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið 18-22-24-26-26-30 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.2 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur og prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið 9-11-12-13-13-15 lykkjur sléttprjón og endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður.

Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 23-25-29-33-37-40 sinnum á hæð meðtaldar útaukningar sem útskýrðar eru í fyrstu umferð. ATH: Útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur þar til alls 5-5-7-7-7-7 mynstureiningar eru á breidd yfir ermi, prjónið síðan næstu útauknu lykkjur brugðið frá réttu og slétt frá röngu til loka (A.2 sýnir ermi með öllum útaukningum í stærð S).
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 292-316-352-388-420-452 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 46-50-55-60-66-72 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-98-108-120-132 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-55-60-66-72 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 188-204-224-244-268-292 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 50-54-59-64-70-76 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 88-96-106-116-128-140 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 172-188-208-228-252-276 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16 cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 196-212-232-252-276-300 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður) og aukið jafnframt út 37-41-45-49-53-57 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 233-253-277-301-329-357 lykkjur.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-72-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með mynstur hringinn með A.2 yfir miðju 46-46-64-64-64-64 lykkjur á ermi og brugðnum lykkjum yfir þær 22-26-16-24-28-32 lykkjur sem eftir eru mitt undir ermi.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-½-½ cm millibili alls 5-6-8-10-12-13 sinnum = 58-60-64-68-68-70 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 17-15-14-12-11-9 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-8-10-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 20-18-17-15-14-12 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt) = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju
1 mynstureining á breiddina = 1 mynstureining á breiddina
Diagram for DROPS 212-2
Diagram for DROPS 212-2

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eveningglowjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Zornitsa skrifaði:

Buongiorno, vorrei chiedere il numero di maglie iniziali (CO), in questo caso 109 (collo) includono già i 6 da ogni lato o le dobbiamo calcolare (109 + 12) ed aggiungerle noi? Grazie se mi risponderete e complimenti, i vostri schemi sono tutti bellissimi.

12.10.2021 - 10:37

DROPS Design svaraði:

Buonasera Zornitsa, il numero di maglie da avviare è già comprensivo delle maglie del bordo, come indicato nel testo. Buon lavoro!

13.10.2021 - 18:19

country flag Estelle skrifaði:

Wie viel Garn benötigt man für diese Jacke, wenn man lange Ärmel stricken möchte? Reichen zusätzliche 50g?

25.07.2021 - 20:50

DROPS Design svaraði:

Liebe Estelle, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter - auch telefonisch oder per E-Mail. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

26.07.2021 - 09:05

country flag Lori skrifaði:

Hei , jeg er ferdig hele A 1 og A 2 men før økes maske A 1 det blir ikke ser ut bra hvorfor

14.06.2021 - 08:51

DROPS Design svaraði:

Hej Lori, det er svært at sige hvor det kan være gået galt... Hvis man følger hver maske i diagrammet, så skal det se ud som på billedet. Det kan være du kan se ved at kigge på billedet hvor det kan være gået galt...

15.06.2021 - 15:33

country flag Lara Aldaz skrifaði:

Buenas tardes: Estoy haciendo la muestra del motivo A2 de las mangas y aunque entiendo como hacer las disminuciones de los símbolos hacia los 2 lados, y también tejer uno, hacer lazada tejer el siguiente y en el revés tejer la lazada del revés, no sé como combinar ésto con los dos tipos de disminuciones para crear el motivo de las mangas. Por favor podrían explicarme como hacerlo? Muchas gracias, un saludo

05.04.2021 - 21:13

country flag Marie-pierre Donbalak skrifaði:

Je ne comprends pas où faire les augmentations passé ls 2 premiers rangs du dessin; pourriez vous me donner l'explication du troisième rang du point fantaisie , merci

08.03.2021 - 16:02

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Donbalak, les augmentations des raglans ne figurent pas dans les diagrammes, elles doivent se faire comme indiqué dans le texte, de chaque côté de chaque A.1 (= avant et après chaque A.1). Au rang suivant, vous tricotez ces jetés en jersey (devants et dos) et comme indiqué dans le diagramme A.2 (manches), ainsi, au rang 2 de A.2 vous avez 12 mailles et au rang 3: 1 m env, 1 m end, 3 m env, 2 m ens à l'end, 1 jeté, 3 m env, 1 m end, 1 m env. Bon tricot!

09.03.2021 - 07:15

country flag Barbara skrifaði:

Ja, vielen Dank. Ich habe mich durch die Darstellung der rechten Maschen in die Irre führen lassen und nicht daran gedacht, dass in der Rückreihe die Maschen ja links gestrickt werden.

26.10.2020 - 11:18

country flag Barbara skrifaði:

Nachdem ich das Muster ein gutes Stück, 15 cm, gestrickt habe, stellte ich fest, dass das Muster optisch nicht mit dem Bild übereinstimmt. Ich glaube, die Abnahmen in A1 und A2 müssen von der linken Seite aus gemacht werden, ansonsten stimmt das markante Lochmuster nicht.

24.10.2020 - 15:23

DROPS Design svaraði:

Liebe Barbara, ich misverstehe vielleicht Ihre Frage (dann Entschuldigung im voraus), die 1. Reihe in A.1/A.2 ist eine Hinreihe, und das Lochmuster wird abwechslungsweise 1 Umschlag, 1 Masche wie zum Rechtsstricken abheben, 1 Masche rechts, die abgehobene Masche über die gestrickte ziehen (Reihe 1) und 2 Maschen rechts zusammen, 1 Umschlag (Reihe 3). Bei den Rückreihen werden diese 2 Maschen links gestrickt. Hilft es so?

26.10.2020 - 08:00

country flag Kristin skrifaði:

Jeg har strikket 2 pinner på mønsterdelen på bærestykket nå, men når jeg begynner på 3 pinne med mønster forstår jeg ikke hvor mange masker som skal strikkes glattstrikk før «1 økemaske til raglan og A1». Er det stolpen + 11 masker eller stolpen + 12 masker nå? Økes det på dette partiet med 1 maske glattstrikk for hver rette pinne? Jeg strikke str M.

26.08.2020 - 18:04

DROPS Design svaraði:

Hej Kristin, du øger altid på hver side af de 10 masker i A.1 - god fornøjelse! :)

01.09.2020 - 13:35

country flag Anne-Mette skrifaði:

Jeg forstår ikke helt : strik ret i masken under næste maske. betyder det at jeg får to masker ud af en?

23.08.2020 - 16:15

DROPS Design svaraði:

Hei Anne-Mette. Nei. Ta en titt på videoen som ligger under oppskriften som viser hvordan det strikkes. VIDEO: Hvordan strikke 1 rett i masken fra forrige omgang. God Fornøyelse!

24.08.2020 - 13:27

country flag Esther Kusningsih skrifaði:

Thanks for pattern

06.08.2020 - 02:14