TD skrifaði:
Is the knitting tension given that for the 5.5 needles ??
20.01.2025 - 10:37DROPS Design svaraði:
Dear TD, correct, tension is worked with larger needle size. Happy knitting!
20.01.2025 - 15:35
Sylvie skrifaði:
Bonjour (encore moi…) Pouvez vous m’expliquer comment relever les 5 mailles pour l’encolure svp (1ère fois que je tricote un pull!). Merci par avance
02.11.2024 - 21:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, retrouvez comment faire dans cette vidéo à partir du time code 6:15 environ. Bon tricot!
04.11.2024 - 08:48
Sylvie skrifaði:
Bonjour\r\nJe suis perplexe car pour une taille L le schéma indique que la pointe du col V se situe au dessus des 58 cm en partant du bas mais dans le titi, il est indiqué de commencer les diminutions du col V quand l’ouvrage mesure 40cm… pouvez vous m’indiquer si c’est correct ? \r\nMerci
01.11.2024 - 11:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, on commence l'encolure V quand le devant mesure 40 cm, les 58 cm indiqués à droite du schéma correspondent à la hauteur totale du pull: des côtes jusqu'aux épaules. Bon tricot!
01.11.2024 - 16:37
Alice skrifaði:
Je ne suis pas sûre de comment commencer les manche. Je relève 30 mailles devant et 30mailles dans le dos ?
15.01.2024 - 08:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Alice, c'est exact pour la taille M. Bon tricot!
15.01.2024 - 10:17
Katleen skrifaði:
Beste, Ik begrijp niet wat u bedoelt met deze beschrijving ivm aanzet V hals. Graag wat meer uitleg. ‘Brei op de volgende naald (goede kant) recht tot de 5 steken averecht midden voor. Neem dan 1 steek op in elk van de 5 averechte steken, maar neem deze op aan de achterkant van deze 5 steken.’ Thanks !
15.05.2023 - 18:25DROPS Design svaraði:
Dag Katleen,
In plaats van de rechter naald in de voorste lus van de steek te steken, steek je de naald nu in de achterste lus van de steek. In elke steek brei je 2 steken. Dus in de eerste steek brei je twee steken, in de tweede steek brei je 2 steken, enzovoorts.
17.05.2023 - 18:01
Annie skrifaði:
Je ne comprends pas les 5 mailles au point mousse côté encolure pouvez vous m expliquer svp d avance merci
21.02.2021 - 20:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Annie, quand on tricote les 2 devants séparément, on les tricote en jersey = comme avant, mais avec 1 maille lisière au point mousse côté emmanchure et 5 mailles au point mousse côté encolure, autrement dit, sur l'endroit, tricotez toutes les mailles à l'endroit et sur l'envers, tricotez les 5 mailles côté encolure (en début de rang sur l'envers pour le devant gauche/en fin de rang sur l'envers pour le devant droit) à l'endroit (tout comme la maille lisière côté emmanchure). Bon tricot!
22.02.2021 - 09:26
Anne Vowinckel skrifaði:
Gehen die Streifen über die ganze Breite? Im Diagramm sieht es so aus, als ob an der Seite noch beige gestrickt wird. Auf dem Foto sieht es anders aus.
24.10.2020 - 17:11DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Vowinckel, ja genau, die streifen gehen über die ganze Breite, dh so wie in A.1 beidseitig weitestricken bis die Randmaschen mit der unteren bzw neuen Farbe gestrickt wird, dh Sie werden dann bei einigen Reihen mit 5 und eben mit 7 knäuel stricken. Viel Spaß beim stricken!
26.10.2020 - 08:04
Catherine Cortesi skrifaði:
Bonjour, Je ne suis pas sûre de comprendre les explications pour les manches : au début, elles sont ouvertes, c'est ça ? Ce sont les deux centimètres qui permettent de donner l'aisance du dessous de bras ? Merci de votre réponse.
02.10.2020 - 14:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cortesi, vous avez tout à fait compris, ces 2 cm du haut de la manche seront cousues le long des mailles rabattues pour les emmanchures dos/devant sur les côtés, et on termine ensuite la manche en rond. Bonne continuation!
02.10.2020 - 15:11
CArolina skrifaði:
Hola, a mi no me quedo claro en la parte del escote cuando indica levantar 5 puntos del lado de atrás...como se hace eso sin cerrar los puntos? Muchas gracias
10.02.2020 - 18:01DROPS Design svaraði:
Hola Carolina. Aquí tienes el video de cómo se recogen los puntos en el borde:
16.02.2020 - 23:02
Elke Jahn skrifaði:
Ich möchte gerne wissen, ob in dem Diagramm A1 nur die Hinreihen oder die Hin- und Rückreihen angegeben sind. Können Sie mir da bitte helfen? Vielen Dank!
22.01.2020 - 09:48DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Jahn, alle Reihen sind im Diagramme gezeichnet, dh die Hin- sowie die Rückreihen - hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
22.01.2020 - 10:18
Grand Canyon Nights#grandcanyonnightssweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með röndum og v-hálsmáli úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-43 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og rendurnar halda áfram alveg eins og útskýrt er í A.1 alveg út í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Prjónið með 3, 5 eða 7 dokkum í umferð (eftir því hvar í mynstrinu þú ert), þannig sleppur þú við langa þræði á bakhlið. Þ.e.a.s. að t.d. neðst á peysunni þegar fyrsta röndin byrjar, er prjónað með 1 dokku í litnum beige hvor megin á peysunni og 1 dokku í litnum appelsína fyrir miðju á peysu. ATH: Til að koma í veg fyrir göt við litaskipti verður að tvinna þræðina um hvorn annan. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þessum 98 lykkjum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 10,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. Ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAK-2 (á við um V-hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 5 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handveg fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður til loka. Að lokum er botninn saumaður í handveg. Peysan er saumuð saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 94-100-108-118-126-138 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 85-91-99-107-115-125 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm frá uppfitjunarkanti, byrja rendur – sjá MYNSTUR. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni með litnum beige, prjónið 21-24-28-32-36-41 lykkjur í sléttprjóni með litnum beige, prjónið A.1 (= 41 lykkjur), prjónið 21-24-28-32-36-41 lykkjur í sléttprjóni með litnum beige og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni með litnum beige. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 81-87-95-103-111-121 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 38-41-45-49-53-58 lykkjur eins og áður, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 38-41-45-49-53-58 lykkjur sem eftir eru eins og áður. Í næstu umferð (rétta), eru prjónaðar sléttar lykkjur fram að 5 lykkjum brugðið við miðju að framan. Prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja af 5 lykkjum brugðið, en prjónið upp á bakhlið á þessum 5 lykkjum. Haldið eftir þessum 43-46-50-54-58-63 fyrstu lykkjum á prjóni (þ.e.a.s. 38-41-45-49-53-58 lykkjur + 5 lykkjur sem voru prjónaðar upp). Setjið 43-46-50-54-58-63 lykkjur á þráð eða hjálparprjón. Hvor hlið á v-hálsmáli er prjónuð til loka fyrir sig. VINSTRI HLIÐ AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Mynstrið heldur áfram alveg eins og áður þar til allar lykkjur eru prjónaðar með litnum svartur. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-4-5-5 sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 36-39-42-46-49-54 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá réttu og fellið af fyrstu 31-34-37-41-44-49 lykkjur frá öxl (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur) = 5 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur í ca 8-8-9-9-9-9 cm. Fellið af. HÆGRI HLIÐ AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Setjið til baka 43-46-50-54-58-63 lykkjur af þræði/hjálparprjóni á hringprjón 5,5. Byrjið frá réttu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Mynstrið heldur áfram alveg eins og áður þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar með litnum svartur. JAFNFRAMT í í næstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-4-5-5 sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 36-39-42-46-49-54 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti. Byrjið frá röngu og fellið af fyrstu 31-34-37-41-44-49 lykkjur frá öxl (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur) = 5 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 5 lykkjur í ca 8-8-9-9-9-9 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: Fitjið upp 94-100-108-118-126-138 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum beige. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-9-9-11-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1= 85-91-99-107-115-125 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm frá uppfitjunarkanti, byrja rendur og prjónað er alveg eins og á framstykki (þ.e.a.s. að rendur á framstykki og bakstykki eru alveg eins). Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 81-87-95-103-111-121 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar með litnum svartur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru felldar af miðju 17-17-19-19-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 31-34-37-41-44-49 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 58-60-64-68-70-74 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 5,5 með litnum svartur (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handveg). Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 2 cm í öllum stærðum frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp, setjið 1 prjónamerki í byrjun og í lok umferðar. Prjónamerkin merkja hvar ermin er saumuð siðar að botni á handveg og ermin er nú mælt frá þessum prjónamerkjum! Skiptið yfir á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til ermin mælist 41-40-39-37-36-33 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 64-66-70-74-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-46-45-43-42-39 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermi við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvora hlið. Saumið kant í hálsmáli saman við miðju að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka – passið uppá að saumurinn snúi inn að röngu. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #grandcanyonnightssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.