DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Fall

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með köðlum og V-hálsmáli með sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-37
DROPS Design: Mynstur ks-155
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-225-225-250-275-300 g litur 33, ryð
Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-175-175-200-225-250 litur 22, ljós ryð

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum Kid-Silk eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 46 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 5,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju saman.

ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 lykkju á undan A.3 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 lykkju á eftir A.4 þannig: prjónið A.4, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-3 (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að V-hálsmáli, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka frá miðju að framan og upp að handveg. Prjónið síðan framstykkin og bakstykki til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 200-220-232-260-284-308 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð þannig:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið), prjónið sléttprjón yfir fyrstu 46-50-54-58-62-70 lykkjur – fækkið um 9-9-10-11-10-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, prjónið A.1 yfir næstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, A.2 yfir næstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 46-50-54-58-62-70 lykkjur – fækkið um 9-9-10-11-10-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki hér (= hlið), prjónið sléttprjón yfir 98-110-114-130-146-154 lykkjur sem eftir eru – fækkið um 14-18-16-22-28-26 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= bakstykki).
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 174-190-202-224-244-264 lykkjur í umferð (= 90-98-104-116-126-136 lykkjur á framstykki og 84-92-98-108-118-128 lykkjur á bakstykki).
Prjóanið síðan A.3 (= 8-8-8-11-11-11 lykkjur) yfir A.1 og prjónið A.4 (= 8-8-8-11-11-11 lykkjur) yfir A.2, lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur, A.3 og A.4 er síðan endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm – stillið af eftir umferð á sléttri tölu. Nú skiptist stykkið við hálsmál á milli 2 kaðla á framstykki.
Prjónið síðan stykkið fram og til baka frá miðju að framan, með byrjun frá réttu. Það á að fækka lykkjum fyrir V-hálsmáli í fyrstu umferð frá réttu – jafnframt þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm er fellt af fyrir handveg, þ.e.a.s. prjónið þannig (mynstur heldur áfram eins og áður):
V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í fyrstu umferð frá hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, í 4. hverri umferð alls 1-2-2-3-3-3 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 7-6-7-6-7-8 sinnum.
HANDVEGUR.
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af 10-14-14-18-18-20 lykkjur í hvorri hlið (= 5-7-7-9-9-10 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hliðum). Prjónið síðan framstykkin og bakstykkið hvert fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni, A.4 og úrtöku fyrir hálsmáli eins og áður. Þegar úrtöku fyrir V-hálsmáli er lokið eru 30-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm). Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 22-24-26-27-31-34 lykkjur fyrir öxl = 8-8-8-11-11-11 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.4 yfir lykkjur sem eftir eru þar til sjalkraginn mælist 6-6-7-7-7-8 cm. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjurnar prjónaðar yfir kaðal slétt saman 2 og 2 = 5-5-5-7-7-7 lykkjur, fellið af í næstu umferð frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram í sléttprjóni, A.3 og úrtöku fyrir hálsmáli eins og áður. Þegar úrtöku fyrir V-hálsmáli er lokið eru 30-32-34-38-42-45 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm). Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 22-24-26-27-31-34 lykkjurnar fyrir öxl = 8-8-8-11-11-11 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.3 yfir lykkjur sem eftir eru þar til sjalkraginn mælist 6-6-7-7-7-8 cm. Í næstu umferð frá réttu eru lykkjurnar prjónaðar yfir kaðal slétt saman 2 og 2 = 5-5-5-7-7-7 lykkjur, fellið af í næstu umferð frá réttu.

BAKSTYKKI:
= 74-78-84-90-100-108 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg (stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm). Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 28-28-30-34-36-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-24-27-27-31-34 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið laust af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 72-80-80-84-92-96 lykkjur á hringprjón/sokkaprjóna 4 með 2 þráðum Kid-Silk eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum og auka út.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 30-34-34-34-38-42 lykkjur – fækkið um 8-10-8-9-11-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.1 yfir næstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, A.2 yfir næstu 5-5-5-7-7-7 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir 32-36-36-36-40-40 lykkjur sem eftir eru – fækkið um 10-12-10-11-13-11 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 60-64-68-72-76-80 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan A.3 (= 8-8-8-11-11-11 lykkjur) yfir A.1 og prjónið A.4 (= 8-8-8-11-11-11 lykkjur) yfir A.2, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 14 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-3.
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 35 cm = 56-60-64-68-72-76 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-42-42-41-39-37 cm. Aukið nú út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 2 sinnum = 60-64-68-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 49-48-48-46-44-41 cm – stillið af eftir umferð á oddatölu. Prjónið nú fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 52-52-52-51-49-47 cm. Í næstu umferð frá réttu eru prjónaðar 6-6-6-8-8-8 lykkjur yfir kaðal slétt saman 2 og 2 = 54-58-62-64-68-72 lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið við hálsmál aftan í hnakka – saumurinn á að snúa inn að röngu. Saumið ermar i, þ.e.a.s. saumið niður affellingarkantinn á ermi við handveg. Opið á neðri hlið á ermi á að sauma niður þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg á fram- og bakstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.11.2020
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI:..Prjónið þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm – stillið af eftir umferð á sléttri tölu. Nú skiptist stykkið við háls á milli 2 kaðla á framstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin. Leiðrétting á ermi.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo að ekki myndist gat
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni

symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Golden Fall

Sylvia, Germany

Golden Fall

Neulevirta, Finland

Golden Fall

LaWollFever

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Thea wrote:

Er staat een tik foutje bij het achterpand. Bij maat L heb je 84 steken, je kant 30 steken af voor de hals. Dat is voor elke schouder 27 steken over. En dan nog 1 steek afkanten is totaal 26 voor elke schouder, zoals ook bij de voorpanden. Maar er staat een eind totaal van 27 steken

11.02.2024 - 10:31

country flag Carmela Russo wrote:

Salve vorrei un aiuto,c'è scritto nel testo dove si spiega come confezionare la maglia,che sullo scollo del dietro si cuce il colletto ma no c'è la spiegazione di come realizzarlo potete aiutarmi grazie spero di essere stata chiara

05.02.2024 - 11:06

DROPS Design answered:

Buonasera Carmela, nelle spiegazioni di ogni davanti è riportato come lavorare il colletto. Buon lavoro!

25.02.2024 - 22:05

country flag Anna wrote:

Hello, decreases for V-neck are only from the right side, and it starts on the 1st row after division from the right side, then we continue back and forth, which means that every 2nd, 4th and 6th rows will be from the wrong side. Could you please explain how I can decrease from the right side on the 6th row

24.12.2023 - 17:36

DROPS Design answered:

Dear Anna, since the first decrease was on the first row and the decrease should be every 6th row (not on the 6th row, but 6 rows after the first one) you will then decrease on the 7th row and the 13th row. Then on the 17 th row e.t.c. Happy knitting!

28.12.2023 - 23:13

country flag Emmanuelle wrote:

Bonjour. Je pense qu'il y a une erreur pour la manche sur la mesure de la 2ème diminutions qui doit se faire à 38 cm. Comment faire puisque vous indiquez pour la taille XXXL qu'après cette 2ème dim. (à 38cm), il faut aller jusqu'à 37cm pour commencer les aug. Merci pour votre aide.

12.11.2023 - 18:57

country flag Emmanuelle wrote:

Bonjour. Dans les explications pour l'assemblage vous notez : "Assembler le col au milieu dos en grafting et le coudre le long de l'encolure dos – la couture doit être sur l'envers" mais je ne vois pas d'explication pour le col à coudre au dos. Pourriez-vous m'expliquez. Merci.

01.11.2023 - 15:14

DROPS Design answered:

Bonjour Emmanuelle, à la fin de chaque devant, quand on a rabattu les mailles de l'épaule, on continue le diagramme A.3 sur les 8 ou 11 mailles restantes (cf taille) jusqu'à ce que cette partie du col mesure 6, 7 ou 8 cm; puis on diminue les mailles de la torsade et on rabat les 5 ou 7 mailles restantes. On termine les 2 devants de la même façon, on assemble les 5 ou 7 mailles rabattues ensemble puis on va coudre cette bande le long de l'encolure dos. Dans cette vidéo, nous montrons (pour un autre modèle) comment tricoter ce type de col. Bon tricot!

02.11.2023 - 17:16

country flag Fabienne Cluts wrote:

Bonjour, je voudrais avoir une confirmation est ce bien juste que pour avoir du jersey quand on tricote en circulaire il faut tout faire à l'endroit ? et comment fait-on pour avoir le jersey à l'extérieur de sont travail, est ce kle fait de faire le 1er tout à l'endroit ? Merci

08.06.2023 - 10:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cluts, tout à fait, pour tricoter du jersey, en rond, on va toujours tricoter à l'endroit (cette vidéo illustre cette façon de tricoter); quand on tricote en rond, on tricote les mailles telles qu'elles doivent se présenter sur l'endroit, pour du jersey endroit, on tricote à l'endroit et pour du jersey envers, on tricote à l'envers. Bon tricot!

08.06.2023 - 16:46

country flag Bettie wrote:

Hallo had u een vraag gesteld voor patroon 205/37maar was niet duidelijk als ik a1 en a2 brei en de lussen meetel dan komen er geen acht rechten boven maar negen dat komt door de lus ik voeg 2 av toe in het begin en aan het rechten vriendelijk dank

27.04.2023 - 15:36

DROPS Design answered:

Dag Bettie,

Op de tweede naald van A.1 en A.2 ben je van 7 naar 11 steken gegaan omdat je 4 omslagen hebt gemaakt. Je maakt ook een omslag tussen de de 2 averecht (aan de rechterkant van A.1 en de linkerkant van A.2. Op de tweede toer wordt die omslag averecht gebreid aan de goede kant en recht aan de verkeerde kant. Je hebt dan dus 3 averecht en 8 recht in zowel A.1 als A.2.

30.04.2023 - 16:58

country flag Bettie wrote:

Hallo wil de drops 205/37 graag breien maar snap het tel patroon a1 a2 niet goed want terug moet ik de lussen ook breien en dan komt het niet goed boven elkaar zou u mij hier mee kunnen helpen vr groet b fokkema

25.04.2023 - 18:58

DROPS Design answered:

Dag Bettie,

Bij A.1 en A.2 maak je in de eerste naald omslagen tussen de rechte steken. Deze brei je op de volgende naald gedraaid. Wat bedoel je met dat het niet boven elkaar komt?

27.04.2023 - 08:03

country flag Petra wrote:

Ich habe eine Frage zu den Abnahmen am V-Ausschnitt. Ich nehme in der ersten Hinreihe auf jeder Seite 1 Masche ab. Dann nehme ich in jeder 6. Reihe 2x 1 Masche ab, dann in jeder 4. Reihe 1x1 Masche und in jeder 2. Reihe 7 x 1 Masche. Das sind doch insgesamt 11 Maschen je Seite? Ich habe beim Beginn des V-Ausschnitts 45 Maschen je Vorderteil. 5 Maschen fur den Armausschnitt, 11 Maschen Abnahme V-Ausschnitt, 8 Maschen für den Zopf, bleiben 21 Maschen übrig. Ich stricke in Größe S.

26.01.2023 - 08:00

DROPS Design answered:

Liebe Petra, in S nehmen Sie für den Hals 1 Masche x 2 Mal in jeder 6. Reihe dann 1 Mal in jeder 4. Reihe und 7. Mal in jeder 2. Reihe = 10 Mal insgesamt; und gleichzeitig werden 5 Maschen für das Armloch bei der Verteilung abgekettet, es waren 90 M für das Vorderteil /2 = 45 M - 5 M (Armloch) - 10 M (V-Hals) = es sind 30 M übrig. Viel Spaß beim stricken!

26.01.2023 - 10:12

country flag Emma wrote:

Hi, What is the recommended ease for this pattern? I have a 108 cm bust, and don’t know whether to go for medium or large? I understand you need a fair bit of ease for drop shoulders

24.01.2023 - 18:23

DROPS Design answered:

Dear Emma, choose your own desire ease measuring a similar garment you have and like the shape and compare these to the chart - if you want something tight rather use M or if you want it somewhat looser choose L. Read more here. Happy knitting!

25.01.2023 - 11:34