Elise Pedersen skrifaði:
God model - den vil jeg gerne strikke.
18.09.2019 - 18:00
May-britt Dalgaard skrifaði:
Super flot, hvornår er opskriften på nettet
08.09.2019 - 16:09
Stefanie skrifaði:
Toller Pullover - die Passe und diese tollen Ärmel 😀! Hoffentlich gibt es bald eine Anleitung dazu 😉
28.08.2019 - 09:39
Britt Svaneblom skrifaði:
Kommer detta mönster
21.08.2019 - 11:23
Guillermina skrifaði:
Me encanta!! cuándo estará el patrón disponible?
20.08.2019 - 12:48
Birgitta Svaneblom skrifaði:
Hej. Den är jätte snygg
18.08.2019 - 10:17
Galya skrifaði:
Dunes
17.08.2019 - 05:02
Manja skrifaði:
Sehr hübscher Pullover. Gibt es dazu schon eine Anleitung? Bei mir geht da nix auf. VG Manja
15.08.2019 - 15:42
Monica skrifaði:
Lavanda
03.08.2019 - 06:51
Estefania skrifaði:
Me encanta, el adorno del canesú y esas mangas 🥰
23.07.2019 - 13:32
Sleeping Roses#sleepingrosessweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum í berustykki og blöðru ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 42. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 42. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 41. og 42. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Hægt er að stilla af lengdina á ermunum eins og útskýrt er í uppskrift, en passið uppá að lengdin á ermum á að vera aðeins lengri en venjulega til að ermarnar komi til með að poka aðeins neðst niðri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða það er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-84-87-90-96-99 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Næst aumferð er prjónuð þannig: S, M og L: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 130-140-145 lykkjur í umferð. XL, XXL og XXXL: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 180-192-198 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðinn svo að ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, það á að mæla berustykkið frá prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið A.1 hringinn (= 26-28-29-30-32-33 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9-10-10-11-11 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið A.2 hringinn (= 26-28-29-30-32-33 mynstureiningar með 5-5-5-6-6-6 lykkjur). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 234-252-261-300-320-330 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 26-28-29-30-32-33 mynstureiningar með 9-9-9-10-10-10 lykkjur). Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 18-20-22-22-24-25 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-6-17-2-2-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ ÚRTAKA = 234-258-278-302-322-346 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 19-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 35-38-41-45-49-54 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 71-77-83-91-99-109 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 46-52-56-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 36-39-42-46-50-55 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-166-182-198-218-238 lykkjur. Byrjið mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi í annarri hlið á stykki og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-4-5-3-5-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 150-162-177-195-213-234 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-52-56-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-58-64-68-72-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 4-6-8-9-10-10 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-16-16-15-15-15 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 1½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 15 sinnum í öllum stærðum = 74-76-78-80-82-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-40-39-37-35-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-4-0-2-4-0 lykkjur jafnt yfir = 72-72-78-78-78-84 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 36-36-39-39-39-42 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 48-46-45-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sleepingrosessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.