Sandy skrifaði:
I am wondering about sizing. I see numbers on the picture at the end of the pattern but not sure what size I use for a 22 cm chest measurement. My granddaughters are very skinny.
28.11.2024 - 01:28DROPS Design svaraði:
Hi Sandy, please see the lesson DROPS HERE. Happy knitting!
28.11.2024 - 08:45
Bettina Nordland skrifaði:
Jeg strikker genseren i størrelse 7/8 år og går nå kommet til bilen. Antall masker stemmer overens med mønsteret, men nå forskyver mønsteret seg slik at "lusene" ikke ligger over hver andre. Er det riktig? Hilsen Bettina
02.05.2024 - 22:35DROPS Design svaraði:
Hei Bettina, Lusene skal fortsette over hverandre. God fornøyelse!
03.05.2024 - 06:33
Helga skrifaði:
Please advise how to adjust the pattern for age 14 years old, the chest size is 88cm the height is 158/164cm and length 56cm. Thank you 😊
03.11.2021 - 16:56DROPS Design svaraði:
Dear Helga, please understand that we cannot modify our patterns to each individual request. If you think the biggest child-sizr from this sweater would be too small, you might want to see the smallest size of the grown up version linked below the picture. Happy Knitting!
04.11.2021 - 01:13
Lena skrifaði:
Jeg strikker størresle 2 år. Mit arbejde måler 14 cm og jeg skal så lave ærmegab, men jeg er først ved pil 5 og for at få det til at passe med maskerne skulle jeg være ved pil 8?
04.09.2021 - 15:49DROPS Design svaraði:
Hej Lena. Har du sett att du ska mäta efter halskanten? Har du kontrollerat att du har riktig stickfasthet? Mvh DROPS Design
24.09.2021 - 09:28
Sanna C skrifaði:
It would be really nice to be able to print this instruction ( and also the other lovely patterns) in pdf file format. Now the print to file option has only prn format and does not support pdf, which is a bit inconvenient.
14.12.2020 - 08:54
Cecilia Barbero skrifaði:
Nello schema ad un certo punto dice di proseguire con lo schema A.X e A.Y ma A.Y non esiste nel diagramma. Si procede solo con A.X? Grazie
01.11.2020 - 20:54DROPS Design svaraði:
Buongiorno Cecilia, abbiamo corretto il testo: non esiste il diagramma A.Y, può proseguire con A.X. Buon lavoro!
02.11.2020 - 10:26
Rebecca Webber skrifaði:
So far I am loving this pattern, but have a question. I am knitting size 7-8. When I get to the body and am working the increases, there are 2 rounds with stars. Do I increase stitches in both rounds with stars (ie. 8 stitches each time AX is worked?) This does not seem to make sense as it says that there are 6 repeats of AX to give an increase in 24 stitches in total. If I only increase on one star round, which star do I use? Thanks so much, Rebecca
30.10.2020 - 01:08DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Webber, when increasing on body you should increase on both rows with a star in A.X so that pattern will fit in the round when working next round with a dot - you increase 2 sts on each side, see INCREASE-TIP-2 = 4 sts on every increase ro. Increasing a total of 6 times means increasing in the first 3 repeats of A.x (= 2 times in each A.x = 6 times in total). Happy knitting!
30.10.2020 - 07:41
Annika Gronowitz skrifaði:
Hej, Förstår inte "öka varje gång A.X stickas på höjden". Har aldrig stött på begreppet att stickas på höjden. Där står ju redan att man gör ökningarna på asterixraderna. Och vad står A.X. för? Tack för hjälpen.
23.02.2020 - 05:51DROPS Design svaraði:
Hei Annika. Du strikker ovenifra og ned og pilene i diagram A.1 viser økningene på BÆRESTYKKET. Når du er ferdig med diagram A.1, skal diagrammet A.X (øverste del av diagram A.1) strikkes/gjentas flere ganger. Nå strikkes BOL og da er det henvist til hvilken omgang på bolen det skal økes - Les ØKETIPS-2 (se stjerne i diagram A.X). God Fornøyelse!
24.02.2020 - 11:03
Angersbach, Roswitha skrifaði:
Hallo, ich stricke den candy cane lane kid in größe 146/152. bei Pfeil 8 nehme ich nochmal 4 maschen zu.aus dem rapport A.X. reihe 7 und reihe 9 sollten die maschen genau übereinander stehen. durch die 4 maschen zunahme in pfeil 8 kann das aber nicht sein. ab zunahme verschiebt sich die eingestrickte masche. können sie mir helfen? freundliche grüße
08.11.2019 - 21:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Angersbach, bei der letzten Zunahmenrunde können Sie die Zunahmen am besten stricken, damit sie nicht so sichtbar sind. Viel Spaß beim stricken!
12.11.2019 - 13:40
Candy Cane Lane Kids#candycanelanesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með norrænu Fana mynstri úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-32 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 67) = 5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. Stillið mynstrið af mitt undir ermi þannig að mynstrið haldi fallega áfram hringinn út ermina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-84-88-88-92 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum vínrauður/rauður. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 2-2-2-3-3-3 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 16-16-16-16-16-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 96-100-100-104-104-112 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í umferð HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið A.1 hringinn (= 24-25-25-26-26-28 mynstureiningar með 4 lykkjur), byrjun á umferð = miðja að aftan. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri merð ör í A.1 er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Ör-1: Aukið út 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 108-112-112-116-116-124 lykkjur (nú er pláss fyrir 27-28-28-29-29-31 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-2: Aukið út 12-12-12-16-16-24 lykkjur jafnt yfir = 120-124-124-132-132-148 lykkjur. (nú er pláss fyrir 30-31-31-33-33-37 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-3: Aukið út 16-20-20-24-24-32 lykkjur jafnt yfir = 136-144-144-156-156-180 lykkjur. (nú er pláss fyrir 34-36-36-39-39-45 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 32-36-36-36-36-24 lykkjur jafnt yfir = 168-180-180-192-192-204 lykkjur. (nú er pláss fyrir 14-15-15-16-16-17 mynstureiningar með 12 lykkjum). Ör-5: Aukið út 16-16-24-20-32-28 lykkjur jafnt yfir = 184-196-204-212-224-232 lykkjur. (nú er pláss fyrir 46-49-51-53-56-58 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-6: Aukið út 12-20-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir = 196-216-224-232-248-256 lykkjur. (nú er pláss fyrir 49-54-56-58-62-64 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-7: Aukið út 8-4-8-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 204-220-232-244-260-268 lykkjur. (nú er pláss fyrir 51-55-58-61-65-67 mynstureiningar með 4 lykkjum). Ör-8: Aukið út 4-4-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 208-224-236-248-264-272 lykkjur. (nú er pláss fyrir 52-56-59-62-66-68 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið áfram með A.X og þegar stykkið mælist ca 14-14-15-16-17-17 cm frá prjónamerki, prjónið frá miðju að aftan þannig: Prjónið 32-34-36-38-41-42 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 40-44-46-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 64-68-72-76-82-84 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 40-44-46-48-50-52 lykkjur á 1 þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 32-34-36-38-41-42 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hinn helmingurinn á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-148-156-168-180-184 lykkjur (= 35-37-39-42-45-46 mynstureiningar með 4 lykkjum). Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Haldið áfram með A.X eins og áður þar til stykkið mælist 4 cm, nú á að auka út lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan. Passið uppá að útaukningar séu gerðar í umferð sem eru merktar með stjörnu (með því að gera þetta svona þá kemur mynstrið til með að halda áfram að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, þá er aukið út um 4 lykkjur í hvorri hlið á milli hverra umferða þar sem litamynstur er prjónað). Aukið út mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ 2 – 3/4 – 5/6 – 7/8 ára: Aukið út alls 4-4-4-6 sinnum – aukið út í hvert skipti sem A.X er prjónað á hæðina. STÆRÐ 9/10 – 11/12 ára: Aukið út alls 6-6 sinnum – aukið út í annarri hverri umferð sem A.X er prjónað á hæðina. ALLAR STÆRÐIR: = 156-164-172-192-204-208 lykkjur (= 39-41-43-48-51-52 mynstureiningar með 4 lykkjum). Prjónið A.X þar til stykkið mælist 16-20-23-25-28-32 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-48-52-56-56-60 lykkjur jafnt yfir = 200-212-224-248-260-268 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og vínrauður/rauður. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið síðan ef með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 38-42-46-50-54-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 40-44-46-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 46-50-52-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota prjónamerkið aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið mynstur A.X hringinn eins og áður, stillið af þannig að mynstrið passi yfir mynstur sem prjónað var á berustykki (það kemur ekki alltaf að ganga jafnt upp undir ermi). Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-3-3½-3½-4-4 cm millibili alls 7-7-7-8-8-9 sinnum = 32-36-38-40-42-42 lykkjur. Þegar ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-2-4-2-6 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og litinn vínrauður. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 22-26-30-34-38-42 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candycanelanesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.