Monika Wirtz skrifaði:
Die Maschenprobe, glatt rechts, soll 21 Maschen und 28 Reihen auf 10 cm ergeben. Wenn man aber das Muster strickt, wird das Gestrickte enger, und bei mir ergibt sich eine Maschenprobe von 24 M / 34 R. Dadurch stimmen jegliche Angaben in der Anleitung nicht mehr! Bitte überprüfen Sie dies.
24.06.2020 - 10:05DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wirtz, die Maschenprobe in der Breite soll immer 21 Maschen = 10 cm im Muster (A.1 = 1 Masche Krausrechts, 1 Masche glatt rechts) - versuchen Sie noch mal mit anderen Nadeln - hier lesen Sie mehr über die Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!
24.06.2020 - 14:13
Manoa skrifaði:
Bonjour, Je me suis finalement lancée en Muskat mais ne comprends pas l'enchaînement entre A1 et A2 pour les rangs des augmentations raglan : dans la mesure où le nombre de mailles croît chaque rang, quand faire une maille A2, svp ? Merci beaucoup.
08.04.2020 - 23:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Manoa, A.2 permet simplement de terminer le motif sur un nombre impair de mailles: on répète d'abord A.1 et on termine par A.2, ainsi le motif commence et se termine par la même maille sur le nombre de mailles concerné entre les jetés. Bon tricot!
09.04.2020 - 17:34
Manoa skrifaði:
Bonjour, Je compte faire ce pull avec des restes de Muskat. Cette laine se prête-t-elle aux point A1 et A2 ou est-il préférable que je tricote en jersey, svp ? Merci de vos conseils, bonne journée.
07.04.2020 - 07:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Manoa, Muskat et Sky sont toutes les deux du groupe de fils B, donc vous pouvez tout à fait utiliser Muskat, utilisez notre convertisseur pour connaître les quantités requises - Tous les points sont réalisables avec tous les fils, et ce modèle est expliqué sur la base de ces points fantaisie; tricotez un échantillon avec A.1 et A.2 pour voir le rendu. Bon tricot!
09.04.2020 - 15:18
Liesbeth skrifaði:
Goede morgen, voor de mouw staan 59 steken incl de 6 opgehaalde steken. als je A1 breidt heb je een even aantal steken nodig om uit te komen toch? hoe los je dit op en waar is het het beste om de ronde te beginnen? alvast dank voor uw antwoord! vriendelijke groeten Liesbeth
24.03.2020 - 10:09
Anna skrifaði:
Hallo, als de meerderingen van de raglan klaar zijn, brei je dan verder ZONDER meerderingen tot het werk genoeg cm meet? Groeten Anna
19.03.2020 - 12:44DROPS Design svaraði:
Dag Anna,
Ja dat klopt; nadat de meerderingen klaar zijn brei je door tot de gewenste lengte van de pas.
25.03.2020 - 10:24
Helén skrifaði:
Hej! Söker efter beskrivning, tröjan är stickad i rosa, flickan sitter på en gunghäst. Mönstret är liknande patentstickning, blir liksom randigt. Har bara ärmar kvar att sticka. Hoppas på hjälp! Med vänlig hälsning, Helén
07.01.2020 - 21:32DROPS Design svaraði:
Hej Jag känner inte igen att vi har ett sådant mönster, men du kan alltid söka på alla mönster vi har i rosa på baby/barn för att se om det kommer upp. Mvh DROPS Design
29.01.2020 - 11:25
Carme Osorio skrifaði:
Donde debo tomar la medida para la siczac , en la espalda o en el diagonal de la siczac?
23.09.2019 - 06:57DROPS Design svaraði:
Hola Carme. Si te refieres a la medida de la sisa en forma raglán, tenemos que tomar en vertical en el centro de la espalda desde el escote hacia abajo.
17.10.2019 - 19:44
Sky Stripes Jumper#skystripesjumper |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með röndum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 34-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR OG MYNSTUR: Stykkið er prjónað í mynstri A.1 og A.2 – JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur þannig: * Prjónið 3 cm með litnum ljós gallabuxnablár (meðtalinn kragi í hálsmáli) og síðan 2 cm með litnum hvítur * - endurtakið þessa litaröð þar til prjónaðar hafa verið 5-5-6-7-8-9 rendur með hvítur á berustykki/fram- og bakstykki og 6-7-8-9-10-10 rendur með litnum hvítur á berustykki/ermi. Prjónið síðan áfram með litnum ljós gallabuxnablár til loka. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 138 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (= 26) = 5,3. Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= lykkja með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur jafnóðum og aukið er út. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (= prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist ca 1 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið nú 4 prjónamerki fyrir LASKALÍNA í stykkið, án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki í 1. lykkju í umferð, setjið 2. prjónamerki í 33.-35.-37.-39.-41.-43. lykkju, setjið 3. prjónamerki í 47.-49.-51.-53.-55.-57. lykkju, setjið 4. prjónamerki í 79.-83.-87.-91.-95.-99. lykkju. Prjónið síðan RENDUR OG MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og lesið allan næsta kafla áður en prjónað er áfram! Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 30-32-34-36-38-40 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= bakstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= ermi). Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið A.1 yfir næstu 30-32-34-36-38-40 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju sléttprjón (= framstykki). Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið A.2 yfir 1 lykkju og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi). Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með rendur og mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 212-224-236-248-260-272 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og rendur þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 63-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 43-45-47-49-51-53 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6 lykkjur undir ermi = 138-146-154-162-170-178 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan mynstur, rendur eins og áður. Þegar stykkið mælist 17-19-22-25-28-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 26-30-34-34-38-38 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 164-176-188-196-208-216 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt þar stykkið mælist 19-21-24-27-30-33 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjón til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 33-36-40-44-48-52 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 43-45-47-49-51-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 49-51-53-55-57-59 lykkjur. Prjónið hringinn og haldið áfram með mynstur A.1 og rendur eins og áður. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-7-6 cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 39-39-43-43-47-47 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-23-27-31-35-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 3-3-3-3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-40-44-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 23-27-31-35-39-42 cm frá skiptingu – notið e.t.v. grófari prjóna til að fella af, svo að kanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #skystripesjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.