Eva skrifaði:
Ønsker strikke happy stripes genseren i Drops Nepal. Stemmer det at eg skal strikke med dobbelt garn? Det blir vel veeeeeldig tykt?
14.09.2020 - 13:45DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Nei, denne genseren strikkes bare med 1 tråd. Men voksen versjonene (DROPS 202-1) strikkes med dobbelt tråd. mvh DROPS design
14.09.2020 - 14:07
Birgitte Ginnerup skrifaði:
Hej Hvor mange nøgler Air går der til en ensfarvet sweater i mindste str ( 2 år)?
22.05.2020 - 23:35DROPS Design svaraði:
Hej Birgitte, da skal du bruge ca 200 gr. God fornøjelse!
27.05.2020 - 13:49
Sandra skrifaði:
Hallo, wieviel Gramm brauche ich denn für den Pulli in einfarbig? Danke
01.01.2020 - 10:27DROPS Design svaraði:
Liebe Sandra, da wir den Pullover mit Streifen gestrickt haben, können wir Ihnen leider nicht die Garnmenge in nur eine Farbe geben. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2020 - 14:58
Sigrid Van Der Elst skrifaði:
Hoeveel garen heb ik nodig als ik de trui in 1 kleur air wil breien? 10 bollen lijkt me nogal veel voor een kindertrui. Ik wil graag een effen versie breien in 11/12 jaar. alvast bedankt!
25.09.2019 - 14:24DROPS Design svaraði:
Dag Sigrid,
Bij een vergelijkbare trui in een effen patroon kom ik op 6 a 7 bollen voor leeftijd 11/12
27.09.2019 - 15:48
Etoile skrifaði:
??? Je ne demande pas d'adaptation du modèle, je souhaite connaître le poids du modèle terminé selon les tailles pour commander le fil en une couleur unique et ainsi pouvoir en tricoter pour différents membres de ma famille.
12.09.2019 - 14:46
Étoile skrifaði:
Bonjour, Et si on tricote ce modèle en une seule couleur, quelle quantité faut-il ? Merci
11.09.2019 - 19:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Étoile, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chaque modèle à chaque demande, vous pouvez vous inspirer d'un modèle uni dans une laine du groupe C. Bon tricot!
12.09.2019 - 08:38
Happy Stripes#happystripessweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air eða DROPS Nepal eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 34-22 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 53 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið A.1 einu sinni, síðan er prjónað A.2 áfram og endurtekið til loka (á við um bæði fram- og bakstykki og ermar). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermum): Aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 54-54-58-62-64-68 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum blár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-8-16 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 60-60-64-68-72-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir 21-21-23-25-25-31 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-9-9-11-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 21-21-23-25-25-31 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-9-9-11-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Héðan er nú prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki, í skiptingunni á milli ermi og bakstykkis. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-19-21-23-23-29 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 19-19-21-23-23-29 lykkjur slétt (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-7-7-9-9 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrstu útaukningu fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið áfram með sléttprjón, rendur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-14-15-16-17-17 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning sem var útskýrð að ofan). Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 164-172-184-196-208-220 lykkjur á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum, án útaukninga, þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá prjónamerki í byrjun á berustykki. Næsta umferð er prjónuð í röndum og sléttprjóni eins og áður, en byrjið umferð 1 lykkju fyrri (á undan 2 lykkjum í sléttprjóni á milli erma og bakstykkis). Prjónið 49-51-55-59-61-67 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 49-51-55-59-61-67 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 33-35-37-39-43-43 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 106-110-118-130-134-146 lykkjur í umferð. Setjið stykkið saman og haldið áfram í sléttprjóni og röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 12-14-17-20-23-26 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og litinn blár. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykkinu á hringprjón/sokkaprjóna 5,5 (= 33-35-37-39-43-43 lykkjur). Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 37-39-41-45-49-49 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjur og byrjið á umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með rendur alveg eins og á fram- og bakstykki (það er mikilvægt að halda áfram í sömu umferð og á fram- og bakstykki eftir berustykki). Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2-2½-3-4-5-6 cm millibili alls 8-8-8-7-6-6 sinnum = 53-55-57-59-61-61 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 18-22-26-30-34-38 cm frá skiptingu. Skiptið yfir í litinn blár og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-3-1-3-1-1 lykkju/lykkjur = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar slétt saman út umferðina = 26-26-28-28-30-30 lykkjur. Prjónið stroff með 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjón 5,5. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #happystripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.