DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21824.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Color Clash

Prjónuð peysa með röndum í 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-2
DROPS Design: Mynstur ai-205
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100-150-150-150 g litur 08, ljós bleikur
100-100-100-100-150-150 g litur 07, rúbínrauður
100-100-100-150-150-150 g litur 18, ljós grágrænn
100-100-100-150-150-150 g litur 25, hindber
100-100-100-100-100-100 g litur 21, sæblár
50-100-100-100-100-100 g litur 22, gulur
50-50-100-100-100-100 g litur 17, gallabuxnablár
50-50-50-50-100-100 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 09, sjávarblár
50-50-50-50-50-50 g litur 11, páfuglablár
50-50-50-50-50-50 g litur 16, blár

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni með 2 þráðum = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sjálft stykkið.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

DROPS TRÉTALA (ceder tré) NR 512: 3 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21824.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

RENDUR:
Stroffið er prjónað í rúbínrauðum og afgangur af stykki er prjónað í röndum og sléttprjóni (með kantlykkjum og kantlykkjum að framan í garðaprjóni). Rendurnar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1. Skiljið eftir þráð ca 15-20 cm við litaskipti, notið þráðinn til að sauma hliðarsauma og sauma neðan í hliðum á ermum.

ÚRTAKA-1:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 71 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 10,1. Í þessu dæmi þá er ca 9. og 10. hver lykkja prjónuð saman.

ÚRTAKA-2:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 4 lykkjur garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 4 lykkjur garðaprjón þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 4 lykkjur garðaprjón þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 26 lykkjur), mínus allar kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötu þegar stykkið mælist:
S: 35-44-53 cm
M: 36-45-54 cm
L: 37-46-55 cm
XL: 38-47-56 cm
XXL: 39-48-57 cm
XXXL: 40-49-58 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 þráðum, fram og til baka á hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 71-71-77-83-89-95 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 9.
Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í fyrstu umferð þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 9-5-7-9-11-13 lykkjur jafnt yfir næstu 63-63-69-75-81-87 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1 og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Nú eru 62-66-70-74-78-82 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið síðan áfram með rendur, sléttprjón (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) þar til stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm frá uppfitjunarkanti. Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 56-60-64-68-72-76 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttprjón með 1 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjurnar (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður), síðan eru felldar af miðju 8-8-10-10-12-12 fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 4 lykkjur garðaprjón í næstu umferð frá hálsi = 23-25-26-28-29-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm frá uppfitjunarkanti.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 41-41-47-47-53-53 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 4 lykkjur í garðaprjóni (= að hlið), prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 3 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= mitt að framan).
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 9.
Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir næstu 33-33-39-39-45-45 lykkjurnar – sjá ÚRTAKA-1 og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Nú eru 35-37-39-41-43-45 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með rendur, sléttprjón (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) þar til stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm. Nú byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð frá réttu alls 9-9-10-10-11-11 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu. Prjónið nú sléttprjón með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni við hlið til loka. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 23-25-26-28-29-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm – passið uppá að endað sé með sömu litarrönd og á bakstykki. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 41-41-47-47-53-53 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= mitt að framan), prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur í garðaprjóni (= að hlið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm.
Til þess að litaskiptin verði í hlið á stykki en ekki mitt að framan verður nú að prjóna 1 umferð aukalega með stroffi á þessu framstykki en sem er á bakstykki og vinstra framstykki, þannig að litaskiptin komi sjálfkrafa í hlið. Skiptið yfir á hringprjón 9.
Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eins og í fyrstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 6-4-8-6-10-8 lykkjur jafnt yfir næstu 33-33-39-39-45-45 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1 og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Nú eru 35-37-39-41-43-45 lykkjur í umferð.
Haldið síðan áfram með rendur, sléttprjón (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) – munið eftir HNAPPAGAT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm. Þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, fækkið um 1 lykkju innan við 4 lykkjur garðaprjón – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð frá réttu alls 9-9-10-10-11-11 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón að hlið til loka.
Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 23-25-26-28-29-31 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist ca 76-78-80-82-84-86 cm – passið uppá að endað sé með sömu litarönd og á bakstykki og vinstra framstykki. Fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón.
Fitjið upp 26-26-26-32-32-32 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 9. Héðan eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um lykkjur þannig – sjá ÚTAUKNING: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og aukið út 4-6-8-4-6-8 lykkjur jafnt yfir næstu 24-24-24-30-30-30 lykkjurnar og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Nú eru 30-32-34-36-38-40 lykkjur í umferð. Haldið áfram með rendur þar til stykkið mælist 44-43-42-41-40-39 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Frágangurinn er gerðu með 1 þræði svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Notið lit sem er líkur röndinni sem sauma á í. Saumið axlasaumana með lykkjuspori innan við affellingarkantinn, passið uppá að saumurinn verði jafn og flatur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið sauminn meðfram neðri hlið á ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsaum í ystu lykkjubogana niður meðfram hlið á fram- og bakstykki, byrjið við handveg og saumið þar til ca 17 cm eru eftir neðst niðri á peysu (= klauf). Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = ljós bleikur
symbols = sæblár
symbols = ljós grágrænn
symbols = hindber
symbols = gallabuxnablár
symbols = sjávarblár
symbols = hveiti
symbols = gulur
symbols = rúbínrauður
symbols = blár
symbols = páfuglablár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Paulissen Martine wrote:

Pour le modèle 202-2, vous ne précisez pas dans les explications qu il faut tricoter les fentes de côté au point mousse (4 mailles) jusqu'à 17 cm.

30.12.2022 - 16:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Paulissen, en fait, vous tricotez 4 mailles point mousse sur le côté (de chaque côté pour le dos) jusqu'à ce que vous rabattiez les mailles des emmanchures, autrement dit, pas seulement le long des fentes - sur la 1ère photo, on voit légèrement le côté et les mailles point mousse qui continuent après la fente. Bon tricot!

02.01.2023 - 13:21

country flag Janna Vittrup Olsen wrote:

Angående ærmevidje.Der skal tages ud efter ribben og ikke mere opad.Det vil sige at der kun kan blive et halv ærme.Jeg mener at der skal tages ud,for at det kan blive et ærme,som passer til trøjen.

27.11.2021 - 18:10

country flag Birgitte wrote:

Udtagning til hals: Der står at der skal tages ud på hver 2. Pind fra retsiden. Er det så hver 4. Pind eller er det blot på hver retpind, altså på hver 2. Pind?.Jeg har forsøgt at kigge på billedet, men det er svært at se. På tegningen ser det ud som om det er hver 4. Pind. Hvis det er på hver 2. Pind, så bliver indtagningen færdig meget hurtigere og der er et langt stykke, der er lige op langs med halsen.

12.11.2020 - 00:19

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, du tager ud på hver 2.pind. God fornøjelse!

18.11.2020 - 13:36

country flag Weronika wrote:

Hi, can you please tell me, how much this jacket weight in total? I would like to knit it, but in one color :)

03.09.2020 - 13:05

DROPS Design answered:

Dear Weronika, we unfortunately cannot adapt every pattern to every single request and we do not have the jacket anymore - you can get help from another pattern in Air in your size - check measurement charts and/or calculate all colours together to compare with. Your DROPS store might be able to help you, even per mail or telephone. Happy knitting!

03.09.2020 - 13:58

country flag Anna Maria Vitulano wrote:

Buongiorno, nel modello 202/2 lateralmente, risulterà una striscia di 8 maglie legaccio? Così si evince dalle spiegazioni, ma non si vede dalla foto

22.02.2020 - 06:34

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna Maria. Sì, una volta cuciti il davanti e il dietro, avrà una striscia di 8 maglie legaccio. Buon lavoro!

23.02.2020 - 08:24

country flag Femke wrote:

Ik snap het eigenlijk helemaal niet,is er geen video waar je dit kledingstuk in maakt met uitleg en traag voorgedaan? Dit zou erg handig zijn

14.07.2019 - 23:23

DROPS Design answered:

Dag Femke,

Er zijn niet per kledingstuk video's, maar wel voor heel veel technieken die in de verschillende kledingstukken gebruikt worden. Aan de linkerkant van het patroon vind je een link naar video's die van toepassing zijn op dit patroon.

15.07.2019 - 13:54

country flag Gro Bjeren wrote:

Hei! Ang. overvidde. f.eks 124 cm. er det på kropp eller jakken ferdig strikket? Er man 124 cm så er det vanligvis for lite å strikke S. Tenker heller XL, men det er kanskje annerledes i denne oppskriften?

07.06.2019 - 14:39

DROPS Design answered:

Hei Gro. Målene på målskissen referer til det ferdigstrikkede plagget. God fornøyelse

07.06.2019 - 14:56

country flag Helene wrote:

I opskriften er der ingen udtagninger på ærmet udover de masker der tages ud efter ribkanten - er det en fejl i opskriften?

24.04.2019 - 07:57

DROPS Design answered:

Hei Helene. Denne genseren har posete ermer, så det stemmer at de er like vide hele veien. Dette kan du også se ermene og ermhullsåpningen på målskissen. God fornøyelse

26.04.2019 - 14:13

country flag Victoria wrote:

Jag är ingen van stickare. Betyder "2 trådar" helt enkelt att jag stickar två garntrådar parallellt, som att de vore en garntråd?

04.03.2019 - 06:43

DROPS Design answered:

Hej. Ja precis, det är så vi menar (så garnet blir då alltså dubbelt så tjockt jämfört med om du hade stickat med en tråd). Mvh DROPS Design

04.03.2019 - 11:19

country flag May Britt Olsen wrote:

Kunne tenkt meg å strikke den i en farve, hvor mange nøster trenger jeg til str S

07.02.2019 - 09:09

DROPS Design answered:

Hei May Britt. Vi har dessevrre ikke oversikt over garnmengden i ensfarget. Vi runder alltid opp til nærmeste hele nøste når vi oppgit garnmengde. Du kan se om du finner en lignende oppskrift i samme garn og bruke garnmengden der som utgangspunkt. Det er mulig å filtrere søk etter garntype, eller eventuelt etter garngruppe E. God fornøyelse

11.02.2019 - 11:02