Urszula skrifaði:
Cudowny te kolory są wspaniałe już chciałabym go zrobić
12.06.2019 - 19:41
Loreto skrifaði:
Enamorada
12.06.2019 - 18:13
Henriette skrifaði:
Ich liebe Sonnenfarben!
11.06.2019 - 18:14
Geneviève skrifaði:
Pour un hiver lumineux
09.06.2019 - 12:39
Mai skrifaði:
I am in love with this piece from pattern and colors , where can I find it ?
09.06.2019 - 12:38
Laura skrifaði:
Bellissimo e coloratissimo : divertente da lavorare e da indossare!
08.06.2019 - 12:09
Laura skrifaði:
Bellissimo e coloratissimo : divertente da lavorare e da indossare!
08.06.2019 - 12:08
Debra Brooks skrifaði:
Beautiful, I cannot wait to make it
08.06.2019 - 09:22
Lise skrifaði:
Nydelige farger
07.06.2019 - 19:18
FRANCOISE skrifaði:
Très belles couleurs. J'ai hâte de pouvoir tricoter ce modèle.
07.06.2019 - 18:25
Winter Escape Jacket#winterescapejacket |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-3 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Í þeim umferðum þar sem mynsturbekkur er með 2 litum prjónast grunnliturinn í mynsturborða einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. Mikilvægt er að halda réttri prjónfestu á hæðina, ef prjónað er of fast þá kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 20. Og 21. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat (þ.e.a.s. ekki prjónuð snúin). Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8-8-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur. Einnig er hægt að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins bæði að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Eftir berustykkið er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-96-100-104-108 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með litnum gulur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 1-2-0-1-2-3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 81-86-96-101-106-111 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA: Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú ætlar ekki að hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki mitt að aftan, á milli 2 lykkja í stærð M, L og XXL og í miðju lykkjuna í stærð S, XL og XXXL (= 40-43-48-50-53-55 lykkjur inn frá hvorri hlið). Byrjið frá réttu með litnum gulur og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 70-75-85-90-95-100 lykkjur (= 14-15-17-18-19-20 mynstureiningar með 5 lykkjum) prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur með útaukninguþar til eftir er 1 umferð í A.1 og A.2. Nú eru 263-281-317-335-353-371 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð í A.1 og A.2, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 257-285-315-333-335-373 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan næstu umferð þannig, byrjið nú með A.3 yfir lykkjur í A.1 og A.4 yfir lykkjur í A.2: Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og útkýrt er í fyrstu umferð í A.3 (= framstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 75-81-91-97-107-115 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.3 (= bakstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.3 og endið með 5 lykkjum í garðaprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-185-203-221-239-257 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.3 yfir næstu 162-174-192-210-228-246 lykkjur, prjónið A.4, endið með 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með A.3 og A.4 þar til það hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón með gulur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Aukið út með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 5 sinnum = 193-205-223-241-259-277 lykkjur – SJÁ ÚTAUKNING-2. Þegar stykkið mælist 34-36-36-38-38-40 cm frá skiptingu, prjónið eina umferð frá röngu þar sem aukið er út um 39-43-45-51-53-59 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚTAUKNING-1 = 232-248-268-292-312-336 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-56-62-64-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 54-60-66-72-78-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi, fækkið lykkjum með 5-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 7-10-12-14-15-15 sinnum = 40-40-42-44-48-48 lykkjur – SJÁ ÚRTAKA. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í grunnlit. Þegar ermin mælist ca 35-36-34-35-33-34 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt með litnum gulur þar sem aukið er út um 8-8-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterescapejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.