DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Escape

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-4
DROPS Design: Mynstur ne-317
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 2923, gulur
100-100-150-150-150-150 g litur 0100, natur
50-100-100-100-100-100 g litur 1477, pistasía
50-100-100-100-100-100 g litur 2920, appelsína
50-50-50-50-50-100 g litur 8911, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 6273, kirsuber
50-50-50-50-50-50 g litur 6790, kóngablár
50-50-50-50-50-50 g litur 4434, fjólublár

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11264.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.
Mikilvægt er að halda réttri prjónfestu á hæðina, ef prjónað er of fast þá kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 20. og 21. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur. Einnig er hægt að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins bæði að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykkið er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSI:
Fitjið upp 68-72-84-88-92-100 lykkjur á hringprjón 4 með litnum gulur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-3-1-2-3-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 70-75-85-90-95-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Byrjið frá réttu frá miðju að aftan og prjónið með gulur: Prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

BERUSTYKKI:
Sjá LEIÐBEININGAR!
Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 14-15-17-18-19-20 mynstureiningar með 5 lykkjum).
Haldið áfram með mynstur með útaukningu þar til eftir er 1 umferð í A.1. Nú eru 252-270-306-324-342-360 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð í A.1, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 246-274-304-322-344-362 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan næstu umferð þannig, byrjið nú með A.2 yfir allar lykkjur í A.1: Prjónið 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og fyrsta umferð í A.2 sýnir (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-90-96-106-114 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.2 (= framstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.2 (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-174-192-210-228-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram með A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni með litnum gulur. Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Aukið svona út með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 5 sinnum = 182-194-212-230-248-266 lykkjur – SJÁ ÚTAUKNING-2. Þegar stykkið mælist 34-36-36-38-38-40 cm frá skiptingu, prjónið eina umferð þar sem aukið er út um 38-42-44-50-52-58 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚTAUKNING-1 = 220-236-256-280-300-324 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 4. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroffið svona í 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-56-62-64-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 ykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 54-60-66-72-78-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi, fækkið lykkjum með 5-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 7-10-12-14-15-15 sinnum = 40-40-42-44-48-48 lykkjur – SJÁ ÚRTAKA. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í grunnlit. Þegar ermin mælist ca 35-36-34-35-33-34 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt með gulur þar sem aukið er út um 8-8-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = gulur
symbols = kirsuberjarauður
symbols = pistasía
symbols = kóngablár
symbols = appelsína
symbols = natur
symbols = sæblár
symbols = fjólublár
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Escape

Birgitta, United Kingdom

Winter Escape

Anne, United States

Winter Escape

Anne Morris, United States

Winter Escape

Annalisa, Italy

Winter Escape

Hilli, Israel

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Asta Nilsson wrote:

Storlek xl, när man har gjort nya maskor till ärmarna och börjar sticka A2, så stämmer inte maskantalet med mönstret. Istället för att göra nya 8 maskor så får man bara göra 5 nya för att det ska passa in i mönstret.

24.09.2023 - 14:58

country flag Vivienne Macleod wrote:

Please can you tell me how many stitches I should have at the plain white row below the purple zigzags as it doesn't work out and the zigzags are uneven?

28.01.2023 - 06:42

DROPS Design answered:

Dear Vivienne, the amount of stitches will depend on the size you are working and the number of repeats of A.1 that you have in the round. Just before starting the zigzags, the last row of off-white, you have 16 stitches per repeat (as counted in the chart). Take into account that there are increases once you start working the zigzags. Happy knitting!

29.01.2023 - 22:54

country flag Petra Kessassouia wrote:

Warum muss man kurz vor den Ärmelbündchen und Rumpfbündchen zunehmen anstatt abnehmen? Das ist doch falsch ?

26.06.2022 - 12:52

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kessassouia, hier will man nicht, daß das Bündchen eng wird, deshalb wird man zuerst zunehmen, weil man mehr Maschen mit den dünneren Nadeln für das Bündchen braucht als mit den grösseren Nadeln für glattrechts. Viel Spaß beim stricken!

27.06.2022 - 08:31

country flag Mary wrote:

I am confused by this instruction. (Yoke) "Continue this pattern until there is 1 round left in A.1. There are 252 stitches on the needle. Work the last round in A.1, AT THE SAME TIME adjust the number of stitches to 246" Please can you tell me where and how I decrease the number of stitches without messing up the pattern?? Thank you.

04.10.2021 - 23:54

DROPS Design answered:

Dear Mary, this lesson will explain you how to decrease 6 sts evenly to go from 252 on 246 sts on the last round in A.1. Happy knitting!

05.10.2021 - 07:29

country flag Linn wrote:

Hej, jag vill sticka denna till min dotter. Hon har stl 164 i vanliga kläder. Kan jag använda stl S? Eller blir den alldeles för stor? Svårt att hitta mönster för större barn.

18.09.2021 - 12:32

DROPS Design answered:

Hej Linn. Om du ser längst ner på detta mönster så har du en måttskiss på det färdiga plagget. Mät en tröja hon redan har och jämför med måtten i den minsta storleken så ser du om det passar henne. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 09:36

country flag Gina wrote:

Body. Does the increasing take place over the two sets of 6 stitches that have been cast on. Could you please describe the process from the part on the instruction increase 1 stitch on each side of both marker threads. Do I knit 62 (large size) stitches and then increase. Gina

27.01.2021 - 20:05

DROPS Design answered:

Dear Gina, at the beginning of body you insert a marker in the middle of the 6 new stitches cast on mid under sleeve, then you will increase as under INCREASE TIP-2, ie work from the side (marker): K1, YO (increase), knit until 1 st remain before next marker, YO, K2, YO, knit until 1 st remain before next marker,YO, K1 = 192 sts + 4 sts increased = 196 sts after 1st increase round. Happy knititng!

28.01.2021 - 09:40

country flag Gina wrote:

I understand the procedure for an elevated neck. The video you advised me about shows the neck in a circle for the elevated neck is this correct as mine isn't. How do I find the mid back in order to knit the elevated neck. Thanks for all your help.

08.12.2020 - 21:15

DROPS Design answered:

Dear Gina, in the video you start just as in this jumper you cast on stitches and work rib in the round for 4 cm, knit 1 round increasing evenly, knit 1 round with larger needle and now start the short rows from the beg of the round = mid back, working alternately from RS and from WS and more sts on every row, then work back to the beg of the round (mid back), and continue working in the round. Happy knitting!

09.12.2020 - 06:59

country flag Gina wrote:

Is the neck (back elevation) knitted in a round or just back and forth. There are no instructions how to sew the neck if not knitted in a round. Happy knitting

08.12.2020 - 10:43

DROPS Design answered:

Dear Gina, elevation is worked with short rows = in rows (not in the round) as shown in this video. Hope this will help. Happy knitting!

08.12.2020 - 16:36

country flag Ghislaine Bernard wrote:

Bonjour, vous serez t-il possible de faire une vidéo sur la création d'un pull tricoté aux aiguilles circulaires comme ce modèle merci beaucoup

26.11.2020 - 22:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernard, vous retrouvez dans cette leçon le principe d'un pull tricoté de haut en bas, la leçon montre un raglan, ici vous tricoterez les diagrammes avec les augmentations de l'empiècement, mais autrement, la technique sera la même. Bon tricot!

27.11.2020 - 07:31

country flag Gina wrote:

Where are the quantities for each colour stated for a large jumper.

22.11.2020 - 10:15

DROPS Design answered:

Dear Gina, you can see the quantities of each color stated in the Materials section of the jumper. For size L, it would be the 3º number: 450 gr (9 balls) of colour 2923, 150gr (3 balls) of colour 0100, 100 gr (2 balls) of colour 1477, 100 gr (2 balls) of colour 2920, 50 gr (1 ball) of colour 8911, 50 gr (1 ball) of colour 6273, 50 gr (1 ball) of colour 6790 and 50 gr (1 ball) of colour 4434.

22.11.2020 - 11:30