Elke Linssen skrifaði:
Laut Anleitung wird das Zopfmuster kraus rechts gestrickt. Ist das wirklich richtig? Irgendwie zweifel ich daran.
31.10.2019 - 17:46DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Linssen, die Zöpfe werden glatt rechts gestrickt; bei den Hinreihen stricken Sie die Maschen rechts und bei den Rückreihen stricken Sie diesen Maschen links - hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!
04.11.2019 - 14:17
Priscilla Walker skrifaði:
Under PATTERN it states - See diagrams A.1 to A.5 You also state within the pattern work A.1 over the next 16-20-24-24-28-36 stitches (= 4-5-6-6-7-9 repeats of 4 stitches). Where / what is A.1. and A.5? I would love to knit this but need to know before I start that I have all the correct information. Thank you. Cilla
19.10.2019 - 11:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Walker, you will find A.1 + A.5 under the sleeve of the measurement chart, they are small diagrams worked over 4 stitches and 4 rows. Happy knitting!
21.10.2019 - 09:25
Git Karlsson skrifaði:
Hej! Jag hittar inte A1 i mönstret. Eller är det bara så att jag inte ser det?
12.09.2019 - 14:10DROPS Design svaraði:
Hej, Du hittar A.1 till höger om måttskissen längst ner i mönstret. Lycka till :)
12.09.2019 - 14:21
Michelle DUBOIS skrifaði:
Pouvez- vous me dire comment tricoter ,une maille endroit en piquant sous la maille suivante? Merci.
05.09.2019 - 20:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dubois, cette vidéo montre comment tricoter la maille du rang précédent, dans ce cas, vous aurez une maille endroit (vous tricotez la maille en côtes anglaises à l'envers sur l'envers), sur l'endroit, piquez l'aiguille dans cette maille du rang précédent au lieu de dans la maille qui est sur l'aiguille. Bon tricot!
06.09.2019 - 07:49
Barbara skrifaði:
Buongiorno posso lavorare il davanti e dietro in tondo sino agli scalfi manica così da evitare le cuciture? Grazie
22.08.2019 - 06:31DROPS Design svaraði:
Buongiorno Barbara. Può adattare la lavorazione in tondo. Si ricordi che non serve la maglia vivagno. Buon lavoro!
22.08.2019 - 10:22
Hinke skrifaði:
Een steek recht onder de volgende steek. Hoe moet dat?
18.08.2019 - 11:08DROPS Design svaraði:
Dag Hinke,
In een van de gerelateerde video's wordt getoond hoe je dat doet. Deze video vind je hier.
16.10.2019 - 10:06
Thyra Schoonderwoerd skrifaði:
1 recht in de steek onder de volgende steek Ik snap helaas niet wat hier mee bedoeld wordt. Kan iemand mij hier mee verder helpen?
14.08.2019 - 19:55DROPS Design svaraði:
Dag Thyra,
In een van de gerelateerde video's wordt getoond hoe je dat doet. Deze video vind je hier
17.10.2019 - 09:52
Elstow skrifaði:
How can i print this out. My eyes are bad and i need this a lot larger
24.07.2019 - 00:20DROPS Design svaraði:
Dear Elstow, you can easily print every our pattern for free whenever you like - see symbol of printer (i.e. printer icon with word "Pattern") just under the header of pattern and tab with material. Happy knitting!
24.07.2019 - 11:01
CARON skrifaði:
Bonjour Madame, et merci beaucoup pour votre réponse. Je m'excuse de ne pas vous avoir saluée lors de mon précédent message. Bien à vous. Cordialement
17.07.2019 - 10:02
Garrie McDaniel skrifaði:
Very nice
16.07.2019 - 21:01
Winter Delight#winterdelightsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldu perluprjóni. Stærð S – XXXL.
DROPS 205-7 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Á þessu módeli eru lykkjurnar prjónaðar upp meðfram handveg og ermarnar eru prjónaðar ofan frá og niður. Þetta er gert til að stýra betur lengdina á ermum. Ef óskað er eftir því að prjóna ermarnar sér og sauma þær í, þá er mjög einfalt að gera það með því að fitja upp jafn margar lykkjur og prjóna á upp meðfram handveg og fylgja útskýringu á ermum. Saumið ermarnar í (ermarnar liggja undir kanti í garðaprjóni meðfram handveg þannig að kanturinn í garðaprjóni sjáist og saumað er í ystu lykkju meðfram kanti í garðaprjóni). ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 4,4. Úrtaka er gerð frá réttu! Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt eða prjónið 2 lykkjur brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin. Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt, eða prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Axlasaumar saumaðir. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar – sjá LEIÐBEININGAR! Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan hefur verið prjónuð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka. Að lokum er handvegur saumaður saman og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 108-116-124-132-140-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm, en stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstur. Þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.3 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.4 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur, prjónið A.5 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 1-3-5-7-9-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 106-110-114-118-122-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 44-44-44-48-48-48 lykkjur í umferð - sjá ÚRTAKA-1 = 96-100-104-108-112-120 lykkjur eftir. Í næstu umferð (ranga) er fækkað um miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 29-31-32-34-35-39 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykki mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 108-116-124-132-140-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú byrjar mynstur. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 16-20-24-24-28-26 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.3 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.4 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 1-3-5-7-9-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 106-110-114-118-122-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 47-49-51-52-54-56 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 44-44-44-48-48-48 lykkjur í umferð = 96-100-104-108-112-120 lykkjur eftir. Í næstu umferð (ranga) eru miðju 20-20-22-22-22-22 lykkjurnar settar á band fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þanni: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkju 3-3-3-3-4-4 sinnum = 29-31-32-34-35-39 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. í byrjun í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 76-80-84-88-92-96 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 4,5 með Merino Extra Fine (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handveg) – sjá LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 3-4-4-4-4-4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina við botn á handveg og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki! Prjónið nú ermina hringinn. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur (= 19-20-21-22-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar ermin mælist 2-3-2-3-3-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 47-46-45-43-42-39 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra máli í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 52-52-51-49-48-45 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma – saumið i ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið ermi við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu á hringprjón 3,5, ca 80 til 94 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út jafnt yfir til 90-92-94-96-100-102 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterdelightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.