KateC skrifaði:
When you say “make 1 yarn over,” does this just mean Make 1, or do you then move the yarn over (to front)? Won’t this leave a hole? I am a new knitter, thank you.
04.08.2019 - 22:54DROPS Design svaraði:
Hi Kate, 1 yarn over means wind the strand around the right needle to make an extra stitch. The yarn over is then worked twisted (in the back of the loop rather than the front) on the next row/round to avoid a hole. Happy knitting!
05.08.2019 - 07:41
Jóna Marvinsdóttir skrifaði:
Get ég keypt þetta munstur? Og hvernig ber ég mig að? Hef aldrei pantað áður.
15.07.2019 - 12:51DROPS Design svaraði:
Öll mynstrin eru frí. Þú getur prentað þau út.
15.07.2019 - 14:47
Idun Jacket#idunjacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-3 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (í S og XL er prjónamerkið sett í miðju lykkju í umferð, í M, L, XXL og XXXL er prjónamerkið sett á milli 2 miðju lykkja í umferð). Byrjið frá réttu með litnum bensínblár/kirsuber og prjónið 13-14-15-15-16-17 lykkjur slétt framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 27-28-30-31-32-34 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 40-42-45-46-48-51 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 53-56-60-61-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið 1 umferð brugðið (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 3,0. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Á fram- og bakstykki er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (ranga) svo að ekki myndist gat. Á ermum er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-9-8-8-7½-7½ cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Eða að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með litnum bensínblár/kirsuber. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 31-32-34-35-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 135-140-146-151-156-162 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð eftir kant við miðju að framan, það á að mæla berustykkið frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki prjóna upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (lykkjufjöldinn gengur ekki jafnt upp í mynstureiningu með 10 lykkjum, en það gerir ekkert til þar sem umferðin er einlit), prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1: ÖR-1: Aukið út um 41-43-45-47-49-55 lykkjur jafnt yfir = 176-183-191-198-205-217 lykkjur. ÖR-2: Aukið út um 25-28-30-33-36-44 lykkjur jafnt yfir = 201-211-221-231-241-261 lykkjur (nú er pláss fyrir 19-20-21-22-23-25 mynstureiningar A.1A með 10 lykkjum). ÖR-3: Aukið út um 22-30-40-48-54-58 lykkjur jafnt yfir = 223-241-261-279-295-319 lykkjur. ÖR-4: Aukið út um 22-30-36-44-54-56 lykkjur jafnt yfir = 245-271-297-323-349-375 lykkjur (nú er pláss fyrir 9-10-11-12-13-14 lykkjur jafnt yfir A.1A með 26 lykkjum). ÖR-5: Aukið út um 16-20-24-28-22-26 lykkjur jafnt yfir = 261-291-321-351-371-401 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-28-31-34-36-39 mynstureiningar A.1A með 10 lykkjum). ÖR-6: Aukið út um 12-14-8-6-10-12 lykkjur jafnt yfir = 273-305-329-357-381-413 lykkjur (nú er pláss fyrir 25-28-31-34-36-39 mynstureiningar A.1 með 10 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-18-18-21-21-21 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið síðan sléttprjón með bensínblár/kirsuber og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist berustykki til fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 44-48-51-56-61-67 lykkjur í garðaprjóni og sléttprjóni eins og áður (= framstykki), setjið næstu 54-62-68-72-74-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 77-85-91-101-111-123 lykkjur í sléttprjóni eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 54-62-68-72-74-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 44-48-51-56-61-67 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 177-193-209-229-253-277 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 47-51-55-60-66-72 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 83-91-99-109-121-133 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum bensínblár/kirsuber og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 193-209-225-245-269-293 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 51-55-59-67-71-79 lykkjur jafnt yfir (kantar að framan eru prjónaðar í garðaprjóni og ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 244-264-284-312-340-372 lykkjur. Aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-62-68-72-74-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-68-76-80-84-88 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með bensínblár/kirsuber. Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 3-7-10-11-11-13 sinnum = 54-54-56-58-62-62 lykkjur. Þegar ermin mælist 15-15-16-16-16-17 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-3-3-2-2 cm millibili alls 3 sinnum = 60-60-62-64-68-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (nú eru eftir 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 76-76-80-84-88-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-38-36-35 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #idunjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.