Christine skrifaði:
Les explications pour ce modèle seront elles bientôt disponible merci
21.02.2019 - 10:15
Puyoo skrifaði:
J’adore pour les soirées d’ete
03.02.2019 - 01:21
Laila Sægrov skrifaði:
Solgangsbris. Nydeleg modell. Den vil eg lage!
26.01.2019 - 23:47
Debbie Hayward skrifaði:
Ocean Breeze would be a good name for this design. I love it!
25.01.2019 - 17:59
Pilar Gonzalez skrifaði:
Para las tardes fresquitas de verano
15.12.2018 - 22:13
Mermaid Shell#mermaidshellponcho |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð poncho peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S – XXXL.
DROPS 199-35 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.2. Mynsturteikning A.3 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar og er hekluð sem viðbót við A.4. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 48) = 2. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla um sömu lykkju á eftir annan hvern stuðul. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er heklaður í hring í lokin. BERUSTYKKI: Heklið 112-119-126 loftlykkjur með heklunál 5 með Big Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja af fyrstu 6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 15-16-17 sinnum, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 96-102-108 stuðlar + 3 loftlykkjur. Heklið síðan mynstur þannig: Sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.2A alls 16-17-18 sinnum í umferð – í umferð merktri með ör er auki út um 48-54-60 stuðla jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 144-156-168 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! A.2A er endurtekið 24-26-28 sinnum á breidd. Þegar A.2A hefur verið heklað til loka, heklið A.2B yfir A.2A – í umferð merktri með ör er aukið út um 48-54-60 stuðla jafnt yfir = 192-210-228 stuðlar. A.2B er endurtekið 32-35-38 sinnum á breidd. Þegar A.2B hefur verið heklað til loka, heklið 6 fyrstu umferðirnar í A.2A yfir A.2B – í umferð merktri með ör er aukið út um 48-54-60 stuðlar jafnt yfir = 240-264-288 stuðlar. A.2A er endurtekið 40-44-48 sinnum á breidd. Haldið áfram til og með 6. umferð í A.2A (= umferð á eftir umferð með ör) = 80-88-96 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 32 cm í öllum stærðum. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að hekla): Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 13-15-16 loftlykkjubogum (= hálft bakstykki), annað prjónamerki er sett á eftir næstu 14-14-16 loftlykkjubogum (= ermi), þriðja prjónamerki er sett á eftir næstu 26-30-32 loftlykkjubogum (= framstykki) og fjórða prjónamerki er sett á eftir næstu 14-14-16 loftlykkjubogum (= ermi), nú eru 13-15-16 loftlykkjubogar á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki). Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar við prjónamerki og er heklað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 52-60-64 loftlykkjubogar. Haldið áfram þar til A.2A hefur verið heklað til loka yfir þessar lykkjur JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 24 stuðla jafnt yfir (A.2A er endurtekið 30-34-36 sinnum á breidd) = 180-204-216 stuðlar. Þegar A.2A hefur verið heklað til loka, heklið A.2B yfir A.2A – í umferð merktri með ör er aukið út um 36-42-48 stuðla jafnt yfir = 216-246-264 stuðlar (A.2B er endurtekið 36-41-44 sinnum á breidd). Þegar A.2B hefur verið heklað til loka er heklað A.2C yfir A.2B alls 0-1-2 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda. Fram- og bakstykki mælist ca 14-18-22 cm frá skiptingu. ERMI: = 14-14-16 loftlykkjubogar. Byrjið mitt undir ermi og heklið síðan þannig: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, haldið áfram með 7. umferð í A.2A yfir þessar lykkjur (= 7-7-8 sinnum á breidd) og heklið til og með 8. umferð. Endurtakið síðan 6. til 8. umferð 0-0-1 sinnum til viðbótar. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 3-3-7 cm frá skiptingu. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið í kringum háls þannig – ATH: Það er heklað í loftlykkjurnar þar sem stuðlar voru heklaðir, en ekki hekla í loftlykkjurnar sem hoppað var yfir: Byrjið við miðju að aftan, festið þráðinn við stykkið með 1 keðjulykkju í stuðul, heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkju í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3-1-3 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, heklið frá *-* alls 22-24-25 sinnum, heklið 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 stuðla og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 24-26-27 loftlykkjubogar. Heklið síðan A.4 hringinn – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka er klippt frá og endi festur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mermaidshellponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.