Sandra skrifaði:
Ojalá salga entre los elegidos, me encanta
08.02.2019 - 00:51
Catherine Le Ray skrifaði:
Hâte d'avoir les explications !
31.01.2019 - 22:24
Karin skrifaði:
I would call it red velvet
30.01.2019 - 15:32
Jutta skrifaði:
I love these oversize pieces...............checking daily on whether the pattern has come online ;)
30.01.2019 - 11:35
Sylvia skrifaði:
Hoffentlich ist die Anleitung bald verfügbar. Möchte den Pulli Anf. März mit in Urlaub nehmen und habe leider nicht jeden Tag Zeit zum Stricken""
28.01.2019 - 14:53
Ernedys Zamora skrifaði:
Hermoso y perfecto: Para todas las tallas, el material utilizado, el color, la forma.
27.01.2019 - 17:50
Valérie skrifaði:
Superbe
24.01.2019 - 19:49
Angelika skrifaði:
Weit, kastig, elegant, dieses Garn ist federleicht und die Farben im Sortiment herrlich.
16.01.2019 - 11:45
Christine skrifaði:
Superbe la forme tendance et le joli point utilisé !
13.01.2019 - 21:41
Aggie Dovermann skrifaði:
Ik ben dol op brede truitjes en deze is prachtig. Ook de kleur. Ik zou hem Silky Summer noemen. Heerlijk.
12.01.2019 - 17:47
Strawberry Swing#strawberryswingsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað poncho / peysa með laskalínu úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-19 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 12,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 12. og 13. hver lykkja saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4 og A.5). GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO / PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Hálsinn og berustykki er prjónað í hring. Fram- og bakstykki er prjónað í hring að klauf, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram- og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KRAGI: Fitjið upp 102-108-108-114-120-126 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 11 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-2-2-16-10-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 110-110-110-130-130-130 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3 (= 3 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3 (= 3 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína). Nú eru 122-122-122-142-142-142 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er auki út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1 og A.3. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með uppslætti hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Laskalínan er alltaf 2 lykkjur sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 25-29-30-32-34-35 sinnum, í næstu umferð er uppslátturinn á ermum prjónaður slétt (= gat) og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 350-350-350-370-370-370 lykkjur í umferð. Prjónið síðan yfir 121-121-121-131-131-131 lykkjur í A.1 til A.3 þannig: Prjónið A.4 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 110-110-110-120-120-120 lykkjur (= 11-11-11-12-12-12 mynstureiningar með 10 lykkjum) og prjónið A.5 (= 3 lykkjur). Ermar halda áfram eins og áður, en þegar útaukning hefur verið gerð til loka á ermum er prjónað áfram án útaukninga. Til að gataröðin haldi áfram meðfram laskalínu eftir að útaukningu á ermum sé lokið, prjónið A.6 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 2 lykkjurnar á eftir laskalínu og A.7 yfir síðustu 2 lykkjur á undan laskalínu að ermi. Þegar prjónað hefur verið upp að umferð merktri með ör í þinni stærð eru 390-418-438-462-486-506 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-26-29-28-32-35 cm. Prjónið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður, en án útaukninga þar til stykkið mælist 26-28-30-31-33-35 cm. Til að gataumferðin haldi áfram meðfram laskalínu eftir að útaukning sé lokið prjónið A.6 og A.7 alveg eins og á ermum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 131-137-145-153-161-169 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 64-72-74-78-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið 131-137-145-153-161-169 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið síðustu 64-72-74-78-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 262-274-290-306-322-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið 1 prjónamerki eftir 131-137-145-153-161-169 lykkjur. Prjónamerkin merkja hliðar. Prjónið 0-3-2-1-0-4 lykkjur sléttprjón, endurtakið A.2 þar til eftir eru 1-4-3-2-1-5 lykkjur á undan prjónamerki (= 13-13-14-15-16-16 mynstureiningar með 10 lykkjum) – stillið af þannig að mynstrið haldi áfram í sléttri umferð, prjónið 1-7-5-3-1-9 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), endurtakið A.2 þar til eftir eru 1-4-3-2-1-5 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð (= 13-13-14-15-16-16 mynstureiningar með 10 lykkjum) og prjónið þær 1-4-3-2-1-5 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-18-18-19-19-19 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé í umferð mitt á milli 2 gatamynstra á hæðina. Nú skiptist stykkið við prjónamerki og framstykki og bakstykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 131-137-145-153-161-169 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2-2-2-0-2-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 129-135-147-153-159-165 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 3 lykkjur brugðið og 3 lykkjur í garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er fellt af með hringprjón 5. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Setjið 64-72-74-78-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 12-10-9-8-6-5 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-4-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 66-72-78-78-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 5. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberryswingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.