DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Glowing Embers

Prjónað sjal úr DROPS Lace eða DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni og gatamynstri.

DROPS 202-20
DROPS Design: Mynstur la-038
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð: Mælt í miðju = ca 54 cm.
Lengd: Mælt meðfram efri hlið frá hlið að hlið = ca 174 cm.
(Eftir formun mælist stykkið ca 64 cm í miðju og ca 204 cm meðfram efri hlið.)

EFNI:
DROPS LACE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100 g litur 3620, rauður
Eða notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250 g litur 3620, rauður

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

FORMUN:
Leggið stykkið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið út, ekki vinda. Rúllið síðan stykkinu inn í handklæði og klemmið fast til að ná vatninu úr – stykkið á nú að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða á dýnu – dragið það varlega út í það mál sem stendur efst í uppskrift undir STÆRÐ og látið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem stykkið er þvegið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón til að fá pláss fyrir allar lykkjur.
Allt stykkið er prjóna í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 3 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri og það eru 9 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið allar lykkjur og uppslátt slétt.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri og það eru 13 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið allar lykkjur og uppslátt slétt.
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

Prjónið næstu umferð þannig:
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur að lykkju með prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðjulykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 6 lykkjur fleiri og það eru 19 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið allar lykkjur og uppslátt slétt.

Endurtakið umferð 5 og 6 þar til það eru alls 373 lykkjur í umferð (5. og 6. umferð hefur verið prjónuð alls 60 sinnum).

Prjónið síðan eftir mynsturteikningu A.1-A.7 frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið A.2 þar til 10 lykkjur eru eftir á undan miðjulykkju (= 12 mynstureiningar á breidd), prjónið A.3 yfir 10 lykkjur, prjónið A.4 yfir 1 lykkju (= miðjulykkja), prjónið A.5 yfir 10 lykkjur, prjónið A.6 þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 12 mynstureiningar á breidd), prjónið A.7 yfir 8 lykkjur.
Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 457 lykkjur í umferð.

Prjónið mynsturteikningu 1 sinni til viðbótar á hæðina þannig: Prjónið A.1 yfir 8 lykkjur, prjónið A.2 þar til 10 lykkjur eru eftir á undan miðju lykkju (= 15 mynstureiningar á breidd), prjónið A.3 yfir 10 lykkjur, prjónið A.4 yfir 1 lykkju (= miðjulykkja), prjónið A.5 yfir 10 lykkjur, prjónið A.6 þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 15 mynstureiningar á breidd), prjónið A.7 yfir 8 lykkjur.
Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 541 lykkjur í umferð.

Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að miðju lykkju. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðjulykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt = 547 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði ekki stífur, sláið uppá prjóninn jafnframt því sem fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á efri hlið á uppslætti í mynstri, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Passið uppá að herða ekki á þræði. Ef kanturinn er enn of stífur, notið grófari prjón til að fella af. Klippið frá og festið enda. Þegar sjalið er tilbúið er hægt að bleyta það og forma til ef óskað er eftir því – sjá FORMUN í útskýringu að ofan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Elena Onorati wrote:

La parte tutta a legaccio, è possibile lavorarla a maglia rasata, in sostituzione del legaccio? Mantenendo sempre comunque i vari aumenti . Grazie

15.04.2024 - 17:01

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, può apoortare la modello le modifche che desidera. Buon lavoro!

17.04.2024 - 16:58

country flag Christine Orvik wrote:

Hei! Skjønner ikke helt at man skal strikke A3 over 10 masker i 3. runde, da det er økt slik at det gjenstår 11 masker fra diagramstart A3 til midtmasken i diagram A4. Er det sånn at man i 1.omgang av diagrammet skal sette maskemerke 10 masker før midtmasken ( og tilsvarende etter midmasken) og forholde seg til det? Det økes jo 2 masker annenhver omgang ved midtmaska (+ til sammen 4 i hver ytterside). Jeg har rett og slett gått meg litt fast ;)

03.09.2021 - 11:41

DROPS Design answered:

Hei Christine. Det økes på hver side av midtmasken (A.4) hver gang det strikkes fra retten. På første rad når det strikkes etter diagrammene (A.1-A.7) strikkes A.3 over 10 masker, men på neste rad strikkes A.3 over 11 masker og på 3. rad strikkes det over 11 masker + det lages et kast, så på 4. rad strikkes det over 12 masker. mvh DROPS design

13.09.2021 - 10:46

country flag AL wrote:

Jag förstår inte var omslagen i avmaskningen ska göras. Ska de vara ovanför alla omslag i mönstret, alltså mellan varje maska?

18.01.2021 - 22:10

country flag Roosa wrote:

I'm so sad that you are no longer producing Drops Lace. I have used this fabulous yarn for beautiful woven and knitten textiles. There is no similar, cost-effective wool-silk yarn in the market. Why was the producement ceased? Are you planning to have a replacement yarn?

09.01.2021 - 21:35

DROPS Design answered:

Dear Roosa, DROPS BabyAlpaca Silk has the exact same content as DROPS Lace did, and would be a nice alternative - try out our yarn converter to get new amount required. Happy knitting!

11.01.2021 - 08:42

country flag Elin wrote:

Om man skulle vilja göra sjalen till endast 35cm höjd (eller bredd?), hur gör jag då? Jag förstår att även längden blir kortare då! Mvh

10.06.2020 - 23:00

DROPS Design answered:

Hej Elin, vi har desværre ikke mulighed for at skrive mønsteret om til andre mål. Vi har også lidt mindre sjaler, hvis det er lettere for dig at følge en opskrift. Prøv at søge på sjaler og vælg strikke. :)

12.06.2020 - 10:50

country flag Evin Zerdest wrote:

Hej , kan någon förklara mig : om diagrammet går ut på 8 maskor och i början av en varv står omslag om stickan ska jag börja varv med en omslag ? Tack

16.03.2020 - 12:25

DROPS Design answered:

Hej Ja det stämmer, är det är en symbol för omslag först i diagrammet så börjar du varvet med ett omslag. Lycka till!

18.03.2020 - 10:08

country flag Evin wrote:

Hej, Jag är nu i början av 23råd men fortfarande har 373 maskor. Kan inte inte begripa mig hur jag kommer till 457 maskor och samtligt ska följa diagrammet (jag menar följa antalet maskor efter A1, A2 också vidare) det blir ju mer maskor. Kan jag i 26 råd öka med maskor? Så det blir rätt antalet maskor till nästa omgång ? Tycker ni inte att det är fel i uppskrivet arbete? Vänligen Evin .

10.03.2020 - 08:01

DROPS Design answered:

Hej Evin, Jo men i A.1 och A.7 öker du 2 maskor i varje sida på vart annat varv enligt diagrammet. Lycka till!

10.03.2020 - 11:31

country flag Elaine wrote:

Bonjour j ai un problème je suis rendu à la ligne 21 du diagramme A3 et j ai sur mon aiguille 20 mailles alors que sur le patron je devrai avoir 21 mailles Exemple dans le diagramme A2 à la ligne 21 il y a un décalage ( c'est correct le tout fonctionne ) mais pour les diagramme A3 et A5 il y a une maille de plus que je n ai pas sur l aiguille que doit je faire ?

20.01.2020 - 03:18

DROPS Design answered:

Bonjour Elaine, la dernière maille du dernier A.2 n'est pas dessinée, car elle figure dans A.3 (comme entre A.1 et A.2), et ce sera la même chose entre A.5 (= la dernière m, celle en plus de A.5 est la 1ère m de A.6 et la dernière m de A.6 est la 1ère du A.6 suivant/la 1ère de A.7. Bon tricot!

20.01.2020 - 10:17

country flag Cath wrote:

Merci pour votre réponse rapide ! :)

04.12.2019 - 16:32

country flag Cath wrote:

Bonjour à vous ! Avant de commencer, j'aimerais savoir si ce châle se tricote en commençant par le haut ou par le bas, je n'arrive pas à comprendre uniquement par la lecture. Merci pour la réponse !

04.12.2019 - 13:54

DROPS Design answered:

Bonjour Cath, on tricote ce châle de haut en bas, en augmentant sur les côtés et au milieu pour créer le triangle. Bon tricot!

04.12.2019 - 13:57